Lesbók Morgunblaðsins - 22.01.1978, Síða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 22.01.1978, Síða 2
Hlaup með langhlaupahraða út- heimtir 15 hitaeiningar á minútu, eða 450 hitaein- ingar á hálftímann. Góð al- hliða æfing, styrkir hjarta og lungu, bætir þrek. að fara niður langa brekku t svigi er erfiðara en halda mætti og útheimtir 9,9 hitaeiningará mínútu eða 594 á tfmann. Tennis er þvf miður ekki iðkað hér, en trúlega álika erfitt og badminton. í tennis fara 7.1 hitaeiningar á mínútu, eða 426 f klukkutíma leik. skemmtileg innanhúss- íþrótt, sem vfða er hægt að leika. Þar fara 6 hitaeining- ar á mfnútu eða 180 i hálf- tfma leik. Róður rólegur róður á smábát er alhliða áreynsla. sem út- heimtir 5 hitaeiningar á mínútu, eða 300 á tfmann. Sund á rólegu sundi fara 5 hita- einingar á mfnútu og klukkustundar sund fer með 300 hitaeiningar. Golf miðað við eðlilegan leik- hraða þarf 5 hitaeiningar á mínútu. Oftast tekur 2 tíma að leika 9 holur, sem þýðir 600 hitaeiningar Hljólreiðar á rólegan hátt á venjulegu hjóli fara með 4.5 hitaein- ingará mfnútu. Klukku- stundar hljólreiðatúr: 270 hitaeiningar. íþróttir og hitaeiningar Hreyfing er aiger nauðsyn. Þrekið vex, líðanin batnar og aukakílóin fjúka, þegar íþróttir og útilíf er stundað að einhverju marki. Best er að saman fari æfing og ánægja, enda er um margs- konar hreyfingu að ræða. Bandarískir sérfræðingar hafa reiknað út, hvað klukkustundar iðkun ýmissa íþrótta útheimtir margar hitaeiningar. Offita og meðfylgjandi æða- og hjartasjúkdómar hrjá íslendinga eins og aðrar vel- megunar- og háneyzluþjóðir. Nýlega er afstaðin í sjónvarpi herferð með það fyrir augum að hjálpa fólki í baráttunni við aukakílóin. Mestu máli skiptir hvað borðað er, en iþróttir ýmisskonar geta einn- ig komið að haldi og hafa auk þess þýðingu á þá veru að styrkja og stæla viðkom- andi. Margur þekkir það af sjálf- um sér, að hafa með góðum ásetningi byrjað á skokki eða einhverri hreyfingu, en aldrei haft gaman af því og hætt þessvegna. í annan stað er veðurfar á íslandi með þeim hætti, að oft kemur það í veg fyrir útilif. Fljótvirkasta og áhrifamesta aðferðin er gangur og hlaup til skiptis og útheimtir slík æfing ekki langan tíma. Aðalatriðið er að fá sig móðan. Benedikt heitinn Jakobsson, sem mældi þrek íslendinga og leiðbeindi fólki með þrekæf- ingar, lagði áherzlu á „að setja vélina i gang" og átti hann við með því, að maður yrði að mæðast til að fá aukið þrek. Sú hreyfing, sem er svo hæg að maður mæðist ekki af henni, getur þó komið að góðum notum til þess að halda vigtinni niðri, en eftir þvi sem hreyfingin er hægari og auðveldari, útheimtir hún lengri tíma til þess að gagn verði af. Með öðrum orðum: Hálftima hlaup útheimtir 450 hitaeiningar, en með hægum gönguhraða verður að labba i rúma tvo klukku- Skautar með því að viðhalda rólegri ferð á ísnum þarf 6 hitaein- ingar á mínútu og 360 á timann. Hraður gangur er góð æfing, sem útheimt- ir 5,6 hitaeiningar á min- útu. Klukkutlma gangurfer með 320 hitaeiningar. Hægur gangur er hentug æfing þeim, sem komnir eru til ára sinna eða eru lasburða. Sllkur gangur fer með 3.6 hitaeiningar á minútu. eða 216 á timann. 3.0 Hestamennska Það fer að sjálfsögðu eftir hestinum, hversu mörgum hitaeiningum maður eyðir á hestbaki. Á þægum hesti á rólegu brokki eyðir knapinn 3 hitaeiningum á mlnútu. eða 180 á tlmann.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.