Lesbók Morgunblaðsins - 08.02.1976, Side 15
Þœttir úr
íslenzkri
skðksögu
Eftir Jön Þ. Þór
Framan af fjórða áratug þessarar atdar var þátttaka í skákmótum
hérlendis heldur dræm, og fyrir kom að aðeins fjórir til fimm menn
tóku þátt í keppni i efsta flokki á'helztu mótum. Þegar leið á áratuginn
fór áhugi manna á skák þó að aukast, og mun heimsókn þýzka
meistarans Engels hafa átt mikinn þátt i þvi. Á Ólympiumótinu i
Buenos Aires 1939 unnu islendingar forsetabikarinn svonefnda, og
varð það enn til þess að auka áhugann. Þetta kom m.a. fram I þvi að á
skákþingi Reykjavikur 1940 var mjög góð þátttaka, eða alls 54
keppendur i 4 flokkum. í meistaraflokki voru keppendur 10 og þar
urðu úrslitin þau, að þeir Ásmundur Ásgeirsson og Eggert Gilfer urðu
efstir og jafnir, hlutu 6,5 v. hvor.Þriðji varð Guðmundur S. Guðmunds-
son með 5,5 v.
Þeir Ásmundur og Gilfer tefldu siðan einvigi um titilinn „Skákmeist-
ari Reykjavikur 1940", og var ákveðið, að sá þeirra, sem fyrr ynni
þrjár skákir skyldi hljóta titilinn. Úrslit urðu þau. að Ásmundur vann
fyrstu þrjár skákirnar og þar með titilinn. Fyrsta einvigisskákin var
skemmtileg og spennandi og fer hún hér á eftir.
Hvitt: Ásmundur Ásgeirsson
Svart: Eggert Gilfer
Bogoljuboffvörn
1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3 — Bb4 + , 4. Bd2 — Bxd2 + , 5.
Rxd2 — d5, 6. Dc2 — De7, 7. e3 — 0-0, 8. Bd3 — c5?. 9. cxd5 —
cxd4, 10. Rxd4 — exd5, 11.0-0 — b6, 12. Rf5! — Bxf5, 13. Bxf5 —
Ra6, 14. Hacl — g6, 15. Bd3 — Rc5, 16. Rf3 — Rg4. 17. De2 —
Hac8, 18. Rd4 — Rxd3. 19. Hxc8 — Hxc8. 20. Dxg4! — Dd8. 21.
De2 — Rc5, 22. Hd1 — Re6, 23. Rb5 — Dd7, 24. h3 — Hc5, 25.
Rc3 — Dc6, 26. Df3 — Rc7, 27. Dg4 — Rb5, 28. Re2 — Hc2. 29.
a4 — Dc4, 30. Rf4 — Dxa4, 31. Hxd5 — Da1 + 32. Kh2 — Hc5, 33.
Hd8 + — Kg7, 34. Dd7! — He5, 35. Rd3! — Hh5, 36. De8 — Df1,
37. Dh8 +! — Kh6, 38. Df8+ — Kg5. 39. Hd5+ — Kf6, 40. Dh8 +
— Ke6, 41. Rf4 + — Ke7. 42. Dd8 mát.
BRIDGE
SAMTÖK bridgefréttamanna veita árlega verðlaun fyrir spil ársins.
„Hand of Year". Eiga meðlimir samtakanna að benda á og koma á
framfæri þeim spilum, sem þeim þykja athyglisverð. Hér fer á eftir eitt
þessara spila og var það spilað i Springold Team Championship í
Bandarikjunum og birtist i bridgeþætti þeirra Gorens og Omars Sharif i
Austur:
S: Á-D-9-5
H: 8-4-3
T: D-10-5-2
L: 9-4
L: Á-K-8-7-6-3
Sagnir gengu þannig:
Norður Suður
1 T 2 L
2 T 2 H
3 H 3 S
4 T 4 H
5 L 5 T
6 H P
Þegar Suður segir 2 hjörtu og 3 spaða, þá er hann að undirbúa að
lokasögnin verði 3 grönd, en i stað þess að villa eingöngu fyrir
andstæðingunum, þá villti hann þannig fyrir félaga sinum að hann
hélt, að hér væri um eðlilegar sagnir að ræða og hélt ótrauður áfram
alla leið i hálfslemmu.
Vestur, sem áleit að suður hefði spaða ás, lét f byrjun út tromp.
Þetta varð til þess að sagnhafi, sem var Peter Nagy frá Montreal, fékk
tækifæri til að vinna slemmuna.
Drepið var með hjarta ási, tók laufa ás, lét aftur lauf, trompaði i
borði, með hátrompi. Nú var tigull látinn út, drepið heima með kóngi,
aftur var lauf látið út og trompað í borði með hátrompi. Næst tók
sagnhafi trompin og öll laufin að einu undanskildu og var þá staðan
þessi:
Norður: Vestur: Austur: Suður:
S: 10-7 S: K-8 S: Á S: G-4
H: H: H: H: —
T: Á-G T: 9 6 T: D-10-5 T: 7
L: L: L: L: 7
Þegar sagnhafi lét út laufa 7, þá varð vestur að halda báðum
spöðunum, þvi geri hann það ekki, þá lætur sagnhafi næst út spaða og
kóngur og ás falla saman og spaða gosi verður góður. Vestur lét þvi
tigul, sagnhafi kastaði spaða úr borði og austur kastaði spaða ás. Kasti
austur ekki spaða ás þá lætur sagnhafi næst spaða, austur fer inn á
ásinn og verður að láta út tígul og sagnhafi fær 2 siðustu slagina á ás
og gosa t borði.
Næst lét sagnhafi út tlgul, drap I borði með ási, lét siðan út spaða
10, vestur fékk slaginn á kónginn, en varð að gefa sagnhafa siðasta
slaginn á spaða gosa og þar með var spilið unnið.
oKioDer s.i.
Vestur:
S: K-8-2
H: 9-7-6
T: 9-6-4
L: D-10-5-2
Norður:
S: 10-7-6 3
H: Á-K-G-5
T: Á-G-8-3
L: G
Suður:
S: G-4
H: D 10-2
T: K-7
SKAK
BÖRNIN
TEIKNA
Þessi bráðskemmtilega hóp-
mynd til hægri er eftir Ólöfu
Sigriði Valsdóttur, Byggðavegi
118 á Akureyri. Lesbókin
hefur raunar birt teikningu eft-
ir hana áður, en þá vantaði
höfundarnafnið. Ólöf Sigriður
er 6 ára. Á neðri myndinni er
þorskastriðið á dagskrá. Mynd-
ina teiknaði Eyþór Ingi
Jóhannsson, Ásvallagötu 53.
Hann er 12 ára. Herskipið
Othello gerir harða hrið að Tý,
sem er með skærin á lofti og
skipherrann gefur fyrirmæli
um að klippa.
Banda-
maður í
Miinchen
fslenzkir kaupsýslumenn, sem voru á ferðinni I Múnchen i desember, veittu
þvi athygli að þar var leigubill með islenzka fánann á afturendanum. Það
kom i Ijós að eigandi bilsins. Eligius Krichhofen leigubilstjóri. var svo harður
bandamaður íslendinga i þorskastriðinu, að hann festi fánann á bilinn til þess
að samúð hans með fslendingum væri alveg lýðum Ijós. Ljósmynd: Kristmann
Magnússon.