Lesbók Morgunblaðsins - 13.07.1975, Side 11

Lesbók Morgunblaðsins - 13.07.1975, Side 11
ÞJÖÐ- MINJAR Eftir Þör Magnússon þjöðminja- vörð Ljósm. Gísli Gestsson. STEINA- SÖRVI „En á brjósti breiða steina", segir í Þryms- kviðu þar sem lýst er því, hversu æsir bundu Þór brúðarlíni áður en hann færi í Jötunheima í gervi Freyju. Öll er lýsingin næsta ferleg í kvæðinu enda víst frekar ætlazt til að frásögnin skemmti mönnum en að hún skyldi vera trúverðug. Þeir breiðu steinar, sem lágu á brjósti Þórs og hjálpa skyldu til að gera hann kvenlegan, eiga lik- lega að tákna steinasörvi, sem algeng voru til forna sem skartgripir. Þau voru eins konar perlufestar, bornar um hálsinn, en perlurnar, eða tölurnar, sem eðlilegra er að kalla þær, voru tíðast úr gleri. en einnig alloft úr rafi og jafnvel úr agati og bergkrístöllum. Slik steinasörvi finnast alloft í kumlum, einkum konukumlum, en einnig stundum í kumlum karla. Þá finnast einstakar tölur alloft í mannvistarleifum frá víkingaöld, enda hafa steinasörvin þá mjög verið í tízku svo og á tímunum fyrir víkingaöld. Tölurnar liggja í gröfunum á hálsi hins framliðna, hafa yfir- leitt verið margar saman, en fyrir kemur, að þær hafi aðeins verið örfáar, jafnvel ein og þá nokkuð stór, og er það algengara þegar um karlmenn er að ræða. En karlmenn hafa þó fremur sjaldan borið slíkar tölur eftir haugfé að dæma, og má þó nefna, að í Heiðar- víga sögu segir. að Barði Guðmundsson hafi borið sörvi. Langflestar eru tölurnar úr gleri, tíðast bláu, og frekar smáar. Stundum eru þær aflangar og liðskiptar, eins og margar tölur sam- an, stundum þá slifraðar innan. Sumar tölurnar eru allstórar og þá jafnvel marglitar, mislitt gler brætt saman, eins konar mósaík. — Sennilega eru glertölurnar gerðar suður í Rínarlöndum, í Karlunga- ríkinu, þar sem slik gler- iðja var mikil. Veglegustu tölurnar eru yfirleitt þær, sem eru úr rafi, þessari gulleitu, stein- gerðu trjákvoðu, sem hefur alla tíð, allt frá stein- öld og til vorra daga, verið eftirsótt í skartgripi. Raf finnast i ríkum mæli á ströndum Eystrasaltsins, einkum í baltnesku löndunum, og rekur oft vestur á Jótlandssíðu, og norrænir menn hafa á víkingaöldinni notað rafið i stórum stil i sörvistölur, og er þá nafnið steinasörvi, sem djásnið hét til forna, auðskilið. Steinasörvin hafa verið hin fegurstu djásn þar sem þau héngu um háls kvenna og karla, marglit og skín- andi. Ein og ein framandi tala hefur verið þar á meðal, úr agati, surtar- brandi eða jafnvel beini, og þá hefur heldur ekki verið ótítt, að borað væri gat á silfurpening og hann sett- ur á sörvið með tölunum. Sörvið, sem hér er mynd af, er fundið i kumli forn- manns i Reykjaseli á Jökuldal. Það er óvenju- legt, bæði fyrir það, að hér eru raftölurnar nær helm- ingur, eða fimmtán talsins á móti nitján glertölum, en þó einkum fyrir hitt, að karlmaður skyldi bera svo stórt sörvi, þar sem venjan var að þeir bæru aðeins örfáar tölur, ef þeir báru þær á annað börð. En hér var öruggtega um að ræða karlmannskuml, það sýndi beinin og annað haugfé, sem var hnifur, brýni, spjót og járnhringur, semsagt greinilegt haugfé karl- manns. Þetta var 1918. Þór Magnússon. íslenzkrar skáklistar Eftir Jön Þ. Þör í siðasta þætti var fjallað nokkuð um skák á islandi á 17. öld. Frá 18. öldinni eru heimildir um skákiðkun hér á landi mjög af skornum skammti. Höfundar ferðabóka um ísland minnast þó öðru hvoru á skákiðkun Íslend- inga og segja þá góða skákmenn. Á meðal þessara má nefna þá Eggert Ólafsson og Bjarna Páls- son. Um skákiðkun á 19. öld eru heimildir öllu meiri, og þó ekki fyrr en kemur fram yfir miðja öldina. Bezta heimildin. sem ég hef fundið, er greinarkorn, sem Þorvaldur Jónsson læknir á fsa- firði ritaði I skáktlmaritið ,,f upp- námi", 2.