Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1976, Side 9

Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1976, Side 9
heppileg þegar talið barst að þorska- stríðunum og þessum einstöku sjó- orrustum við brezka Ijónið. Ekki mun aðmíráll Anderson fyrirliði breta, hafa getað „sterkur í biblíu stafað sig fram" í samanburði við Eirík. Þá sátu löngum brezkir sendiráðsmenn í Reykjavik kófsveittir yfir biblíunni, eins og tornæmir fermingardrengir. Þeir voru jafnvel ræstir fram úr bólun- um um miðjar nætur til að finna viðeigandi svarskeyti fyrir Barry ,,to that crazy old man", admiral Kristofersson. Og eflaust hafa þeir líka spænt upp til agna marga biblíuna í flotamálaráðuneyti hennar hátignar í Lundúnum. Sennilega á Eiríkur engan sinn líka í allri sjóhern- aðarsögu heimsins með þessu guðs- orða-varpi og biblíuskotum sínum. Þegar vopnabúr heilagrar ritningar brást í viðureign við lögbrjóta og veiðiþjófa vilaði ekki sá gamli fyrirséi að miða beint á mökkspúandi reyk- háfana með fallbyssunni og færa þá seku til hafnar til réttlátrar hegningar. Þá var jafnan siglt eftir tvennskon- ar áttavitum, þeim sem gildir um alþjóða siglingareglur og kompási drottins og dulheima. Með hjálp þess síðarnefnda tókst Eiriki iðulega að bjarga ótal skipshöfnum úrsjávar- háska, að því er mér skildist á sjóhetj unni um yfirnáttúrulegar vísbending ar um kúrsa á hættustund. Þannig varð hann bjargvættur mörg hundruð mannslifa og munu brezkir sjómenn i miklum meirihluta. Þær eru ekki fáar þakkirnar, viðurkenningarnar og orð- urnar, sem þessum aldna aðmirál hafa hlotnazt úr hendi óvinarins. Mér fannst hann eiga allan brezka orðu- stigann i fórum sínum, allt heila klabbið nema sokkabandsorðuna, sem ég leitaði að undir buxnaskálm stríðskappans er ég málaði hann. Sæsorfið, saltveðrað og stormleðr- að andlitið var svo magnað til sköp- unar, að naumast hefir í aðra tíð rekið ákjósanlegri efniviðtil úrvinnslu á málarafjörur minar. Margskonar verk- efni hefir Eiríkur leyst af hendi með prýði um dagana á varðskipunum og sinnt allskyns snatti, eins og þegar honum var falið að sigla með Knút Danaprins um Vestfirði í gamla daga. Siglt var á fullu stimi inn á ísafjörð, þar sem heilsað var upp á samlanda prinsins, Juul lyfsala, að þvi er sagan segir eða lýgur. Var þeim veitt áfengi á heimili lyfsalans yfir apótekinu Kunni Knútur vel að meta slika risnu og saup stórum, en Eiríkur gætti hófs eins og alltaf. Þegar á fögnuðinn leið var hátigninni og hafgoðanum boðið að sjá sig um á lyfjastassjóninni á neðri hæð. Ekki þáði Knútur það og vildi sig hvergi hreyfa frá guðaveigum. Atturá móti þekktist Eirikur boð lyf- salans. Þegar Knúti þótti Eiriki og apoteker Juul (Jól) dveljast um of innan um allt lyfjasullið, smyrslin og smokkana og flaskan tóm á efri hæð, vatt prinsinn sérfram á stigapallinn og öskraði niður eins og bandóður skipp- er í lyftingu og haugasjó: „Hr. Páske (páskar) eller hr. Pinse (hvitasunna) eller hvad De i helvede heder. Kom her op með mere brændevin!" Marg- ar slíkar sögur lognar og ýktar hafa spunnizt í kring um Eirík á sjóferðum hans. Þegar Eirikur brá sér til Spánar meðan á myndsköpun stóð bað ég hann lengst allra orða að stunda ekki stanzlaust kvennafar vegna aldurs Slik áreynsla væri vísust til að koma fram og skaða málverkið við heim- komu og það væri ekkert einsdæmi um Spánarfara, að þeir kæmu fram- lægri heim en við brottför Þær spönsku væru vísastar til að slæva og

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.