Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1976, Qupperneq 5

Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1976, Qupperneq 5
// Þörfin fyrir skraut er frum- stœðasta mannlega þörfin /# Henrik Groth Síðari hluti SVIK - HOSAMEISTARANNA Alla okkar ævi fylgdumst við með fagurfræðilegri megrun byggingarlistarinnar, oftast i þögulli forundran, og einstaka sinnum hrifumst við af lausnum, sem voru í senn snotrar og frumlegar. Norska timburbyggingarlistin var greinilega í sérstakri hættu og dró til sín af áfergju þá, sem minnsta höfðu hæfileikana. Fjöldaframleiðslan á einbýlis-trékössum á fjórða áratugnum dró kjarkinn úr flestum. Um leið var byggingarlistin í byggðum landsins eyðilögð. Ófögur var hin handahófskennda niðurskipun glugganna (horngluggar!), framhliðunum var sýnd óvirðing og hirðuleysi, staðlaðir gluggar, sem skiptust lóðrétt, sviptu framhliðina öllum svipbrigðum, og svip- leysið virtist reyndar markvisst. En þó að staðsetning glugganna virtist tilviljunum háð, var hún þó rökstudd: götin á veggnum gáfu til kynna „innri þörf“, þau höfðu sem sagt hlutverki að gegna — hús voru teiknuð að innan og út. En augað, sem sér — er það aðeins þræll vana og venja? Er ekki til eitt einasta hlutlægt gildi í fagurfræð- inni? Starfsmenn sláturhúsa í Vejle urðu frægir að endemum fyrir nokkrum árum, þegar þeir mótmæltu því, að ríkið tæki af sköttum þeirra og úthlutaði styrkjum til óskiljan- legra rithöfunda. Þekking mín er á svipuðu stigi og slátraranna eða öllu heldur barnsins í Nýju klæðum keisarans i þessu efni. Þó hef ég eitt fram yfir: Um allan heim eru húsameistarar að koma fram á sjónarsviðið og viðurkenna þau hörmulegu mistök, sem leikmönnum hafa verið Ijós síðastliðin 50 ár. Hinn þekkti ameriski húsameistari, Peter Blake, hefur í ýmsum ritum kvatt þær kenningar, sem hann var alinn upp við. í langri grein, „Fásinna nútíma byggingarlistar “ (The Folly of Modern Architecture), heldur hann því fram, að allt hafi verið vitlaust, allar fullyrðingar rangar. Jane Jacobs hefur án efa stuðlað að afturhvarfi hans, enda stelur hann bókstaflega frá henni. „Ég og aðrir húsameistarar með mér, við höfum uppgötvað, að ekkert af því, sem okkur var kennt, hefur staðizt reynslu tímans. Allt, sem við, bókstaflega talað, byggðum heiminn á, hefur hrunið til grunna.“ Og eftir hliðargötunni fer þá allur snillingaklúbburinn: Mies van de Rohe, Le Corbus- ier, Gropius, Breuer og Frank Lloyd Wright. t ítarlegum reikningsskilum telur Blake upp hinar niu aðalfullyrð- ingar, sem nýtistefnan (funksjónalisminn) byggist á, og sýnir fram á, að aðrar — án undantekningar — séu ósannar. Byggingarefnin gler, stál og steinsteypa eru hinn tæknilegi grundvöllur þessarar stefnu. En gler hefur reynzt bjóða margvislegum vandamálum heim. Gler um stálgrind er ónothæft, þvi að glerið þenst út, dregst saman, hleypir inn bæði hita og kulda og hefur þar að auki varhugaverð endurskinsáhrif. Glerið þolir heldur ekki þrýsting stormsins. Háhýsin voru misskilningur. En síðustu fréttir af byggingarannsóknum eru uppörvandi: Eftir 50 ár munu öll hús úr járnbentri steinsteypu hrynja niður. Þá mun steypustyrktarjárnið verða uppetið. Vatn Bysantisk áhrif á íslandi. Þetta hús við Þing- holtsstræti kannast Reykvíkingar við undir nafninu „Næpan". mun sækja inn í æðarnar og ryðið sjá um restina. Góða skemmtun! Hin nýju efni voru gífurleg freisting: Hvað gat stálið ekki borið, og steypan, og hversu óþarfar voru ekki súlur og stoðir og hve endalausa fleti var ekki hægt að búa til af gleri? Gjörið þið svo vel og verði ykkur að góðu! Þegar efnið veitir ekki