Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1976, Qupperneq 8

Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1976, Qupperneq 8
Kafli úr bökinni SAFETY LAST eftir Brian Powers- Water um vankanta ö flugöryggi í Bandarikjunum ÖRYGGIÐ ER AU KA- ATRlÐl Fyrri hluti Hér segir af Edda Ijönheppna v. • • » 10 Ws ED QUINN fæddist og ólst upp í miðstéttarhverfi í Brooklyn í New York. Níu ára gamall heill- aðist hann af flugi og hefur verið viðriðinn það upp frá því. Hann byrjaði að safna flugvélalfkönum og þegar ekki komust fleiri fyrir í bókaskápnum hengdi hann þau neðan í loftið þar til varla varð lengur komizt inn í herbergið. Ed var lágur vexti og grannur og lagði því aldrei stund á fþrótt- ir, scm tóku mestan frítíma flestra skólabræðra hans. Ed átti sér aðeins eitt áhugamál og það var flug. Hann vann í nýlendu- vöruverzlun eftir að skóla lauk á daginn og auk þess í keiluspils- stofu. Allar helgar var hann hins vegar úti á Brooklyn Air Park, flugvclli þar í nágrenninu. A nokkrum fresti tókst honum að safna átta dollurum. Fyrir það mátti fá hálftfma kennslu í flugi og í hvert sinn, sem Ed hafði önglað saman þessari upphæð tók hann reiðhjól sitt og brunaði út á flugvöll. Scxtán ára flaug hann einflug. Flugtímum hans fjölgaði jafnt og þétt og von bráðar hafði hann fjörutiu tíma að baki. Hann var þá þegar búinn að verja sex hundruðum dollara til flugnáms- ins. Og nú var hann reiðubúinn að þreyta próf til einkaflug- mannsréttinda. En þá skall hcimsstyrjöldin á og Ed varð að hætta náminu í bili. Hann sá sér þó nýjan leik á borði; nú gæti hann orðið herflugmað- ur. t júní árið 1941 þreytti hann mörg og þung próf og stóðst þau öll — og komst í herskóla. Hann var nú orðinn liðsforingjacfni. Að vísu gazt honum Iftt að þeirri tilhugsun, að hann kynni að lenda í bardögum og verða fyrir skot- um. Betur leizt honum á það að fljúga fyrir borgun. Hann varð að sæta nokkurri skólavist áður en hann fengi að fljúga. Námið reyndist honum erfitt og hann náði með naumind- um forprófi, sem Ijúka varð áður en kæmi að fluginu sjálfu. En hann komst i flugskólann. Þar flaug hann fyrst vél svipaðri þeirri, sem hann hafði reynt áður. Iionum gekk í betra meðallagi í flugskólanum þangað til kom að öðru stigi. Þá átti hann fyrir höndum að fljúga vél af gerðinni BT-13; hún var fjórum sinnum aflmeiri en hann átti aðvenjast og mælaborðið öllu flóknara viður- eignar. Var ijóst, að nú yrði Ed að taka á honum stóra sínum. Fyrstu stundir manns í nýrri vel eru ævinlega erfiðar. Engar tvær vélar eru eins f flugi og stundum eru menn lengi að kynn- ast nýjum vélum. Þegar Ed hafði lokið hámarkstfmum fyrir ein- flug kom kennari hans að máli við hann og kvað framfarir hans ekki nógu góðar. Yrði hann til öryggis sendur í prófflug með yf- irforingjanum. Það fór um Ed þegar hann heyrði þetta. Varð hann altekinn prófhræðslu, sem oft kemur f flugmenn fyrir prófflug. Þegar dró nær lokafluginu var hann orð- inn svo illa haldinn að hann vissi naumast sitt rjúkandi ráð. Hann stóðst ekki flugprófið og var að lokum gerður skytta. Gegndi hann því starfi til stríðsloka. Hann var leystur frá herþjón- ustu árið 1945. Þótti honum sem hann hefði hreppt i11 örlög í flug- hernum, en var jafn ákveðinn og áður að verða flugmaður. Hann hélt aftur til Brooklyn og fékk vinnu á flugvellinum þar. Hann vann mikið og lagði fyrir hvern eyri, sem hann gat til þess að geta greitt fyrir flugtíma. Hann fór að gera sér góðar vonir. Hann var aftur kominn á loft eftir langt hlé, og hann sá fram á atvinnu- flugmannsréttindi, því að nú var hann búinn að afla sér þess, sem þurfti til að verða aðstoðarflug- maður hjá flugfélagi. Reit hann öllum flugfélögum, er honum komu f hug og sótti um starf við sitt hæfi. Nú var það af, sem áður var, er honum þótti skemmtilegast alls að fara út á flugvöll; nú gat hann naumast beðið þess að komast frá flugvellinum heim til sin og gá f póstkassann að