Lesbók Morgunblaðsins - 15.06.1975, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 15.06.1975, Blaðsíða 4
Nú er algengt að sjö feðurna klœða börnin gæfur að börnin gátu æft sig að sitja á honum. Hann var alltaf hafður heima við tii taks fyrir þau. Stundum var farin hópferð til Sauðárkróks til að komast í sundiaug. Það þjónaði bæði þeim tiigangi að vera heilsusamlegt og um leið góð hreinlætisráðstöfun. — Hvernig hagaði tif með tilliti til öryggis? — Við vorum fremur vel sett að því leyti. Mikið öryggi var einnig að vera svo skammt frá Sauðár- króki en þar er héraðslæknir og flugvöliur, ef á þarf að halda. Vík er aðeins 9 km fyrir innan kaup- staðinn. En við vorum svo lánsöm að engin stór óhöpp yrðu á meðan börnin dvöidu hjá okkur. Þó segist Áslaug ekki hafa vilj- að taka þá áhættu að láta senda börnin norður á eigin spýtur eða í fylgd og umsjón annarra. Eftir að mágkona hennar hætti að koma norður á sumrin, en með henni höfðu börnin haft góða samfylgd, fór hún sjálf til Reykjavíkur á vorin og sótti börnin öll í sömu ferð. Sú varúð reyndist ekki alveg ástæðulaus. 1 seinustu ferð, sem hún hélt með barnahópinn norð- ur, atvikaðist það svo að þau lentu í umferðarslysi. — Þó svo vel vildi til að börnin meiddust lítið sem ekkert, var ég þakklát fyrir að vera til staðar, þeim til hughreystingar, segir hún. — Voru ástæður foreldra þeirra barna, sem hjá þér dvöldu, á ein- hvern hátt sérstæðar eða erfiðar? — Nei, alls ekki. Ég hvorki gat né vildi leggja mat á ástæður, heldur leit ég svo á, að öll börn þyrftu og ættu jafnan rétt á að njóta sumardvalar í sveit. Ekki var hægt að anna eftirspurn og oft varð að vísa frá fleiri börnum en við gátum tekió hvert sumar. Það var þvl að ráðast hvaða börn við tókum hverju sinni. Eitt sinn var ég beðin að taka vanheilt barn til dvalar. Ég ákvað að taka barn- ið, því hvers átti það að gjalda? — Kom aldrei til að fjölga dval- arbörnum? — Til þess kom ekki. Annað hvort er að reka slík heimili stórt og skipulega, og það hefur sínar neikvæðu hliðar, eða að halda heimilisfólki í hæfilegum fjölda og miða reksturinn ekki við ann- að en það, að dvalargjald standi undir útgjöldum. — Var þetta þakklátt starf? — Já, vissulega var starfið þakklátt. Börn þau sem hjá okkur dvöldu hafa mörg hver, haldið sambandi við okkur. Þau hafa enn ánægju af því að minnast þessa tíma, þó þau séu komin á fullorðinsár. Það er okkur ekki síður ánægjulegt, því tengsl hljóta að myndast við börn, sem dvelja jafnvel sumar eftir sumar á ekki stærra heimili en var hjá okkur. En að því kom að Áslaug hætti rekstri sumardvalarheimilis i Skagafirði. Þegar hennar eigin börn voru vaxin úr grasi og farin að heiman til mennta og starfa, leitaði hún nýrra verkefna. M.a. stundaði hún kennslustörf við unglingaskólann í Varmahlíö i tvo vetur. Eftir það fluttist hún aftur til Reykjavikur, en þangað var maður hennar kominn nokkru áð- ur og tekinn við starfi sínu sem framkvæmdastjóri Landverndar. — Og nú hefur þú þurft að taka ákvörðun um framtiðarstarf í annað sinn eins og svo margar konur þurfa að gera, eftir að þær hafa alið upp sín eigin börn og skilað þeim á leið út á sjálfsögða athafnabraut. — Fyrir þig hefur það ekki verið vandaverk? — Ef til vill ekki. Þó hafði ég ekkert visst i huga, þegar