Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1976, Side 9

Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1976, Side 9
4 mca 1300, sem byggir ð frönskum smekk og amerisku fjörmagni stærðir af hvolfþekjuhúsum og þau stærstu, sem þarna eru nefnd, taka yfir hvorki meira né minna en 7 þúsund fermetra, eða rúmlega tvo þriðjuhluta úr hektara. Utan með sjálfri grunnplötunni eru reistir nokkrir bogar, ýmist úr málmi eða stein- steypu og á þeim hvflir sjálft hvolfþakið. Það er eins og myndirnar sýna gert f aðalatrið- um úr tvennskonar einingum: Geysilega sterkum álrömmum sem boltaðir eru saman og myndast þá fimmstrent form. Frá miðju þessa forms ganga svo þrfr bitar og deila þvf f þrjú jafnstðr bil. Þá er komið að sjálfri klæðningunni og hún er þannig leyst að sérstakar einingar úr álí eða plexigleri falla f bilin. Hér er engin málning notuð og álið þarf ekkert viðhald. Einangrun er leyst á einfaldan hátt, þegar hennar þarf við. Einangrunarefni er einfaldlega sprautað innan á álplöturnar og bitana. f annan stað er til sú lausn, að glerullar- mottur falli f bilin milli bitanna og f þriðja lagi er fáanleg auka- klæðning, sem að Iokum kemur neðan á bitana og myndar holrúm. Dagsljós ofanfrá er fengið með þeim hætti, að sérstakt gler er fellt f bilin f stað álplatnanna Hefur stundum ein- vörðungu verið notað gler í bilin, einkum yfir sundlaugar. Smærri hvolfþök af þvf tagi mundu til dæmis henta vel yfir gróðurhús. Hér á landi er aðeins til eitt meiri háttar hvolfþak. Það er á Laugar- dalshöllinnt og er steinsteypt. Gódesfskt hvolfþak hefði f senn verið miklu ódýrara, fljótunnara og fegurra. Reynsla hefur fengizt fyrir þvf að geódesfsk þök eru alveg vatnsheld; þau hafa staðið af sér bylji og snjóþyngsli norður f Alaska, fellibylji á Florida og Guam-eyjum, og jarðskjálfta f Kaliforníu. Þvf er slegið föstu að byggingartfmi verði einn þriðji til helmingur af þeim tfma, sem fer í að byggja steinsteypt hús. Framleiðandinn sendir sér- þjálfaðan mannafla til þess að reisa þakið og tekíð er fram að sex manna flokkur geti á fjórum vikum lokið fullkomlega við hvolfþak, sem er 144 fet f þvermál. f miðju hvolfsins er skilið eftir gat á meðan á byggingunni stendur. Sérstakur krani stendur uppúr gatinu og lyftir þakinu jafnframt þvf sem einingar bæt- ast utaná hringinn. Að lokum hvflir þakið á burðarbogunum og gatinu f miðju er að sfðustu lokað með áleiningum eða gleri. Ennþá hafa geódesísk hvolf- þekjuhús ekki risið á fslandi, en þau væru án efa til margra hluta gagnleg. A þennan hátt mætti til dæmis byggja yfir sundstað; við gætum komið okkur upp inni- garði með ævintýralegum, suð- rænum gróðri. Það væri freist- andi hugmynd að byggja stórt hvolfþak — eða fleiri en eitt — yfir eitthvert vel staðsett svæði, og undir þvf yrðu verzlanir skemmtistaðir, bókasafn og veit- ingahús f fallegu umhverfi, þar sem fólk gæti notið þess að ganga um, eða sitja f rólegheit- um, án þess að vera dúðað. Það vill svo vel til að við höfum jarð- hitann, en geódesfsku þökin færa okkur upp í hendurnar þá lausn sem þarf til þess að hugsa og byggja upp borg á nýjan og sérstakan hátt. GS Sérþjálfaðir hópar vinna að uppsetningu á hvolfþökum og gengur það mjög hratt. Hvolfþök eru notuS yfir allskonar starfsemi I Bandarikjunum. Hér er eitt slíkt hús, sem fljótt á litiS er ekki likt venjulegri bankabyggingu, en hýsir þó National Bank i