Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.1976, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.1976, Qupperneq 2
Teikning: Rósa Ingólfsdóttir I lesondabréfi til Velvakanda í vetur, var þeirri tillögu beint til þingmanna, að þeir lærðu að prjóna og iðkuðu það, er þeir sitja langtfmum saman undir ræðuhöldum á Alþingi. Var þeim til hvatningar nefnl dæmi af bónda einum vestur f Dölum, er prjónaði hæðarsokk á dag mcðan hann stóð yfir fónu að vetri til, og annan hæðarsokk á vökunni. Sem sæmilegri prjónakonu fannst mér bréfið skemmtilegt og athyglisvert. Þar sem ég hef orðið þcss vör, að hið sama fannst ýmsum flcirum, þá datt mér í hug að einhvern kynni að langa til að heyra svolftið meira frá þcssum iðjusama bónda, ætt hans og uppruna og afkomendum. Eg hef þvf fært hér saman á blað nokkra punkta, eða með öðrum orðum prjónað neðan við sokkinn hans. Við skulum nú hverfa 150 ár aftur f tímann og hugsa okkur að við séum stödd vcstur í Haukadal í Dalasýslu. Það er hávetur, snjór yfir öllu en þó ekki svo mikill að haglaust sé. Hallur Hallsson, bóndi á Stóra-Vatnshorni, hefur látið út fé sitt, rekið það þangað sem vænlegast er til beitar og stendur nú yfir því. Ilann er f vaðmálsfötun- um sínum með leðurskó á fótum, sennilega mórauðan ullartrefil um hálsinn og prjónahúfu á höfði, en berhentur er hann, þvf hann heldur á prjónum. Ilann ber þá ótt og títt að lykkjunum, svo að áður en tími er kominn til að fá sér bita úr malnum, er þegar komin hálf sokkalengd. Þrennt gæti borið til að tíminn er svo gaumgæfilega notaður. Einyrkja bóndi á öndverðri 19. öld hefur vissulega þurft að nota hverja stund sem best til að sjá hcimili sfnu farhorða. I öðru lagi er gott að nota birtuna. Það sést ólfkt betur til lykkna en við grútarlampann í baðstofunni og svo styttir það tímann að hafa eitthvað að halda á. Nú teljum við vfst að þetta sé gamall bóndi með grátt hár og skegg, farinn að bogna undir fargi brauðstritsins og arfgengum lúa kynslóðanna, cn það er nú aldeilis ekki. Hallur Ilalls- son er 35 ára þegar hann byrjar búskap á Stóra- Vatnshorni og 48 ára þegar hann deyr — eða maður á besta aldri. Kona hans Margrét Árnadóttir gætir 7 barna í bænum. En hver er hann svo þessi Hallur Hallsson, af hvaða stofni er þessi kvistur vaxinn, það viljum við Islendingar alltaf fá að vita. Hann var fæddur á Óspakseyri f Bitru árið 1786. Foreldrar hans voru Hallur Olafsson og Kristín Pétursdóttir, sem þar bjuggu þá, og síðar á öðrum bæjum í Strandasýslu og Dölum, síðast í Villingadal í Haukadal. Faðir Ilalls Ólafssonar var Ólafur Hallsson, bóndi á Ospakseyri, þangað fluttur úr Húnavatnssýslu fyrir eða um 1770, en foreldrar hans voru Ilallur Björnsson bóndi á Þóreyjarnúpi og kona hans (juðrún Ragnheiður Vigfúsdóttir neðan mð Þorsteinsdóttir frá Leysingjastöðum f Þingi. Nú efast ég ekki um, að forfeður Halls á Stóra-Vatnshorni hafi verið vinnusamt fólk, slíkt lá í landi og var næsta nauðsynlegt til að fá dregið fram lífið, en engar sérstakar sögur fara af iðjusemi þessa fólks. Aftur á móti er langafi hans Hallur Björnsson á Þóreyjarnúpi frægur fyrir aðra eiginlcika, scm sfður þóttu fallnir til að sjá sér og sfnum farborða gegnum lífið. Hér er sem sé kominn Barna-Hallur sá, sem vann sér til dauðarefsingar með þvf að eignast 4 hórbörn. Ég gæti nú dregið hér saman sögu hans f nokkrum orðum, en miklu ákjósanlegra finnst mér að fara í smiðju til Magnúsar Björnsson á Syðra-Hóli, þvf fáar veit ég betri þar sem íslenzkt mál hefur verið slegið og hamrað. Magnús var sá kynjasmiður, sem ávallt hitaði járnið nákvæmlega að réttu marki og hóf svo ásiáttinn með þeim öruggu handtökum, sem jafnan gefa örðu- lausa áferð og geta breytt f kjörgrip hvaða rygðuðum gaur, sem á steðjann er lagður. Magnús segir: „Hallur lét sér ekki eiginkonuna einhlfta og átti börn með fleiri konum en henni. Hann virðist hafa gengist umyrðalaust og greiðlega við hórbörnum sfnum og varð þó að greiða sekt fyrir hverja barneign utan hjónabands. Er hórbörnin voru orðin fjögur kom f óvænt efni fyrir Halli. Dauðarefsing iá við svo mörgum brotum samkvæmt Stóradómi. Frekur er hver til fjörsins og Hallur var enn ekki nema fertug- ur. Honum þótti of snemmt að kveðja þennan heim og syndina og gaf ekki um handa kland böðulsins. Hefur fundist það lftið réttlæti að vera tekinn af lífi eins og glæpamaður fyrir þá sök eina að geta börn utan við hjónasængina. Hann brá við í tfma og hafði sama lagið og margir aðrir sakfelldir menn fyrr og síðar. Hann tók hest sinn og flýði undan dómnum og dauðanum sem yfir vofði. Þetta mun hafa gerst 1724. Sagt er að hann hafi komist í skip og af landi brott. Þannig hvarf hann úr sögunni, og vissi enginn um hann sfðan. Ormur Daðason sýslumaður lýsti eftir honum á alþingi 1725. „Sagði að hann var rauðbirkinn, freknóttur, snar f framgöngu, vel á fót kominn en feimulegur, gjarn á hestakaup og að taka hesta ófrjálsa." Bað sýslumaður þess, að hann væri gripinn hvar sem hittist. Ekki er um að villast að kvenhollur hefur Hallur verið f meira lagi og óprúttinn í þeim sökum og svo hafa fleiri verið fyrr og síðar. 