ég kom hingað að norðan. Hefði getað hugsað mér að starfa sem fóstra og bæta upp að ég byrjaði eigin- lega aldrei á byrjuninni. En ein- mitt um sama leyti og ég kom til Reykjavíkur árið 1972, var veriö að undirbúa stofnun þessa heimil- is. Og mér bauðst starf forstöðu- konu. — En felur ekki starf forstöðu- konu í sér fóstrustarfið á vissan hátt? — Nei, ekki beint. Fóstra er með börnunum allan daginn, en það er forstöðukona ekki, nema að takmörkuðu leyti og sérstak- lega ekki á þetta stóru dagheimili. Hún hefur i ýmis önnur horn að líta, þar sem daglegur rekstur heimilisins byggist á hennar starfi. Auk þess tekur hún ábyrgðina á starfinu og heimilinu með sér heim að loknu dagsverki. Það gerir fóstran ekki, nema þann tíma, sem börnin eru undir hennar handleiðslu. Alltof fáar ungar fóstrur vilja gerast for- stöðukonur. En ég hef hér yfir engu að kvarta, heldur Áslaug áfram. A þessu heimili er mikil og náin samvinna. Ef til vill orsakast það meðfram af þvi að við tókum allar þátt í að gera heimilið starfhæft í byrjun. A meðan við göngum um húsið, lýsir Aslaug aðstöðu og starfshátt- um á heimilinu: — Eins og sjá má er húsið gam- alt, byggt í lok fyrri heimsstyrj- aldar eða um 1918. Og þá auövitað sem einbýlishús en ekki með nú- verandi þarfir í huga. Þegar ríkið keypti húsið sem dagheimili fyrir börn stúdenta, var það skipulagt og endurbætt með það fyrir aug- um. Má telja að vel hafi til tekist. Þó húsið uppfylli ekki öll skilyrði sem barnaheimili, hentar það að ýmsu leyti vel. Til útivistar er aðstaðan þó óhagstæð vegna rúm- leysis og mikillar umferðar. Það er litríkt umhverfi, sem fyrir augu ber, þegar litast er um innanhúss. Hver deild hefur gott húsrými fyrir sig. Hvert sem litið er, eru bjartir og glaðir litir og myndskreytingar við hæfi hvers aldursflokks. Þegar við komum í þriggja-ára deild, sitja þar nokkr- ir ungir og efnilegir menn við © Áslaug fluttist um árabil með manni sínum að Vlk f Skagafirði, og sést bærinn ð myndinni að neðan. Þar er elzta steinhús ( Skagafirði. byggt 1908. Um tlma rak Áslaug þar sum- ardvalarheimili fyrir börn og sést með barnahópinn sinn á myndinni til vinstri. Að neðan er Valhöll við Suð- urgötu, þar sem Barnaheimili stúdenta er til húsa. hringborð og teikna og lita af miklum áhuga í nærveru fóstru sinnar. I einni stofu á annarri hæð bíða mjúkar dýnur á gólfi eftir þreyttu fólki, sem þarf að fá sér miðdagsblund innan stundar. Önnur stofa er þéttskipuð smá- rúmum fyrir yngsta fólkið á heim- ilinu. Þar eru tjöld dregin fyrir glugga og allt tilbúið fyrir langan og góðan miðdagslúr. I kjallara hússins er samkomu- salur. Þar er börnunum safnað saman til leikja og kvikmynda- sýninga, þegar svo stendur á. Þá getur komið fyrir að einhver missi kjarkinn, þegar ljós eru slökkt eða eitthvað annað óvænt ber til. — Það er athyglisvert, segir As- laug, að þegar slíkt hendir sækja börnin ekki sérstaklega til sinnar fóstru, heldur leita hughreysting- ar hjá hverri okkar, sem nær- stödd er. Það gefur til kynna þá eðlilegu samkennd, sem myndast milli barnanna og heimilisfólks- ins í heild. A heimilinu starfa 10 manns, fóstrur, nemar og aðstoðarstúlk- ur. Matráðskona er Ingunn Ólafs- dóttir, en hún starfaði um langt árabii sem fóstra á barnaheimil- um í