Lesbók Morgunblaðsins - 19.05.1974, Side 14
Lengi hefur það sett mark sitt á mannleg samskipti,
hvað mennirnir eru misjafnlega gerðir af hendi
náttúrunnar. ( tið forfeðra vorra, þegar deilur voru
jafnaðar með beinum Ifkamsátökum, gat þessi
munur ráðið urslitum. í þá daga urðu einstaka menn
svo sterkir eftir því sem bækur herma, að annað eins
hefur ekki átt sér stað siðan. Auk þess marfaldaðist
afl kappanna, þegar á þá rann berserksgangur. Var
þá tæpast við menn að eiga og dugði fátt nema ef til
vill fjölkynngi, svo og óvenjulegir vitsmunir.
Teikning Halldórs Péturssonar greinir einmitt frá
slFku tilviki. Virðist leikurinn ójafn og einsýnt um
úrslitin, þar sem annar aðilinn er tröllvaxinn og
Ifklega fimm manna maki. Hér hafa vopnin verið F
deigara lagi og ernú væskillinn tekinn hryggspennu-
tökum. En F stað þess að svara hryggspennunni,
grfpur hann til vitsmunanna og er nú tvFsýnt um,
hvor kann frá tfðindum að segja.
Ur þing-
vitnum
Framhald af bls. 11
Guðbrandur Arason var fyrsta
vitni og svarar: „Að bændum sé
það mjög torvolt og ómögulegt,
þar bæði óttist þeir að styggja
kaupmenn sökum þeirra stóru
myndugheita og vænti þá af þeim
sífelldrar óvildar, sem þeireigi þó
að sækja sína nauðsyn til; þar
með sé þeim óþolandi að standa í
málaferium og á Jiingum um
þeirra bezta bjargræðistíma, þá
heyskapurinn yfirsiendur en
kauptíðin er þá undir eins."
Næsta vitni var Arngrímur
Jónsson og er svar hans fært sem
hér segir: „Að bændur sjái sér
meiri skaða við að klaga en að líða
órétt, þar hvorki hafi þeir vits-
muni nó framkvæmd til laga-
sókna og megi ei hejmanað vera."
Þriðja vitni, Sigurður Jónsson,
svaraði eins og Guðbrandur.
Fjórða vitni, Jón Björnsson,
svaraði „samhljóða hinum
öðrum" eins og það er orðað í
þingsvitninu. Fimmta vitnið, Guð-
mundur Jónsson, svaraði „sem
Jón Björnsson" segir í þings-
vitninu. Sjötta vitní var
Guðmundur Björnsson og um
vitnisburð hans hefur verið fært í
þingbókina: „svarar hann sem
fyrirfarandi vitni." Sjöunda vitni
var Björn Finnsson og hans svar
var „að bændur geti ei klagað
sökum fáfræðis og vanefna á
þeirra bjargræðistima; kalli og að
þeim annríki hið mesta; vilji því
heldur skaðann svo búinn hafa.“
Attunda vitni var Jön Jónsson
og svaraði hann þrem fyrstu
spurningunum, en gafst síðan
upp og bar við ellihrumleika.
Ekki var sú afsökun tekin til
greina og var haldið áfram að
spyrja hann, en svör við hinum
spurningunum hafa ekki verið
færð i þingbókina, þar eð þau
voru „ógreinileg sökum minnis-
leysis samt daufrar heymar.“
Næstu fimm vitni, Þorleifur
Þorgrímsson, Jón Jónsson,
Magnús Hafsteinsson, Illugi
Jónsson og Einar Björnsson
svöruðu 12. spurningu „sem hin
fyrri vitni“ og er ekki gerð nánari
grein fyrir því í þingbókinni við
hvaða vitni sé átt.
Fjórtánda vitni var Jón
Magnússon og hann svaraði, að
það væri, bændum ómögulegt að
klaga sökum fávizku og vanefnaá
óhentugasta tíma um hey-
skapinn.“ Næstu vitni Þorleif-
ur Ólafsson, Sigurður Þorláksson,
Sveinn ívarsson, Arngrímur
Sigmundsson, Arni Einarsson,
lilgrfandi; II.f. Arvakur. Reykjavfk
Framkv.stj.: llaraldur Svoinsson
Ritstjórar: Matthfas Johannossen
Kyjólfur Konráð Jónsson
Styrmir (lunnarsson
Ritstj.fltr.: (ílsli Sigurðsson
Aujílýsin>íar: Arni (iarðar Kristinsson
Ritstjórn: Aðalstræti 6. Slmi 10100
Finnur Jónsson og Tómas Þor-
valdsson svöruðu eins og undan-
farandi vitni.
Þess skal getið, að kaupmaður
var ekki sjáifur viðstaddur vitna-
leiðslurnar en sendi undirkaup-
manninn, Berthel Ölandt, sem
fulltrúa sinn.
Framhald í næsta biaði.
BRIDGE
Flestir spilarar þekkja svonefndar varnarsagnir,
sem oft gera þeim spilurum, sem hafa sterkari
spilin, lífið ákaflega erfitt. Eftirfarandi spil er frá
keppni í Bandaríkjunum fyrir nokkrum árum og
skýrir það betur en nokkur orð hve erfitt er að
segja gegn þessum sögnum.
NORÐUR:
S: 10-9-8-4-2
H: 9-3
T: 8-6
L: 9-4-3-2
VESTUR:
S: Á-6
H: K-8
T: Á-7-3-2
L: K-G-10-8-7
AUSTUR:
S: —
H: Á-D-10-7-6-4-2
T: 10-5
L: Á-D-6-5
SUÐUR:
S: K-D-G-7-5-3
H: G-5
T: K-D-G-9-4
L: —
Sagnirgengu þannig:
NORÐUR:
Pass
6 spaðar
AUSTUR:
1 hjarta
Dobl
SUÐUR:
4 spaðar
Allir pass
VESTUR:
4 grönd
Suður segir 4 spaða, sem er ágæt sögn, hvort
sem um er að ræða varnarsögn eða úttektarsögn,
þrátt fyrir að suður hafi i upphafi sagt pass.
Vestur sýnir sterk spil með 4 gröndum og norður
er vel á verði og gerir sér strax grein fyrir að
andstæðingarnir eiga mikla möguleika á slemmu.
Til þess að koma í veg fyrir að A.—V. geti gefið
hvor öðrum upplýsingar segir norður 6 spaða,
sem er mjög góð sögn og varð aðeins 3 niður.
A.—V. geta unnið alslemmu í hjarta og einnig í
laufi, en erfitt er fyrir þá að segja eftir þessar
kröftugu varnarsagnir.