Lesbók Morgunblaðsins - 18.05.1975, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 18.05.1975, Blaðsíða 8
Bærinn á Steinsstöðum 1886. Úr bók Henry Labonnes. Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur: / IGOMLUM FERÐABÓKUM ISLAND eftir Gustav Georg WINKLER Qtg. 1861 og L'ISLANDE eftir dr. Henry LABONNE útg. 1888. Steinsstaðir 1858. Úr bók Winklers. ©fcínfiafcir int Ccjiiatalr, 9!arMani). Það er sitthvaó forvitnilegt í gönilum ferðabókum. Þær eru orðnar ærið margar, raunar ótrúlega margar, ferða- bækurnar, sem erlendir ferða- menn hafa skrifað um Island. Eðiilega eru þessar bækur mjög misjafnar að gæðum. Meðal þeirra eru öndvegisrit, gagnmerk- ar heimildir um land og lýð. Miklu fleiri eru þó þær miðlungs- góðu, og ófáar eru hcldur ómerki- Icgar, en eitthvað bitastætt f flest- um. Það er sameiginlcgt mörgum hinna erlendu ferðabóka, að þær eru eftirsóttari til eignar en lestr- ar. Sumar þeirra virðast vera á stöðugu flakki milli bókasafna einslakiinga, bókauppboða og fornbóksala, og geta þær hafa far- ið margar slfkar ferðir án þess að sðð verði að þær hafi nokkurn- tíma verið lesnar. 1 sióasta jólaleyfi var ég að glugga í eina slíka bók. Sú ber heitið L’Islande et l'archipel des Færæer (ísland og eyjaklasinn Færeyjar). Bók þessi kom út i Paris 1888. Höfundur hennar er dr. Henry Labonne, sem var ritari franska landafræðifélagsins þeg- ar hann tókst á hendur ferð til lslands sumarið 1886, og aðra vor- ið eftir til Islands og Færeyja. Þessar ferðir fór Labonne á veg- um franska kennslumálaráðu- neytisins (Ministére de l’Instruction publique) og beinlin- is i þeim tilgangi að skrifa bók um tsland, það land sem hann i for- mála bókarinnar nefnir „þetta einstæða, norðlæga landsvæði, þar sem háð er linnulaust stríð milli tveggja andstæðra höfuð- skepna, iss og elds“. Hann tilfærir einnig í formála þau rök fyrir útgáfu bókarinnar, að á Englandi komi út einar tvær bækur um island ár hvert, en Frakki hafi ekki skrifað bók um það land síð- an ritverkið um Gaimard- leiðangurinn kom út. Og þótt það hafi verið traust heimild um 1840, gefi það að sjálfsögðu ekki rétta mynd af Islandi nútimans, því þar hafi, eins og annarsstaðar, orðið framfarir á öld þegar meira breyt- ist á einum degi en áður á ári. Labonne tók sér far frá Leith til Reykjavíkur snemmsumars 1886 með gufuskipinu Camoens og kom til Reykjavíkur þoku- drungaðan sunnudag seint í maí. Þetta sumar gerði hann víðreist um landið. Hann ferðaðist fyrst um Suðurland, um Krísuvik og Eyrarbakka allt austur að Sól- heimum í Mýrdal, en síðan til Fljótshliðar, Heklu, Geysis og Þingvalla. Eftir þessa Suður- landsferð hélt Labonne til Norðurlands, um Kaldadal og Arnarvatnsheiði niður í Vatnsdal, þaðan sem venjulegasta leið ligg- ur til Akureyrar og áfram austur á Húsavik. i bakaleið fór hann frá Akureyri um Svarfaðardal og Heljardalsheiði til Hóla, en þaðan þá leið, sem hann nefnir Skóla- piltaleið, vestur í Hrútafjörð og um Holtavörðuheiði, Borgarfjörð, Hvalfjörð og Svínaskarð til Reykjavíkur og utan með Camoens eftir um tveggja mánaða dvöl á Islandi. Arið eftir lagði Labonne af stað frá Cherbourg með frönsku skipi, l’Indre, þegar um miðjan april. Skipið kom upp undir Island suð- vestur af Reykjanesi og hélt síðan austur með suðurströndinni til Austfjarða. Labonne fór i land á Eskifirði til þess að skoóa hina frægu silfurbergsnámu á Helgu- stöðum, sem Frakkar höfðu siðar fengið á leigu. Þaðan fór hann yfir Fönn niður á Hérað og um Fjarðarheiði til Seyðisfjarðar, en þaðan með skipi á vegum Wathne- bræðra til Færeyja síðast i mai. Bók Labonnes er tvíllaust í tölu þeirra ferðabóka um Island, sem merkar mega teljast og eru enn áhugaverð lesning. Höfundur er glöggskyggn og leggur sig fram um sannorða og greinagóða lýs- ingu á landi og þjóð. Hann hrífst af náttúru landsins, en náttúru- lýsingar hans eru lausar við þann væmna fjálgleik er lýtir sumar ferðabækur um Island, einkum þýzkar. Hástemmdur verður hann þó einu sinni, er hann lýsir fegurð Svarfaðardals, staddur að Urðum síðla kvölds 10. ágúst. 1 kirkjunni á Völlum hafði hann fyrr sama dag skoðað altaristöflu eftir „ís- lenzkan Gustave Doré“. Labonne hælir mjög aðalleið- sögumanni sínum, Þorgrími Guð- mundsen, kennara, fyrir gáfur, fróðleik og heimsmannslega framkomu. Vafalitið hefur það ráðið verulegu um gæði margra ferðabóka um Island, hversu heppnir höfundar þeirra voru með fylgdarmann. Sitthvað kemur Labonne kynduglega fyrir sjónir. Eftir að hafa lýst legsteini Jóns Sigurðs- sonar forseta i kirkjugarði

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.