Reykjavik og er mörgum að góðu kunn frá því starfi. Heimilið rúmar 57 börn. Börnin eru þar frá 10 mánaða til 6 ára aldurs. Þótt félagsstofnun stúdenta reki þetta heimili eru einnig börn annarra foreldra tek- in á heimilið. — Sú regla er höfð um börn stúdenta, að hvert barn á rétt til dvalar í þrjú ár en ekki Iengur, segir Áslaug. Þar er miðað við að foreldri barnsins, sem oftast er faðirinn, hafi lokið námi á þess- um tíma, og þá beri barninu að rýma fyrir öðru, þar sem foreldr- ar eru enn í námi. Nú þykir mörg- um þetta fyrirkomulag ekki rétt- látt, þar sem móðirin hefur oft orðið að bíða með sitt nám á með- an faðirinn lauk námi. En algengt mun vera að hún vinni fyrir heim- ilinu þennan tfma. Móðirin ætti því að hafa sama rétt til dvalar fyrir barnið í önnur þrjú ár, á meðan hún stundar sitt nám. Hvort reglum verður breytt í sam- ræmi við þetta er enn ekki ákveð- ið. . — Jafnrétti hefur sem sagt ekki enn náð á leiðarenda? — Ekki að þessu leyti. Þó er mikil breyting sýnileg í samvinnu foreldra frá því sem áður var. Algengt er nú að sjá feðurna klæða börnin og koma þeim af stað, þótt báðir foreldrar séu við- staddir, þegar börnin eru sótt hingað, enda er það skiljanlegt, þvi oftast er móðirin að koma þreytt frá vinnu. — Hvað um karlmenn í fóstur- störfum? Hafa þeir lært þau störf? — Það hefur ekki tiðkast hér á landi. En tvímælalaust ætti svo að vera. Karlmenn hafa þó unnið á leikskólum hér og þótt það mjög skemmtilegt starf. 1 Danmörku starfa fóstrar á barnaheimilum. Með því fá þeir einnig styttan herþjónustutíma sinn. — Þar gæti einnig komið til að launin eru lág. Fóstrur hafa t.d. lægri laun en kennarar og dreifist þó vinnutimi þeirra á lengri tíma af árinu. — Svo virðist sem karlmenn ættu að geta lifað af sömu launum og konur? — Ég tel að það yrði til hags- bóta fyrir alla aðila, ef leikskólum væri fjölgað til muna en minna fé lagt til reksturs dagheimila, sem eru miklu fjárfrekari stofnanir. Sú hugmynd byggist á þeirri hag- fræði að almenn aðstoð við ein- stæða foreldra nýttist betur með því að greiða þeim laun fyrir háls- dags starf á heimilum sínum, en auka siðan vistrými á leikskólum nægilega mikið til að taka vð börnum þeirra þann hluta dags- ins, sem foreldrarnir sæktu til starfa utan heimilis. Með því mætti einnig bæta laun þeirra, sem starfa við leikskólana. Þar hef ég líka í huga reynslu í starfi minu af því að skilja börn og foreldra ekki að meira en þörf krefur. Ennfremur er það álit mitt að æskilegt sé að sem flest börn fái að njóta vistar á leik- skóla. — Áður en við Ijúkum þessu spjalli: Hversvegna valdir þú þetta lifsstarf? Þeirri spurningu telur Aslaug ekki svo auðsvarað sem ætla mætti. Margir þættir tengjast í atburðum einnar mannsævi og eru ekki alltaf auðséðir, segir hún. Áslaug Sigurðardóttir er fædd að Hvítárbakka í Borgarfirði. Faðir hennar, Sigurður Þórólfs- son, stofnaði Hvitárbakkaskóla og var skólastjóri. Móðir hennar var Ásdis Þorgrímsdóttir. Foreldrar hennar fluttust til Reykjavikur, þegar hún var barn á öðru ári. Þar ólst hún upp og stundaði skólanám. Eftir það fór hún til Englands, til dvalar á heimili (Jr- súlu Moray Williams, en hún var systir Barböru Arnason listmál- Framhald á bls. 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.