Lesbók Morgunblaðsins - 15.06.1975, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 15.06.1975, Blaðsíða 11
ÝMIS- KONAR METFÉ 1975 Árið 1975 verður ekki ár drekanna, enda ekki við að búast eins og ástandið er í orku- og efnahagsmálum. í stað þess að auglýsa nokkurra þumlunga lengingu og dálitla breikkun frá í fyrra, er nú keppst við að auglýsa hið gagnstæða. Buick kemur í fyrsta sinn nú með fremur lítinn bíl, Buick Skyhawk, 5,40 m á lengd. General Motors hefur kynnt stórminnkaða útgáfu af Cadillac, flaggskipinu sjálfu. Mustang er nú talsvert minni en hann var fyrir tveimur árum og í fyrsta sinn kemur amerískur smábíll á markaðinn, sem vekur mikla athygli: Pacer frá American Motors. í Evrópu hefur komið fram ný gerð af BMW með minni vél en áður, auðkenndur með BMW 518. Eítir nærri tvo áratugi er komin ný gerð af Citroen, sem er rúmlega 20 cm styttri en verið hefur og var hann kjörinn bíll ársins í ár. Það kjör fer fram hjá nokkrum evrópskum bílablöðum. — / BILAR Sá viðbragðsfljótasti Þeir bílar eru venjulega ekki taldir með, sem einvörðungu eru byggðirfyrir þðtttöku I kappakstri. En af fjöldaframleiddum sportbílum, er hinn Italski Lamborgini Countach LP 500 fljótastur I viðbragði. Hann kemst úr kyrrstöðu I 100 km hraða á 4,5 sek og er hálfri sek fljótari en keppinauturinn Ferrari. Þessi Lamborghini er með 12 strokka vél, 480 hestafla. Til þess að maður komist örugglega milli bensinstöðva, tekur tankurinn 140 Htra. Hámarkshraðinn er 300 km á klst. Eyðslan: 3—6 km á lltranum. Það vill svo til, að Lamborghini Countach er líka dýrasti sportpill sem völ er á. Samkvæmt verðinu I Danmörku, ætti hann að kosta rétt innan við 16 milljónir króna. En þrátt fyrir allt er haldið áfram að framleiða stóra bíla, dýra bila, hraðskreiða bíla og þar fram eftir götunum. Sé litið á framleiðslu ársins og eitt og annað borið saman, vekur eftirfarandi til dæmis athygli: Sá dýrasti Ekki eru nærri allir btlar fáanlegir hér á landi, en hér verður stuðzt við danskan verðlista. Samkvæmt honum er dýrasti bíll heimsins MERCEDES BENZ 600. Það er hin svonefnda þjóðhöfðingjaútgáfa, sem páfinn I Róm notar, svo og ýmsir oliufurstar I Austurlöndum. Lengdin er 5,54 m, þyngdin hálft þriðja tonn og þrátt fyrir allt er viðbragðið eins og hjá hörku sportbilum, eða 9,5 sek I 100 km. Hámarkshraðinn er 208 km á klst. Vélin er þrátt fyrir allt ekki nema 250 hestöfl. Samkvæmt verðinu i Danmörku ættu þessi herlegheit að kosta hér á landi kr. 22,050.000,- liðlega tuttugu og tvær milljónir. I þeirri verðskrá. sem hér um ræðir, var ekki minnzt á Rolls Royce. Eftir þvi sem bezt er vitað mun verðið á dýrustu gerð hans vera mjög ámóta við verðið á Mercedes 600. Sá hraðskreiðasti Italskir sportbilar eru I sérflokki hvað viðbragð og hámarkshraða áhrærir. Hvað hámarkshraða áhrærir hefur Ferrari BB Berlinetta nauman vinning. Hann er talinn ná 302 km hraða, en Lamborghini 300. Maserati nær 280 km hraða. Þessi Ferrari er með 12 strokka vél, liðlega 400 hestafla og eyðslan er 1 lítri 3—6 km. Ferrari hefur lengi verið talinn einn af finustu sportbilum heimsins, en af einhverjum ástæðum er verðið á honum lægra en á hinum viðbragðsfljóta Lamborghini. Ferrari kostar aðeins rúmlega 14 milljónir króna. Sá sparneytnasti Dönsk skýrsla um bensineyðslu btla kemur heim og saman við niðurstöður i sparakstruskeppninni hér i fyrrasumar. Eyðslugrennsti bíllinn virðist vera Citroen 2 Cv, sem stundum er nefndur „Bragginn". Venjuleg eyðsla hans er talin vera 1 lítri 18—21 km en i sparakstri er jafnvel hægt að komast 25 km á litranum. Vélin