1 annan stað er líklegt að hann hafi verið vel gerður um margt og vaskleik- maður. Björn á Guðlaugsstöðum sendi ekki syni sína f skóla, en efalaust hefur hann séð þeim fyrir nokkurri fræðslu eins og tftt var um velmegandi foreidra. Má þvf ætla, að Hallur hafi verið í betra lagi að sér að þeirrar tfðar hætti. Sennilega vaskur maður og karl- menni eins og forfeður hans margir og hestamaður. Lfklegt að hann hafi verið vel megandi og góður bóndi. Synir hans tveir, skilgetnir, voru allmiklir efnamenn og trúlegast að frá búi hans hafi komið undirstaðan að eignum þeirra. Loks er svo þess að geta að Hallur var skáldmæltur. Og þar sem saman fór hjá honum þrinnuð þrá, til munaðar holdsins, til gangsnilli gæðinga og til skáldskapargyðjunnar, var þess vegna ekki að vænta, að vel færi fyrir honum að mati samtfðarmanna. Þvf lfkt hugarfar bjó yfir og skapaði slys og óhamingju." Þegar Hallur Hallsson stóð yfir fé sfnu f Stóra- Vantshorni voru liðin 100 ár sfðan langafi hans slapp úr klóm „réttvísinnar“ og hélt til hlýrri stranda. Enginn veit hvað beið hans, margt kann að hafa borið fyrir hann, þvf vel hefði hann getað lifað önnur fjörtfu ár. En sú saga verður aldrei sögð af neinum. En niðjatal hans hefur verið skráð og er geymt í Landsbókasafni, en það mun vera sfðan um 1800, svo að mikið hefur bæst við sfðan. Ekki hafa niðjar hans allir látið sér „eiginkonuna einhlfta", en nú er Stóri- dómur löngu úr gildi numinn og mannúðlegri lög tekin við. Nú óttast menn hvorki sveitarþyngsli né reiði guðs fyrir að brjóta 6. bororðið, en vafalaust hafa það verið forsendurnar fyrir þessum lagastaf, en ekki samúð með afbrýðisömum eiginkonum. Þótt Hallur væri barnmargur eru ekki ættir raktar nema frá fimm. Nokkur munu hafa dáið ung eins og þá var algengt, og önnur kannski ekki látið eftir sig niðja þó til fullorðinsára kæmust. Þessi fimm börn voru: Helga f. 1713, Jón f. 1714, Arni f. 1716, Ólafur f. 1722 og Þórunn f. 1725. Hefur hún ekki verið fædd þegar faðir hennar söðiaði hest sinn og lét bú sitt og fósturjörð f skiptum fyrir lffið. Þessi frændgarður er nú orðinn æði stór, flest er það mannkostafólk duglegt og vel gefið. Allmargt af þvf cr í Vesturheimi. Eins og áður segir átti Hallur á Stóra-Vatnshorni sjö börn, sem öll komust upp, elst þeirra var Ingibjörg, en sonur hennar var Jósef Björnsson skólastjóri á Hól- um, og sonarsonur hennar Hallur Hallsson tannlækn- ir, sem margir kannast við. Næstur var Ólafur, hann tók við búi af móður sinni á Stóra-Vatnshorni en hún giftist aftur og flutti burtu. Flest börn hans fóru til Vesturheims. Þriðja var Björg, hún bjó á Hömrum í Haukadal, dóttir hennar fór til Vcsturheims, en sonur hennar var Kristján Jónsson, bóndi í Snóksdal. Fjórða var Kristfn meðal barna hennar var Halla seinni kona Þorvarðs Borgþórssonar á Leikskálum, Jónas í Skriðu- koti og Ólafur f Stóra-Skógi. Hallur var fimmti f röðinni, hann drukknaði um tvftugt undir Jökli. Sjötta var Þurfður á Svfnhóli og Háafelli og sjöunda Jósef bóndi á Skarði. Mcðal afkomcnda hans eru Giljalandsmenn. Hér er aðeins stiklað á stóru en þeir sem til þekkja vita, að margt ágætis manna og kvenna fylla þennan hóp. Nú tekur birtu að bregða þennan áður nefnda vetrardag. Sokkurinn er tilbúinn, Hallur vefur saman prjónunum og stingur þeim f malpokann, hóar saman fé sfnu og heldur hcim á leið með hópinn. Dagurinn hefur verið nokkuð langur, einunt manni úti í haga, en bót í máli að tfminn var vel notaður. Enginn veit um hvað Hallur Hallsson var að hugsa þar sem hann stóð yfir fénu og prjónaði vestur f Haukadal fyrir hálfri annarri öld, en mikið má það vcra ef honum hefur ekki einhvern tíma verið hugsað til langafa sfns, hestamannsins og rfmnaskáldsins, sem lét nokkr- ar stolnar stundir á beði kvenna meina sér að eiga lokabeðinn í fslenzkri mold.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.