Lesbók Morgunblaðsins - 10.08.1975, Síða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 10.08.1975, Síða 4
Minnkabú eða mannabústaður? Þetta afrek íslenzkrar byggingarlistar getur að lita f Efra Breiðholti. Hversvegna hyggjum við svona Ijót hús ? Súrt og sætt um íslenzka byggingar- list síðustu ára Myndir og texti: Gísli Sigurðsson Svona hús voru byggð (iðn- byltingunni ( Bretlandi og s(ðan ( Kópavogi ð árinu 1975. Ætli þetta hljóti ekki að vera fslandsmet? Fyrri hluti — 1 BANDAKlSKRI kennslubók i skipulagsfræði getur að lfta mynd, sem kemur kunnuglega fyrir sjónir: Röð af f jögurra hæða blokkum, sem allar eru svo til eins; hvorki fagrar né ljótar, en firna hvunndagslegar og snauðar af listrænum tilþrifum. Við sem búum á höfuðborgarsvæðinu þekkjum undir eins, að þarna cr komin blokkaröðin við Alftamýri. A sömu blaðsfðu í bókinni er einnig mynd af sambýlishúsi, sem verður að teljast afar ólfkt því sem tfðkast hefur að byggja hér. Og I myndatexta eru nemendur f skipulagsfræðum spurðir: „Sumir arkitektar koma jafnt og þétt fram með skapandi hugmyndir. Hvor þessara tveggja lausna þykir þér fremur bera sköpunargáfunni vott?“ Um svarið þarf vfst ekki að ræða; það er svo augljóst. En það er vissulega dapurlegt, þegar farið er að birta myndir af fslenzkum arkitektúr í kennslu- bókum sem dæmi um, hvernig helzt ætti ckki að byggja. Hér virðist meira að segja hafa dugað að taka dæmi af blokkum sem hljóta að teljast fyllilega í meðal- lagi á okkar mælikvarða. Það er hægur vandi að finna ýmislegt verra. Þegar hin dapurlega staða Súrt fslenzkrar byggingarlistar er at- huguð, hlýtur maður að spyrja: Hversvegna, hversvegna í ósköp- unum byggjum við svona ljót hús? Þeirri spurningu er erfitt að svara, en svarið gæti ef til vill legið f einhverri, eða öllum af þremur eftirfarandi skýringum: 1) Að tilfinningin fyrir formi og því sem máli skiptir í byggingar- list, sé afar vanþróuð með þjóð- inni. 2) Að nauðsynlega hæfileika og tilfinningu skorti meðal þeirra, sem völdu sér það hlutskipti að verða arkitektar. 3) Að sparnaðarsjónarmið ráði fcrðinni svo gersamlega, að úti- lokað sé af þeim ástæðum að hér rfsi fagrar og/eða frumlegar byggingar. Þriöja skýringin verður naumast sannfærandi f ljósi þess, að við byggjum einhver dýrustu hús að jafnaði, sem hægt er að finna dæmi um. Fyrir því liggja eðlilegar ástæður hitafars og veðra, en partur skýringarinnar felst í óhemju dýrum innrétting- um. Þegar svo mikið er f lagt, að módelinnrétting verður að vera í hverju eldhúsi heillar blokkar, virðist út f hött að álykta sem svo, að sparnaðarsjónarmið hafi ráðið úrslitum um dapurlegt útlit. V« *• • •. ,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.