Lesbók Morgunblaðsins - 19.05.1974, Side 15

Lesbók Morgunblaðsins - 19.05.1974, Side 15
Sagan af Tóklafusi w Hér að ofan er Tóklafus, en það er fris GuSmundsdóttir, Nönnusttg 3 t Hafnarfirði, sem sendir teikninguna og söguna af honum. fris er 1 0 ára. Einu sinni var prófessor og hann hét Tóklafus. Hann bjó einn í litlu húsi. Eit sinn er Tóklafus var á labbi, sér hann mús og kött og hund labba saman eftir götunni. Gekk hann þá að dýrunum og ætlaði að klappa þeim, en þau hvæstu þá á hann. Tóklafus hljóp þá burtu og hlupu dýrin á eftir honum alla leið inn F húsið hans. Tóklafus spurði þau hvað þau hétu. Músin sagðist heita Trítla, kötturinn Brandur og hundurinn Snati. Snati sagði, að þau hefðu átt agalega góðan húsbónda, sem hét Tókla- fus, en nú væri hann dáinn. Tóklafus sagði: „Ég er húsbóndi ykkar. Ég heiti Tóklafus. Og ég hef átt ykkur öll." Dýrin sögðu: „Já, það ertu sannarlega. Þetta er gamla húsið og skórnir og hatturinn og slaufubindið gamla." Dýrin og Tóklafus voru mjög ánægð yfir því að hittast aftur. Endir. íris Guðmundsdóttir, 10 ára, Nönnustíg 3, Hafnarfirði. Mikið hús er Háteigskirkja og misjafnlega kemur hún mönnum fyrir sjónir. Þessi teikning er eftir Einar Sverrir Sandoz, sem aðeins er 7 ára. Þannig kemur Háteigskirkja honum fyrir sjónir. AUGLÝSINGATEIKNISTOFA MYNDAMÓTA Adalstræti 6 sími 25810 Baltasar Framhald af bls. 9 stóra heimi kýs sér hólmann okkar til búsetu og er efst i huga að túlka íslenzk viðfangsefni þá mætti halda að Listasafn íslands héldi vöku sinni. Á þeim tveimur sýningum. sem Balt- asar hefur áður haldið hér, sniðgekk innkaupanefnd safnsins hann alger- lega. Og nú, þegar hann þótti verð- ugur þess að halda sýningu á Kjar- valsstöðum, lét nefndin ekki sjá sig að heldur og festi þar af leiðandi ekki kaup á neinu, sem þar var völ á. Af viðtökunum á sýningu Baltas- ars á Kjarvalsstöðum mátti sjá svo ekki varð um villst, að myndir hans fengu geysisterkan hljómgrunn hjá hinum almenna sýningargesti, sem fyrst og fremst lætur eigin smekk og tilfinningu ráða, en breytir ekki um skoðun, þótt krttikin komi i bága við skoðanir hans. þegar menn finna þannig greiða leið að hjörtum áhorf- enda, lætur öfund og illgirni sjaldan á sér standa. Meðal annars hefur það komið i Ijós i svokallaðri gagn- rýni, sem einhver kvenmaður skrifar i Visi og ekki er hægt að flokka undir neitt annað en magaveiki eða ill- girni. Neikvæðir tilburðir hennar gagnvart sýningu Baltasars voru ná- kvæmlega eins og fyrirfram mátti búast við; af slíkum gagnrýnanda vex ekkert blað. Niðurrifsmenn eins og þessi kvenmaður þrástagast jafn- an á því sem einhvers konar við- bjóði, að þessi eða hinn málarinn máli sölumyndir. Hvers vegna það er glæpur að sýningargestur hrifist svo mjög, að hann langi til að eignast mynd, er hinsvegar óútskýrt. Það er mannhatur, sem liggur á bak við þessar skoðanir, gerir ævinlega ráð fyrir að einhverjir ofstækispáfar eigi að hafa vit fyrir hinum almenna manni. Hann á aldrei að geta haft vit á neinu. Hins vegar á hann að láta hinn rétta aðila segja sér, hvað er rétt og hvað er rangt. Eins og jafnan áður voru lands- lagsmyndirnar á sýningu Baltasars i þungum litum. Hann notar einfaldan litastiga og verður ekki vændur um, að hann skreyti