Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1976, Page 8
Buckminster Fuller varð
áreiðanlega fyrst kunnur mörg-
um landanum, þegar hann kom
hingað til lands á sfðastliðnu ári
til fyrirlestrahalds. Kannski hafa
þó öllu fleiri stofnað til kynna við
þennan aldna meistara af lestri
greinar, sem Matthfas Johannes-
sen skrifaði um hann f Morgun-
blaðið, þegar Fuller var hér á
ferðinni. Það er alsendis óvfst,
hvort á að kalla Buckminster
Fuller arkitekt, uppfinninga-
mann, hugmyndasmið, vfsinda-
mann eða eitthvað annað. Hann
er líkt og hinir frægu meistarar
Endurreisnarinnar á ftalfu á 15.
öld, eitthvað af þessu öllu.
Það sem Buckminster Fuller án
efa er frægastur fyrir eru hvolf-
þök hans, sem hann hefur nefnt
„geodesic dome“ Þessi gerð
hvolfþaka byggir á styrkleika
þrfhyrningsins og er náskyld
ýmsu, sem sjá má f náttúrunnar
rfki. Framundir þetta hefur
hvolfbyggingin fræga f Róm,
Pantheon, sem upphaflega var
heiðið hof verið mesta hvolfþak
heimsins og lengi vel var álitið að
lengra væri ekki hægt að ganga f
gerð þaks, sem ber sig sjálft, án
burðarbita, súlna eða stoða. En
uppfinning Buckminsters Fullers
er svo „genfal“ að nú veit f
rauninni enginn, hversu stóran
hjálm mætti búa til. Jafnframt
hefur sannazt að þessi húsgerð
stendur betur af sér stórviðri, en
önnur byggingarform gera. Hér
hefur komið uppf hendurnar á
mönnum lausn á þökum yfir
fþróttavelli, sundlaugar, sam-
komuhús, kirkjur, flugstöðvar,
stórverzlanir og ugglaust margt
fleira. Mætti af þessu halda, að
maður sem finnur annað eíns upp
f Amerfku, væri um leið orðinn
rfkari en svo að hann vissi aura
sinna tal. En svo er þó ekki. Af
einhverjum ástæðum hefur
snillingnum Fuller ekki tekizt að
auðgast á uppfinningum sfnum.
Agóði hans af einkaleyfum hefur
jafnótt farið f kostnað við
umfangsmiklar tilraunir með
nýjar lausnir. Buckminster
Fuller hfur einfaldlega verið of
önnum hafinn við nýjar
uppfinningar til þess að hann
gæti gert sér það sem fyrir lá að
fjárhagslegum ávinningi.
Aftur á móti hafa risið upp
stórfyrirtæki f Bandarfkjunum
sem keypt hafa einkaréttinn á
framleiðslu þeirra eininga, sem
til þarf f gódesfskar byggingar.
Eitt þeirra heitir Temcor og er f
Kalifornfu. Það hefur látið frá
sér fara kynningarrit um
geódesfsk hvolfþök og af hverju
sem það nú stafar, er höfundarins
þar að engu getið, fremur en
hann væri ekki til.
1 þessu kynningarriti kemur
fram, að hægt er að kaupa ýmsar
HVOLF-
ÞÖKIN
HWS
FULL-
ERS
rejnastvíða
frábær lausn
Á myndunum til hægri sjást þrjú
bandarfsk stórhýsi, öll byggð til að
hýsa margháttaða íþróttastarfsemi
— og öll með hvolfþökum sam-
kvæmt uppfinningu Buckminsters
Fullers. Efst er íþróttahús Centenary
College, sem rúmar 4000 áhorfend-
ur, í miðju er sama hús séð utan frá
og neðst er Murray Center við
Elmira College, þar sem hægt er að
keppa I margvíslegum fþróttum.
Takið eftir, að sterkir Ijóskastarar
varpa birtunni upp á hvolfið og fæst
þannig óbein lýsing og góð birta.