Lesbók Morgunblaðsins - 22.01.1978, Síða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 22.01.1978, Síða 4
Rósa Ingólfsdóttir, auglýsingateiknari, leikari, lagasmiður og söngkona segir frá 1 „Auglýsingateikning — það er heimur út af fyrir sig. Samkeppnin er svo hörð; alveg voðalega hörð og þetta er hálfgerð leyniþjónusta með mafíuyfirbragði. Hinn almenna blaða- lesanda grunar þetta ekki, þegar hann les dagblöðin og rennir augun- um yfir auglýsingarnar. Allt er slétt og fellt og fallegt. Það hefur verið talað um auglýsingateikningu sem tízkustarf; eitthvað sem er í líkingu við að vera flugfreyja eða sjónvarps- þulur. Sem sagt; spennandi starf og skapandi. Jú, það er skapandi. En að öðru leyti er það talsvert frábrugðið þeim hugmyndum, sem margir virð- ast hafa. Sannleikurinn eröllu fremur sá, að hver er að pukrast í sínu horni. Auglýsingafólk lítur hornauga hvað á annað. Þar gætir mikillar tortryggni. Afbrýðisemi er ríkjandi innan þessa hóps og ótti við að hugmyndum sé heimsókn til kolleganna og það er takmarkað, sem þeir geta rætt saman um fagið. Allir virðast vera á varð- bergi og samtalið verður einatt mjög vandræðalegt. Samt er reynt að líta á okkur sem hóp, sem eitthvað á sam- eiginlegt og það eru haldnar sam- komur, teiknaraböll — og einnig þar pukrast hver í sínu horni. Helst af öllu mundu menn vilja ræða saman um hugmyndir, sem skipta mestu máli. En þeir geta það ekki." ' 2 „Auglýsingateikning já, — það er skapandi starf og mjög skemmtilegt. En kjarni málsins er aungvu að síður sá, að þetta er slagur um peninga og annað ekki. í skólanum höfðum við aðeins óljósan grun um, að þarna væri samkeppni á ferðinni, en við vissum ekki, að hún væri svona grimm. Við höfum okkar siðareglur, sem við erum bundin af. En siðaregl- urnar banna okkur ekki til dæmis, að bjóða fram þjónustu okkar og nýjar hugmyndir hjá fyrirtæki, sem við vit- um, að er með samning við annan auglýsingateiknara. Samkeppnin er frjáls og ekkert við því að segja. Hver og einn verður bara að standa sig. Á sama hátt er ekkert sem bannar okk- ur að auglýsa þjónustu okkar opinber- lega. Alltaf er eitthvað um undirboð, en yfirleitt halda menn sig við taxtann og svo fer það eftir stærð samnings og umfangi vinnunnar, hversu mikill af- sláttur er gefinn. Auglýsingar í blöð- um ber kannski oftast fyrir augu, en þesskonar auglýsingar eru aðeins partur af starfi teiknarans. Þar getur raunar ótrúlega margt komið til skjal- anna: Skipulagning og útfærsla á stórum sem smáum sýningum, pla- köt, umbúðir utanum hverskyns varn- ing, allt frá snyrtivörum til stórra véla. Einnig sjónvarpsauglýsingar, bréfs- efni, firmamerki, plötuumslög, bóka- kápurog bóka- og blaðaskreytingar. Auglýsingasálfræði er mikilsverð. í rauninni er til þess ætlast, að við 0 Rósa Innólfsdóltir við teikniborðió á vinnustofunni að Snorrabraut 50. Hún er einvrki og eins ok aðrir slfkir, verður hún sjálf að sinna óllu, sem uppá kemui: Standa f sambandi við fyrirtæki og prentsmiðjur, finna hugmyndir, útfæra þær og jafnvel að vera sendisveinn. - Auglýsingateiknarar hafa nú á dögum ýmis hjálpartæki. sem spara tfma og erfiði. Eitt þeirra er kópiuvélin, sem bæði minnkar og stækkar. 0 Rósa með gítarinn. „Ég gat ekki einu sinni farið í bað án þess að hafa gítarinn með,“ segir hún um ást sína á þessu hljóðfæri á yngri árum. stolið, — í þessu starfi eru hugmynd- ir nefnilega það dýrmætasta. Til dæmis: Maður kemur inn á teiknistofu hjá einhverjum starfsbróð- ur í stéttinni og þá liggur við að breitt sé yfir borðin í mesta flýti. Sjálfur þorir maður tæpast annað en standa úti í dyrum og forðast að líta framfyrir sig; annars gæti einhver talið vist, að ff Auglýsingateikning er fyrst og fremst slagur um peninga. maður væri að reyna að stela hug- myndum. Hin almenna regla er sú, að fólk úr sömu starfsgrein á samleið og hefur að minnsta kosti eitthvað til að tala um, þegar það hittist. En auglýsingateiknarar — nei takk. Það er miklu fremur óþægilegt að koma í horn " „Dar pukrast hver í sínu ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.