Lesbók Morgunblaðsins - 05.09.1976, Page 4

Lesbók Morgunblaðsins - 05.09.1976, Page 4
eftir kvarnarsteinum með kross- marki og einnig steinum með versi. T.d. var þetta vers á efri steininum í kvörn á Svínanesi í Múiasveit: Drottinn, í þínu föð- urnafni, nú á ný ég til starfa vendi, haltu yfir mér verndar- hendi. Við erum setzt við stóra kistu undir súð í öðru herbergi (reynd- ar á legubekk úr eigu Páls Kolka og fylgir honum sú saga að á bekknum hafi Páll Kolka legið Á HNJOTI í einu horni herbergisins hanga íslenzkir skór eins og þeir gerðust áður fyrr og voru hið eina skótau sem íslendingar höfðu á fætur sér öldum saman: sauðskinnsskór, sem flestir þekkja, roðskór úr steinbítsroði, sem sjaldséðari eru — og hveljuskór sjaldséðir mjög, sem cntust verst og voru ekki notaðir nema þar sem fátækt var mikil. Áður fyrr voru vegalengdir mældar í roðskóaleið, segir Egill. T.d. var leiðin frá Iivallátrum, bakatil við Látrabjarg og í Kefla- vík, fram og til baka, talin sex roðskóaleið og þurfti þá mikið af bótum til að leggja í skóna á leið- inni að auki. (Þ.e. leiðin yfir Látraheiði 18 km hvora leið). Skyldi nútímafólk ígrunda þetta. Og Egill heldur áfram: Hér er rekublað úr hvaibeini, sem fannst hér á Hnjóti, mörg hundruð ára gamalt, og sláttuhæll.. . Sláttuhæll? Þeir voru notaðir þegar sláttu- menn fengu borgað eftir afköst- um. Þá voru sláttuhælar reknir niður í teiginn og taug strengd á milli. Þannig voru dagsláttur mældar... í skáp frammi á ganginum er margt merkra muna. Egill bendir okkur á gamlan myllustein en í hann er hoggið krossmark og fangamark Krists. Steinninn hef- ur'greinilega verið mikið notaður því oft hefur þurft að höggva ný göt í kantinn fyrir handfangið. Steinninn er merktur 568 og til þess að gefa örlítið dæmi um hvernig Egill skráir upplýsingar um muni sína, flettum við í skránni. 568: Kvarnasteinar úr mél- kvörn, fundust í uppsátri undir Hafnarmúla árið 1966. Efri steinninn er með krossmarki og stöfunum I.H. Þórður Guðbjarts- son á Patreksfirði segist muna þegar hann var að yrkja). Egill færir hvern merkisgripinn af öðr- um upp úr kistunni. Þaðan kemur stór öðuskel, báðir helming- ar.Helmingarnir voru notaðir sem spænir í verstöðvum og á fátæk- ari bæjum. En á helmingunum er greinarmunur. Annar hét íhand- arskel og var fyrir rétthenta, hinn helmingurinn úrhandarskel og var fyrir örvhenta. Þessu finnst mér gaman að, segir Egill, það segir sina sögu. Nr. 725. Fleytiskel. Við gáum I skrána til að fá nánari vitn- eskju! Notuð til að ná fugla- feiti ofan af soðinu í potti (feitin kölluð smolt) af bjargfugli. Feitin síðan borin í uli og ullarkamba. Þótti þá mýkri. Og enn: afspikunarhnífur af selveiðiskipinu Kóp, eina íslenzka Eins og sjð má er þröngt setinn bekkurinn Kvarnarstetnn I stokk. Teikning úr safni Egils.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.