myndir sinar til þess að gera þær útgengilegar. Eftir því sem ég bezt fæ séð, voru myndir Baltasars á þessari sýningu talsvert misjafnar að gæðum. Það verður líklega að teljast eðlilegt á svo stórri sýningu. í því sam- bandi má rifja upp að einmitt það gat verið einkenni þess mikla meistara í islenzkri myndlist, sem léð hefur sýningar- húsinu nafn. Það er misjafnt hvernig menn líta á þetta; sumir eru varfærnir og hneigjast til að sýna aðeins fáar myndir, sem þeir telja góðar. Aðrir láta allt gossa. Ég er ekki frá því að Kjarval hafi til dæmis látið full margt gossa, sem betur hefði farið aðra leið. En hvorki er liklegt að magnið né heldur moðið, ráði dómi sögunnar. heldur hátind- arnir, þarsem guðsnáðin eraugljós. Sá hluti sýningarinnar, sem Balt- asar nefndi Ecce Homo. reis að minni hyggju hæst sem listrænt framlag. Kvenmaðurinn í Vísi hneykslaðist að visu á fjölbreytileik sýningarinnar. Vonandi heldur Vísir áfram að seljast fyrir þvi. Ég er hinsvegar á þeirri skoðun. að þessi tilbreyting hafi verið ávinningur, vegna þess að sterk, persónuleg ein- kenni I vinnubrögðum. tengdu ann- ars ólik verk saman. Og þarna kom berlega i Ijós gamalt fyrirbæri, að Ijótar myndir geta verið mynda bezt- ar. Ég á þar til dæmis við mynd eins og Dauða Che Guevara, suður-amer- iska byltingarforingjans, sem allir þekkja. Það var mögnuð mynd i lit og formi en fráleitt verður hún talin stofulist. Sama gildir um aftöku- myndina, sem að einhverju leyti minnir á samskonar mótiv eftir Goya. í spánskri myndlist er ákveð- inn þráður, sem Baltasar hefur kom- izt I sterka snertingu við. Arfurinn er að sunnan, en útsýnið gjarnan í norður. þar sem Drangey siglir eins og skip á miðjum firði. Fyrir mitt leyti er ég þó ekki i neinum vafa um hvar myndlist Balt- asars reis hæst á þessari sýningu. Þar á ég við portrettið af Thor Vil- hjálmssyni rithöfundi. Bragi Ásgeirs- son gerði þetta portret mjög að um- talsefni í ágætri gagnrýni i Morgun- blaðinu og get ég algerlega tekið undir það, sem hann sagði sérstak- lega um portrettið af Thor: ,,. . . væri ég illa svikinn ef sú mynd er ekki merkasta framlag hans til þeirrar myndgerðar (portretlistar) fram að þessu. Sú mynd ber af öllum sltkum myndum, sem ég hef séð frá hans hendi og aðrar slikar myndir á sýningunni blikna við hlið hennar. Baltasar reynir ekki að fegra Thor á neinn hátt, heldur málar hann eins og persónan kemur honum fyrir sjón- ir, þræðir Iftt ytra útlit, það ernánast aukaatriði, hér er það hinn úfni og ábúðarfulli karakter skáldsins og heimsborgarans sem máli skiptir og einmitt þess vegna verður myndin sannfærandi og sláandi hliðstæða persónunnar. Ég veit ekki hvort Balt- asar gerir sér Ijóst, að með þessari mynd er hann að gera islenzkri myndlist mikilsvert gagn, en svið portret-listarinnar hefur verið næsta fáskrúðugt hérlendis fram að þessu og listgreinin misskilin. . ." Hér var ekki um neinskonar yfir- litssýningu að ræða, heldur aðeins áfanga á langri leið. Greina má ákveðna þróun i myndlist Baltasars, einkum i þá veru að meiri fjölbreytni gætir i litanotkun. Mér finnst það góð þróun og hygg að kynni af is- lenzkri náttúru eigi sinn þátt í henni. Gisli Sigurðsson

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.