svarbréfum frá flugfélögunum. Hann fékk svo sem svarbréf. En því miður voru þau öll á eina lund. Enginn vildi ráða hann. Flestir höfðu það helzt á móti honum, að hann hcfði fáa flugtíma; þeir voru aðeins fjögur hundruð, þegar þarna var komið sögu. Ed hafði jafnan við hendina stórt spjald, þar sem skráðar voru starfsumsóknir hans í réttri röð og merkti hann jafnóðum við þær á listanum, er hann fékk svör frá flugfélögunum. Hann var vongóð- ur framan af og staðráðinn í því, að gefast ekki upp, þótt biési á móti. En undirtektir manna viö umleitunum hans voru heldur daufar og útlitið varð æ dekkra. Ed varð æ þyngra í skapi og þar kom, að hálfgcrð örvænting greip hann. Hann velti því jafnvel fyrir sér að gerast búverkamaður eða fara að fljúga um á Iftilli rcllu með auglýsingaborða í eftirdragi, eins og tíðkast í Bandaríkjunum. Loks fékk hann bréf frá Eastern Airlines. Var hann vin- samlega beðinn að mæta til við- tals í skrifstofu félagsins í Man- hattan. Hann varð frá sér numinn af fögnuði. Þarna var komið tæki- færið, sem hann hafði beðið. Brátt yrði hann atvinnuflugmað- ur. Hann gekk undir forpróf í New York og stóðst þau. Svo var hann sendur f læknisskoðun á La Guardia og loks kvaddi yfirflug- stjórinn hann á sinn fund. Ed kom á tilsettum tíma. „Charlie Pratt heiti ég. Fáðu þér sæti“, sagði yfirflugstjórinn. „Þakka yður, herra“, svaraði Ed tyllti sér á stólbrúnina, spennti greipar og klemmdi saman fót- leggina. Honum þótti sem hann væri kominn aftur í herskólann. „Vertu rólegur", sagði yfirmað- urinn. „Þú ert ekki í hernum lengur. Eg sé annars á umsókn- inni, að þú hefur lengst af verið í’ almennu flugi. Hvað um flugtíma þinn í hernum?“ Nú fór að fara um Ed. Hann svaraði ekki sam- stundis, en velti því fyrir sér hvort hann ætti að segja sannlcik- ann eða Ijúga og lifa eftirleiðis f voninni um það, að flugfé- lagsmenn kæmust aldrei að sann- leikanum í málinu. Vinur hans einn, Charlic Root að nafni, hafð hrökklazt úr flugskóla. Hann sótti síðan um starf hjá Pan American og sagði mönnum þar, að hann hefði aldrei flogið í hernum. Hann var sendur í forskóla og var hálfnaður ■ námi, þegar upp komst um hann og hann var rek- inn fyrir þá sök að Ijúga í umsókn. Ed þorði ckki að hætta á þctta og tók hann þann kost að segja satt frá öllu. „Ég átti í cngum vandræðum með J-3 Cubvélarnar, herra", sagði hann. „Það var ckki fyrr en ég átti að fljúga BT-13, að mér fór að ganga erfiðlega". „Hvað var að?“ spurði yfirmaðurinn. „Ja, mér tókst bara ekki að læra á vélina á þeim tíma, sem mér var gefinn. Og kennarinn sagðist ekki geta gefið mér lengri frest. Þetta var í stríðinu, tíminn var naumur og mcira er ekki um það að segja". „Hvcrnig dettur þér þá í hug, að við gctum gcrt nýtan flug- mann úr þér?“ spurði yfirmaður- inn. „Þú veizt Ifklega, að við gcr- um ekki minni kröfur en herinn. Öryggi farþega okkar gengur fyr- ir öllu“. Ed laut fram f sætinu. „Pratt flugstjóri", sagði hann. „Ég veit, að flugtimi minn er skammur og vélarnar, sem ég hef flogið, eru hálfgerð barnaleik- föng. En ég er sannfærður um það, að ég get orðið góður flug- maður. Alla ævi hefur mig langað að verða atvinnuflugmaður. Ef þér gefið mér tækifæri til að sanna getu mína mun ég ekki bregðast yður“. Pratt las umsókn Eds öðru sinni. Eftir stundarkorn lagði hann hana frá sér og sagði: „Mér þykir hreinskilni þín og þolgæði aðdáunarverð. Ég ætla að hætta á þetta; þú mátt byrja í skólanum eftir hálfan mánuð“. Ed varð himinlifandi. Hann stökk á fætur og þrýsti hönd Pratts svo, að það var engu Ifkara cn þarna hefðu fornvinir hitzt eftir langan að- skilnað. „Þakka yður fyrir, flug- stjóri", sagði Ed hvað eftir annað. „Þetta er mikill greiði. Ég mun ekki gleyma honum". Nú var Ed Quinn ekki bráð- skarpur. En hann hafði það fram yfir marga sína Ifka, að honum var það Ijóst. Hann hóf námið af miklu kappi og slakaði aldrei á

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.