Lesbók Morgunblaðsins - 06.02.1977, Qupperneq 5
heimfært uppá einstöku menn,
að blásaklausir nemendur frá
tslandi væru beinlfnis heila-
þvegnir með pðlitfskum áróðri
og hefðu uppfrá þvf lftinn
áhuga á öðru en pólitfskri list?
— Helgi: — Ég tel það fjarri
lagi. Vinnubrögðin f þessum
skóla þóttu mér góð, enda
tryggir svona lftið úrtak, að
áhugasamir nemendur komast
inn; það er fólk sem ætlar sér
eitthvað annað en að slæpast. t
sambandi við stúdentaóeirðirn-
ar og það sem sfðar gerðist,
finnst mér ekki, að neitt hafi
farið úr böndunum f Valand-
skðlanum. Engar grundvalfar-
breytingar á kennslu áttu sér
stað. Megininntak skólans var
og er náttúrustúdfa, sem fram
fer með þvf að vinna eftir lif-
andi módeli innanhúss, eða
gaumgæfa náttúruna utanhúss.
Einu sinni f viku er fyrirlestra-
dagur; nemendur eru þá með f
ráðum að velja fyrirlesara og
fleira gerist markvert um leið:
Fyrir hádegi sýna nemendur
verk sfn og þá verður hver að
standa fyrir þvf sem hann sýnir
og þarna kemur fram hörð
gagnrýni og verða oft miklar
umræður. Stundum var
sænskum listamönnum boðið
sérstaklega að koma með verk
sfn til umfjöllunar og var þvf
vel tekið og jafnvel talið eftir-
sótt, enda mjög jákvætt fyrir
þá ekki sfður en okkur. Á
þennan hátt tengjast menn
skólanum, enda finna flestir
þunglega til þeirrar einangrun-
ar, sem oftast vill verða þegar
skólanámi lýkur og hver fer að
vinna f sfnu horni.
En það er bara áróður og bull
að einhverjir hafi verið heila-
þvegnir með pólitfskum áróðri.
Ég sá ekki betur en allskonar
skoðanir ættu að sér málsvara,
bæði til hægri og vinstri og mér
fannst einmitt vera rfkjandi
umburðarlyndi.
Umfram aílt var borin
virðing fyrir þvf gamla f list-
inni, fyrir sjálfri kjölfestunni.
Ég held að sú fanatfk hafi ekki
átt sér málsvara þar, sem lfta á
allt gamalt sem ónýtt og úrelt.
— En væntanlega hefur verið
ofarlega á baugi, að listin gegni
ákveðnu hlutverki f þjóðfélag-
inu og til hvers hún eigi að
vera?
— Já, það voru miklar um-
ræður um það, til hvers listin
eigi að vera. Um það er hægt að
bollaleggja endalaust.
— Og hvað finnst þér? A hún
að vera til skrauts á stofu-
veggjum borgaranna, eitthvað
sem glcður augað, eða á hún að
vera til að vekja fólk til um-
hugsunar um kjör sfn og ef til
vill þá kúgun og það ranglæti
sem það á við að búa?
— Hún getur verið þetta allt.
Pólitfsk list með boðskap, eða
hlutlaus list, sem rfs á að at-
huga umhverfið og náttúruna.
Það skiptir ekki máli. Aftur á
móti verður ekki undan þvf
vikizt, að hvert svo sem inntak-
ið er, verður ekki komizt fram-
hjá því fagurfræðilega. Til-
gangurinn helgar ekkert meðal
hér. Það verður að gera sömu
listrænar kröfur til þeirrar
listar, sem gerir boðskapinn að
aðalatriði. Þetta var niður-
staðan hvað mig sjálfan
áhrærði.
— Þær skoðanir hafa þo
stundum heyrzt, að svokölluð
stofulist ætti Iftinn rétt á sér í
nútfma þjóðfélagi.
— Við afneituðum ekki
stofulist. En við vildum gera
greinarmun á skólaðri list og
til dæmis þeirri amatöralist
sem f Svfþjóð er kallað
„Mögtorgsmáleri.“ Þá er átt við
myndir af þvf tagi,sem vfða
sjást f borgum erlendis og eru
gjarnan seldar úti undir berum
himni. Sú afstaða var Ifka
tekin, að leikmannalist ætti að
vera til og hlyti raunar að
þrffast samhliða hinni, þar sem
þörfin að tjá sig f mynd er
almennt, mannlegt fyrirbæri.
— Svo þið hafið reynt að
temja ykkur vfðsýni, sem
kannski kemur á óvart og er að
minnsta kosti ekki f samræmi
við harðlfnuna, sem uppi var
fyrir svo sem tveimur áratug-
um, þegar ungir menn komust
að þeirri merkilegu niðurstöðu
að ýmisiegt, sem lengi hafði
fylgt myndlistinni væri úrelt
og bæri að farga þvf; þar á
meðal var landslagsmálverkið
minnir mig.
— Það var ekkert slfkt á
ferðinni. Landslagsmálverkið
var talið gott og gilt, þvf
skólinn lagði svo mikla áherzlu
á umhverfið og næmi málarans
gagnvart þvf. Þetta er eitt af
þvf sem blfvur; stúdfan á
náttúrunni gengur eins og
rauður þráður gegnum mynd-
listarsöguna.
— En hitti ekki popplistin
beint f mark hjá ykkur?
— Við unnum mikið f popp-
list f frjálsu deildinni á fimmta
vetri f skólanum hér. Og það
voru þær myndir, sem sendar
voru utan og á þeim komst ég
inn f Valand-skólann. Vfst þótti
mér gaman að þessu þá, — en
flutningurinn f annað um-
hverfi átti sinn þátt f að breyta
gildismatinu. Maður fékk
nýjan sjóndeildarhring. Ég tel
samt ávinning að hafa kynnst
og fengizt við popplast.
Abstrakt myndlist hefur aftur
á móti ekki höfðað til mfn á
þann hátt að mig langi til að
leggja hana fyrir mig og þess-
vegna hef ég ekki fengizt við
hana.
— En getum við þá sagt, að
þú komir heim með einhverja
sérstaka stefnu f farangrinum?
— Maður kemur heim með
viðhorf, sem er alveg mótað og
byggt á þeim niðurstöðum sem
fengizt hafa gegnum árin. En
ég biðst undan þvf að gerast
innflytjandi einhvers isma,
hvort sem það væri nftugasta
og nfunda útþynning af skandi-
navfskum Bacon, eða eitthvað
annað. Hér er sá jarðvegur sem
Sjá næstu sfðu.