Arisona. íí - ip 3 = ISfe wa ® t. v « Að ofan má sjá, hvernig Simca 1300 litur út að utan. Þar er fylgt línu, sem um þessar mundir er vinsæl i gerð smærri bila. Aftur á móti er franskur smekkur alls ráðandi i innréttingunni og sætin eru bæði stór og mjúk. Eins og sjá má hér að neðan, myndast mikiS flutningarými, þegar aftursætið er iagt niSur. Franska bflaverksmiðjan Simca er f eigu Chrysler Corporation f Bandarfkjunum og skortir þvf varla fé. Simca hefur samt haldið áfram að vera Evrópubfll með öllum þeirra kostum og göllum og umfram allt annað er Simca franskur bfll — einnig með kostum þeirra og göllum Þrátt fyrir fjármagnið að vestan, örlar ekki á amerfskum áhrif- um, hvorki f stærð né á annan hátt. Hitt er svo annað mál, að bflahönnuðir virðast ekki þungt haldnir af hugmynda- flugi um þessar mundir og smám saman virðist mikill meirihluti bflgerða vera að verða svo til nákvæmlega eins. 1 smábflaflokknum markaði Fiat 127 þessi tfmamót og millistærðarflokknum má segja að Volkswagen Passat hafi markað stefnuna, sem var alveg sú sama og f smá- bflunum: I staðinn fyrir hefð- bundið „skott“ eru þessir bflar hálf afturbyggðir, svo innra rými eykst til mikilla muna. Þar að auki er notagildið aukið svo um munar með stórri hurð á afturendanum og f þriðja lagi má nefna það sem Saab byrjaði á: Að geta lagt aftur- sætið niður og búið til samfeilt gólf frá framsætum og aftur úr. Enn má svo bæta því við en það gerist sífellt algengara að bflar af þessu tagi séu búnir framhjóladrifi. Þrátt fyrir nokkra einhæfni í útliti má þó segja þessari þróun til hróss, að hér ræður skynsemin ferðinni að öllu leyti. Hvers- konar „stækum“ er fórnað fyr- ir skynsemisatriði eins og sparneytni, öryggi, ytri sam- þjöppun og innra rými. Allt það sem hér hefur verið sagt má heimfæra uppá nýja milliklassabflinn frá Simca, sem auðkenndur er með töl- unum 1307 og 1308 eftir vélar- stærð. Hann er á ytra borðinu afskaplega Ifkur Volkswagen Passat, en innréttingin sýnir vel muninn á frönskum og þýzkum smekk. Sú spartanska harðneskja sem ræður ferðinni f innréttingu á Volks- wagen Passat, er ekki til f Simca. Stólarnir eru mikil og mjúk hægindi og frágangur og hönnun á mælaborði og hurðum er talsvert rfkulegur og minnir á ftalska ivö sem Lancia Reía og Alfa Romeo. Fjöðrunin er mjúk á franska vfsu og aksturseiginleikar með þeim hætti, að eftir ökuprófun danska bflablaðsins Bilen. motor & sport, kvaðst öku- maðurinn mundu greiða Simca sitt atkvæði þegar bfll ársins yrði kjörinn riæst. Eins og kunnugt er kjósa ákveðin bfla- og tækniblöð f nokkrum Evrópulöndum bfl ársins á hverju ári og varð hinn nýi Citroén CX fyrir valinu í fyrra. Danski ökumaðurinn gaf Simca beztu meðmæli fvrir svo að segja hvert atriði. Hann taldi útsýnið framúrskarandi gott, þægindin f bezta lagi, mælum vel fyrir komið — en skiptingin hlaut þá athuga- semd að hún væri dálftið „gúmmfkennd" og vita Ifklega flestir bflstjórar hvað þar er átt við. Það er ekki annað en það, sem næstum undan- tekningarlaust á sér stað, þegar gfrkassinn er á öðrum stað en undir sjálfri gfrstöng- inni. Vélin er þverstæð að framan ag hallast aftur á bak um 40 gráður. Hún er fjögurra strokka 74—90 hestöfl. Drif er á framhjólum. Lengdin er 4.24 m. breidd 1.68, hæðin 1.40 m og þyngd 1000 kg. Um verð hér er ekki vitað, en umboð fvrir Simca hefur Vökull.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.