^tbl. 1901. Þar segist Þorvaldut hafa byrjað að iðka skák um 1850 og kveðst hafa kynnst flestum þeim skák- mönnum sem beztir voru í Reykjavlk fram til 1863, en þá fluttist hann til isafjarðar. Af orð- um Þorvalds má ráða, að skák- iðkun hafi verið nokkur I Reykja- vlk fyrir 1850, en flest bendir til að skákin hafi fyrst og fremst verið íþrótt „betri borgara". Þor- valdur segir I grein sinni, að skák hafi verið iðkuð af bæði bæjar- búum og skólapiltum og var heimili Þorvalds helzti samkomu- staður skákmanna. Þorvaldur var sonur Jóns Guðmundssonar al- þingismanns og ritstjóra Þjóðólfs. Fróðlegt er að sjá hverja Þor- valdur taldi verið hafa beztu skákmennina um miðja 19. öld. Bezta skákmann fslands telur hann hiklaust hafa verið sr. Stefán Thordersen. Hann varð sfðar prestur I Vestmannaeyjum og drukknaði þar árið 1889. Þor- valdur segir sr. Stefán hafa teflt blindskák og þótti það mikið af- rek á þeim tlma. Auk sr. Stefáns taldi Þorvaldur þá Pétur Péturs- son biskup. Jón Pétursson háyfir- dómara og Smith konsul hafa verið öflugustu skákmennina I Reykjavlk um miðja siðustu öld. Af frásögn Þorvalds má ráða, að skák hefur verið iðkuð til ánægju, og lltt munu menn hafa verið lærðir'I skákfræðum. Hann segir lítið hafa verið til af skák- bókum og ekki kveðst hann vita til þess að aðrir en hann sjálfur hafi átt þær I Reykjavlk. Lands- bókasafnið átti eitthvað af skák- bókum, en Iftið mun það hafa verið. Þorvaldur Jónsson var einn af helztu brautryðjendum skáklist- arinnar á fslandi. Hann kom sér upp allgóðu skákbókasafni á þeirra tfma mælikvarða og stóð f bréfaskiptum við erlenda skák- menn. Af því teiddi að hann hóf að tefla bréfskákir við danskan skákmann og mun hann fyrsti fslendingurinn. sem þannig tefldi svo sögur fari af. Nokkuð mun Þorvaldur hafa kunnað fyrir sér i skákfræðum þvf hann fann m.a. villu f byrjanahandbókinni „Bilguer", sem var eitt helzta ritið um byrjanafræði á þeim tfma. Og nú skulum við skoða eina skák, sem Þorvaldur Jónsson tefldi. Þetta er sennilega elzta varðveitta skákin, sem fs- lendingar hafa teflt. Hvenær hún var tefld er mér ekki fyllilega Ijóst. en hún birtist i danska blaðinu „Nationaltidende" 28. maf 1893 og hefur því vafalaust ekki verið tefld seinna en 1892. Skákin var tefld á Isafirði og sá sem stýrir hvftu mönnunum var gullsmiður þar f bæ. Hvitt: Helgi Sigurgeirsson Svart: Þorvaldur Jónsson Muziobragð. 1. e4 — e5, 2. f4 — exf4, 3. Rf3 — g5, 4. Bc4 — g4, 5. 0-0 — gxf3, 6. Hxf3 — d5, 7. Bxd5 — Bd6, 8. h3 — Rf6, 9. De2 — De7, 10. Rc3 — c6, 11. Bb3 — Be5, 12. Rd1 — Bd4, 13. Khl — Dxe4, 14. Df 1 — Rh5, 15. d3 — De5, 16. c3 — Bb6. 1 7. Bxf4 — Hxf4, 18. Hxf4 — Be6, 19. d4 — Dg7, 20. Re3 — Rd7. 21. Rf5 — Df8, 22. Hae1 — 0-0-0, 23. Bxe6 — fxe6, 24. Hxe6 — Kb8, 25. Rd6 — Dg8. 26. Rf7 — Bc7, 27. Rxd8 — Dg3, 28. Rf7 — Bxf4, 28. Dg1 — Hf8, 30. He7 — Kc8. 31. c4 — Dg8, 32. De1 — Dg3, 33. Dxg3 — Bxg3, 34. c5 — a5. 35. b3 — h5. 36. Kg1 — b6. 37. cxb6 — Rxb6, 38. a3 — Rd5 39. Ha7 — Rc7, 40. Re5 — Hf2, 41. Hxa5 — Rd5, 42. Hac5 — Rf4 og hvftur gaf. BRIDGE f eftirfarandi spili kom sagnhafi ekki auga á vinningsleiðina. sem þó er afar einföld, sérstaklega þó, þegar bent hefur verið á hana. NORÐUR S: K-5 H: 9-6-4-3 T: Á-8-5-3-2 L: K-7 VESTUR S: Á-10-7-6-3 H: G-8-5-2 T: G-7-4 L: D AUSTUR S: G-9-4 H: D-10-7 T: D-10-9 L: 10-9-8-5 SUÐUR S: D-8-2 H: Á-K T: K-6 L: Á-G-6-4-3-2 Sagnirgengu þannig: Suður Vestur Norður Austur 1 G p 2 L P 3 L P 3 G Allir pass. Vestur lét út spaða 6, sagnhafi drap f borði með kóngi. tók laufa kóng og það varð til þess að hann tapaði spilinu. Að vfsu fellur laufa drottningin I, en sagnhafi kemst ekki hjá þvf að gefa austri slag á lauf og þegar austur komst inn þá lét hann út spaða gosa og þar með fengu A-V 4 slagi á spaða, og spilið tapaðist. Augljóst er að áform sagnhafa var að hindra að austur kæmist inn. Til þess að vera alveg öruggur þá á sagnhafi, þegar hann hefur fengið slag á spaða kóng. að láta út hjarta, drepa heima með kóngi, láta siðan út lauf. Þegar vestur drepur með drottningunni þá á sagnhafi að gefa þann slag. Nú er sama hvað vestur gerir, sagnhafi valdar spaða drottninguna heima og spilið vinnst.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.