Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1977, Side 5
YVES SAINT LAURENT
hinn feimni tízkukonungur Parísar
Jafnvel keppinautar hans, sem annars
eru svo afbrýðisamir, segja það
öfundarlaust: Yves Saint Laurent er
áhrifaríkasti ' tízkuhöfundur í heimi.
Fyrir tuttugu árum varð tízkulærlingur-
inn frá Alsír á einni nóttu arftaki Diors.
Hann er fyrir löngu búinn að afla sér
frægðar og frama á við læriföður sinn.
Þegar Yves Saint Laurent sýnir nýjustu tfzkuverk sin . minnir það á Versali á
dögum sólkonungsins, Lúðvlks XIV. Að neðan: Það vakti athygli, þegar
tlzkufrömuðurinn lét mynda sig i gleraugum einum fata. Myndin var slðan >
prentuð á veggspjöld.
bragðið frábært. Auk þess eru
þeir, hvað stil snertir, ðvallt að
minnsta kosti einum árstima á
undan i rikjandi tizkustefnu —
og þess vegna hægt að klæðast
þeim mjög lengi.
Hann hefur fundið upp kven-
smókinginn, gert regnkápur, bux-
ur og stigvél að samkvæmis-
klæðnaði, látið fellingapils, sport-
jakka og skyrtublússur verða að
eftirsöttum, sígildum fatnaði —
og jafnframt innleitt kvenlegt
tildurlcysi i tízkuna.
1 fjóra daga hef ég haft tæki-
færi til að fylgjast með Yves
Saint Laurent að starfi við undir-
búning haust- og vetrartízkunnar.
Það er enginn vafi á því: Feimni
hans og óframfærni er engin upp-
gerð — er kross hans, en ekki
ánægjuefni.
Á fimmta degi sit ég við hlið
tízkuhöfundarins á ljósbrúna
leðursófanum i 12 herbergja íbúð
hans við Rue de Babylone, sem
hann hefur búið í i sex ár ásamt
vini sínum og samstarfsmanni,
Pierre Bergé og Chihuahua-
tíkinni Hazel. 6 manna þjónustu-
lið annast um þau.
Mikill anna- og átakatími
liggur að baki. Saint Laurent
hefur þegar sýnt hina 106 módel-
kjóla haust- og vetrartízkunnar,
en á hverju ári teiknar hann
tvívegis röð eða safn af kjólum
bæði „Haute-Couture“ (þ.e. sem
aðeins er framleitt einu sinni) og
til almennrar framleiðslu. Síðast
vann hann daga og nætur á teikni-
stofu sinni — allt var fullkomið
— og síðan tekur hann að nýju út
þjáningar við sýningu á hverju
módeli: Grár og gugginn og
titrandi var hann að tjaldabaki i
tvo tíma að vefja sýningar-
dömurnar sínar sjölum, vinda
þeim vefjarhetti um höfuð og
stinga f jöðrum og gullrósum I hár
þeirra, en gleymdi allan tfmann
að kveikja 1 sígarettunni, sem
hann hafði f munninum, þó að
annars sé hann sfreykjandi. Að
sýningunni lokinni er honum ýtt
fram á sviðið, þar sem hann
stendur eins og illa gerður hlut-
ur, honum er ákaft fagnað, hann
er faðmaður. og kysstur, hann
andar léttara og það er ekki laust
við, að hann brosi — og þarna er
þá konungur Parísar. Hann var
búinn að kynna tfzku sem myndi
gera konurnar aftur að konum.
Engar stakar buxur — en aftur á
móti vfð pils með mjóu mitti og
víðar blússur. Viðbrögð blaðanna
voru snögg. „Hcrald Tribune"
kallaði sýninguna „byltingu“,
„New York Times“ birti mynd af
einum módelkjólnum á forsíðu —
og það var í fyrsta sinn, sem slíkt
myndefni hafði verið á þeirri síðu
— og Tony Snowdon, sem hefur
snúið sér frá ensku hirðinni en að
sfnu fyrra starfi, tók að sér að
taka myndir af Saint Laurent-
módclum fyrir 20 sfður i
ameríska ritinu „Vouge“.
„Þetta var miklu meira en
venjuleg sýning", segir Saint
Laurent á leðursófanum í Rue de
Babylone, „þetta var smekksyfir-
lýsing mín, opinberun á því, á
hverju ég hefði mest dálæti í
öllum efnum.“
Hvort hann geri sér Ijóst, að
hann sé áhrifamesti tízku-
höfundur í heimi?
„Já“, segir hann, „ég er sann-
færður um það. Og þar að auki:
Ef maður gerir eitthvað vel, alveg
sama á hvaða sviði það er, þá veit
maður það. Það kemur ekkert
mikilmennsku eða stærilæti við.
Framhald á bls. 15
Fyrir sýningu rtkir feyki-
leg spenna I aðalstöSv-
um tfzkukóngsins; mikið
liggur við að halda þvt
orðspori, sem fengizt
hefur. St. Laurent legg-
ur sjðlfur slSustu hönd á
búnað sýngarstúlkn-
anna, hvert smðatriði er
háð samþykki hans.
1 öllum hinum 35 herbergjum
tfzkubyggingar Yves Saint
Laurent í París hangir mynd af
honum, og það er jafnóhaggan-
legt lögmál, eins og að mynd af
Bretadrottningu hangi f opinber-
um, enskum skrifstofum. Sá sem
vinnur fyrir Yves Saint Laurent
skal ekki gleyma þvf eitt augna-
blik. Myndirnar eru f svartri um-
gjörð, og meistarinn er alvarleg-
ur á svipinn. Svo virðist sem þessi
tfzkuskapari brosi aidrei.
Það er sagt, að hann sé erfiður
viðfangs og feiminn. Honum er
jafnvel gerð upp sjúkleg feimni.
Er hér um auglýsingabragð að
ræða? Þegar til lengdar lætur
eykur það á frægðina að vera
alltaf í felum. Og frægðin eykur
aftur söluna: Fyrirtæki Yves
Saint Laurent sem stofnað var
fyrir 15 árum, veltir nú árlega
jafnvirði 50 milljónum marka.
Ennfremur velta þeir fram-
leiðendur viðs vegar um heim 500
milljónum marka, sem selja alls
43 vörutegundir undir vöru-
merkinu „Yves Saint Laurent‘%
frá ilmvötnum og sólgleraugum
til karlmannafatnaðar og gólf-
teppa. Fyrir það greiða þeir tízku-
húsinu verulegar upphæðir í leyf-
isgjöld.
Yves Mathieu Saint Laurent,
fertugur að aldri, er sagður
áhrifamesti tfzkuhöfundur í
heimi. Enginn — og um það eru
menn í faginu sammála — kann
betur en hann að túlka sam-
tímann f tízku. Hann hefur
fundið uppskriftina að þvf,
hvernig eigi að búa til klæðnað,
sem nútfma konur einmitt óska
sér. Og síðan fer allur heimurinn
eftir þeirri uppskrift. Vissulega
eru módelkjólar Saint Laurents
dýrir, en efnið er dýrmætt, hand-