Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1976, Page 12
V' I.YVV
uhté
r f f 4.1 4 "i i 1 • m
Kórfélagar í söngför í
Bandaríkjunum 1946.
Frá söngæfingu fyrir
Ameríkuferðina 1960.
Eldri félagar með heiðurs-
merki félagsins við vígslu
félagsheimilisins.
Nokkrar eiginkonur kórfélaga hafa haldið flóamarkað til ágóða fyrir kórstarfið.
KARLA-
KÓR
REYKJA-
VÍKUR
50ára
Karlakór Reykjavíkur á
50 ára afmæli á þessu ári
og er afmælisins minnzt
með ýmsu móti. Kórinn var
formlega stofnaður 3.
janúar 1926 og var Sig-
urður Þórðarson tónskáld
aðalhvatamaðurinn að
stofnuninni. Hann var þá
nýkominn frá hljómlistar-
námi I Þýzkalandi og varð
frá upphafi stjórnandi kórs-
ins allt fram til 1962 eða í
nær 36 ár.
Tveimur árum síðar tók
Páll P. Pálsson við söng-
stjóminni og hefur haft
hana með höndum síðan.
Kórinn er skipaður 40
söngvurum en styrktar-
félagar eru nálega 2000
talsins.
Karlakór Reykjavíkur
hefur löngum getið sér gott
orð bæði hérlendis og
erlendis. Kórinn hefur
staðið fyrir hljómleikum
hér heima fjórum til fimm
sinnum á ári, aðallega fyrir
styrktarmeðlimi og m.a.
haldið fjölmennustu hljóm-
leika sem haldnir hafa verið
hérlendis. Þeir hljómleikar
voru haldnir í samvinnu við
starfsmannafélag Sinfóníu-
hljómsveitar íslands í
Laugardalshöllinni árið
1969. Voru þeir í tvennu
lagi og sóttu þá um 6000
manns.
Auk fjölmargra hljóm-
leika vítt og breitt um
landið hefur kórinn gert
víðreist erlendis. Utan-
landsferðirnar eru nú
orðnar 9 talsins og heim-
sótt hafa verið lönd bæði
austanhafs og vestan. 10.
söngförin er nú ráðgerð á
50 ára afmælinu til íslend-
ingabyggða í Kanada.
Þá er einnig þess að geta
aðáárunum 1971—75
söng Karlakór Reykjavíkur
inn á sex LP-plötur lög eftir
þekkt íslenzk tónskáld en á
einni plötunni eru
eingöngu íslenzk þjóðlög.
Nú vinnur kórinn að
hljómpiötuútgáfu með 14
lögum eftir hinn vinsæla
stjórnanda sinn, Sigurð
heitinn Þórðarson.
í tilefni afmælisins bauð
kórinn hingað til lands
þremur erlendum karlakór-
um til hljómleikahalds fyrir
styrktarfélagana en auk
þess munu gestirnir halda
sérstaka hljómleika fyrir
almenning bæði í Reykjavík
og úti á landi.
Ráðgert er að Karlakór
Reykjavíkur komi fram á
Norrænum músíkdögum í
júnimánuði og flytur þá
m.a. verk eftir norska tón-
skáldið John Persen, sem
hann samdi sérstaklega
fyrir kórinn og fékk til þess
styrk frá Norræna menn-
ingarsjóðnum. Kórinn flyt-
ur þá einnig nútímaverk
eftir sænskt tónskáld.
í haust mun kórinn flytja
ásamt Sinfóníuhljómsveit
íslands Hátíðamessu Sig-
urðar heitins Þórðarsonar
sem Atli Heimir Sveinsson
er nú að setja út fyrir
hljómsveit.
í stjórn Karlakórs Reykja-
víkur eru nú: Ragnar
Ingólfsson, formaður,
Margeir Jóhannsson, vara-
formaður, Jón Hallsson,
gjaldkeri, Ástvaldur
Magnússon, ritari, og Helgi
Bachmann, meðstjórnandi.
í tilefni 50 ára afmælis-
ins eru kórnum hér með
færðar þakkir fyrir giftu-
drjúgt starf i þágu söng-
menntar á íslandi og
honum óskað velfarnaðar i
framtiðinni.