er 26 hestöfl, framhjóladrif eins og alltaf á Citroen, hámarkshraðinn 98 km á klst. og að komast i 90 km hraða tekur bilinn 24,6 sek. Sá lengsti Eins og við mátti búast er Cadillac lengsti fólksbill, sem völ er á; nánar tiltekið Cadillac Fleetwood Sixty Brougham. Þetta flaggskip General Motors kemst ekki nema 8—11 km á litranum, en hámarkshraðinn á drekanum er 200 og viðbragðið 10,5 íhundraðið. Samt hefur verið dregið úr vélarstyrk frá því sem verið hefur og er það gert með tilliti til ástandsins i orkumálum. Cadillac Fleetwood kemst ekki i nein smástæði, þvi hann er 5.88 m á lengd. Breiddin er 2.03 m og hann vegur 2400 kg. Sá minnsti Yfirleitt eru Japanir engir stórgripir að vexti og þvi er vel við hæfi að minnsti bill heimsins er einmitt framleiddur i Japan. Hann heitir Mitshubishi Miniea og er aðeins 2.99 m á lengd. Breiddin er 129 cm og þyngdin 505 kg. Snjóflóðið í Goðdal Framhald af bis. 9. mjólkurblandi, en henni vildi svelgjast á þvi. Var þvi líkast sem hún hefói ekki þrótt til að renna því niður. Var þvi hætt við það. Tök þá læknirinn að reyna að ylja á henni fæturna, sem voru stein- dcfnir upp að knjám, í höndum sínum. Bað hann mig einnig að gera það. Vorum vió nokkuð lang- an tíma við þetta, og var ylur farinn að færast nokkuð niður eftir fótunum á henni er við hætt- um. Einnig vermdum við hendur hennar. En eftir þvi sem lengur leið, virtist hún verða fölari i and- liti, og ekki hresstist hún neitt við þetta. Allt í einu var sem hún fengi einhver óþægindi i hálsinn og reyndi að hreyfa höndina, sem lifmeiri var, þá vinstri. En þetta skipti engum togum. Hún fékk strax eins og aðkenningu af hiksta, sem endurtók sig fimm eóa sex sinnum. Siðan tók hún andvörpin. Ég leit undan og gekk í burtu. Hjartað hafði bilað, ekki þolað hina snöggu breytingu, er blóðið fór að renna viðar, um lika- mann. Eftir að hún kom úr fönn- inni mun hún hafa lifað nálægt fjórum klukkustundum. Skömmu siðar voru þær Svan- borg og Guðrún bornar inn i hús- in, báðar liðin lík. Nú var ekkert meira hér að gera, nema að tygja sig af stað. Hólmvikingar nokkrir voru komnir, og tóku þeir að sér að fara með Jóhann til Hólmavík- ur. Fór læknirinn með þeim. Þar á eftir var farið með líkin öll í einu á tveimur sleðum, því Páll á Eyjum og Bernódus Sigurðsson höfðu komið um nóttina með hest og sleða til þessa. Þrjár mjólkandi kýr voru i Goðdal, og tókum við þær einnig með okkur ofan í fjörðinn. Þegar við komum ofan úr dalnum, var farið að birta af degi. Enginn af öllum þeim mönnum, sem þarna voru staddir, um þrjá- tíu manns í lokin, mun gleyma þessari nóttu. Sem betur fer ger- ast atburðir sem þessir ekki oft hér um slóðir. Hér er hvorki i sögusögnum né í minnum núlifandi rnanna neitt sambærilegt til, er likja megi við þær ógnir, er við hér höfðum |orðið áhorfendur að. Þann 12. hafði slysið orðið, en ekki fyrr en þann 16., þegar klukkuna vantar einn stundarfjórðung i þrjú, eru menn þangað komnir. Það eru því jfjórir sólarhringar, sem fólkið er í fönninni. Hefðu menn hins vegar vitað strax um slysið, er snjóflóð- ið féll, mundi trúlega fimm mannslífum hafa verið bjargað. En eftir þennan tima allan, var þess ekki að vænta, að neinn héldi lifi. Aðeins vegna sérstaks hraust- leika Jóhanns, hélt hann lifi. 1 þeim eina tilgangi er atburður þessi hér uppskrifaður, að það megi verða til varnaðar, svo að enginn freisti þess að reisa sér híbýli í dal þessum framar. Dalur- inn er allur undirlagður snjó- flóðahættu, og mun svo verða óra- framtíð enn.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.