mótspyrnu, hverfur listin og í þessu tilfelli jafnvel líka þyngdaraflið. Ef menn hefðu fundið upp efni, sem væri svo feikilega sterkt, að það gæti borið matarborð mitt á prjónum, hefðum við ferið skylduð til að þykja slíkt borð á nútíma flugufótum fallegt. Það var ekki aðeins, að okkar venju- bundna smekk væri hafnað. Sjálf sjóntaugin var tekin úr sambandi! En nútíma húsameistara beið mikið áfall, er þeir uppgötvuðu að fólki leið eigi aðeins betur og var ánægð- ara i gömlum húsum, heldur naut sin jafnvel enn betur i byggingum, sem á sínum tíma höfðu verið reistar í allt- öðrum tilgangi, t.d. gömlum járnbrautarstöðvum, hest- húsum, hlöðum o.s.frv. Siðustu athuganir, sem koma heim við það, sem við höfum séð í Danmörku, benda til þess, að mannkindin sé einfaldlega andsnúin hinu hag- kvæma, ráðlega, skynsamlega, gáfulega. Við þolum ekki kuldastigin frá hinni flatarmálsfræðilegu skynsemi. Við viljum búa burtséð frá tilgangi okkar. Banvænna vottorð getur nýtistefnan ekki fengið: Fegurðin býr i óþarfan- um! XXX í Sunday Taimes 28/4 1974 gengur hinn þekkti húsa- meistari Iarn Nairn feti framar í sjálfspyndingu: „Á sjötta áratugnum var það að vera húsameistari enn eitthvað heiðarlegt og virðulegt, sérstaklega ef maður byggði skóla, sjúkrahús eða bókasöfn. I dag er arkitekt skammaryrði (dirty word). Byggingarlistin er á viliigöt- um.“ Morris Lapidus lýsir því, hvernig hann snerist frá nýtistefnunni. Hann spurði sjálfan sig: Hvenær var það nákvæmlega, sem dýrið varð að manni? Hver er munur- inn á mönnum og dýrum? Sameiginlegt með bjórnum, býflugunum, fuglunum og mönnunum er hæfileikinn til að byggja sér bústað. Hver er þá munurinn? „Svarið kom hægt, en var óhrekjanlegt," segir hann. „í öllu dýraríkinu er ekki til nein tegund, sem skreytir híbýli sín eingöngu vegna skreytingarinnar. Fyrsti ein- staklingurinn, sem klindi litum á hellisvegginn hlaut því að hafa verið maður." og hann heldur áfram: „Ég held, að óskin um, löngunin í og þörfin fyrir skraut sé frumstæð- asta mannlega tilfinningin.“ Hinn víðkunni húsameistari Robert Venturi er senni- lega sá, sem ráðizt hefur harkalega á nútíma húsameist- ara. Hann telur mistök þeirra felast í ótta þeirra gagnvart ruglingi og ringulreið og áberandi vanþekkingu á sálar- fræði. Honum finnst menn eigi að líta með meiri mildi á hugtök eins og öngþveiti, flækjur og mótsagnir. Um fegurðarspilli aldarinnar segir hann: „Er þeir reyndu að brjóta hefðina og byrja algerlega að nýju skírskotuðu þeir til þess, að nútíma athafnir væru nýjar, en gleymdu því, hversu óendanlega flóknar þær eru. í hlutverki siðbótarmanna gerðu þeir sér far um sem hreintrúaðir að útiloka allt, sem var óæskilegt, í stað þess að leita að eins mikilli lifvæniegri fjölbreytni og mótsögn og unnt var.“ Hann útlistar fjölda gamalla stórbygginga frá stigahúsum, sem Michelangelo teiknaði, til ráðhússins i Briigge, en aliar voru þær búnar vissum sérkennum og útúrdúrum, svo að þær öðluðust sitt eigið lif, eigin svip. Hann tekur til samanburðar hin mörgu svið i leikritum Shakespeares og beitir fyrir sig listkenningu T.S. Eliots. Það er sennilega í von um að reita starfsbræður sína til hamslausrar reiði, að hann telur aðalgötuna i hinni illræmdu spila- og glæpaborg Las Vegas vera til hreinnar fyrirmyndar. Með þúsundum ljósaauglýsinga og fárán- legum húsum af öllum gerðum beri Las Vegas vott um lífsþrótt og fjölbreytni og mannlega leit að fegurð. En hér sést Venturi ekki fyrir i hita bardagans. Ég gæti sótt stuðning til margra heimilda, en ég hef sjð nœ'stu síöu

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.