Lesbók Morgunblaðsins - 22.01.1978, Side 15
Lýðræðis-
fyllibyttur...
Öllu góðu má spilla með óhóflegri notkun —
mat. víni, konum — og lýðræði. Hóflegt lýð-
ræði hefur sannað ágæti sitt umfram önnur
þekkt stjórnarform — þær stuttu stundir
mannkynssögunnar. sem það hefur varað í
einhverjum stað. Framfarir menningarlegar og
efnahagslegar hafa þá orðið mestar í lifi þjóða.
En lýðræðið er bara aldrei hóflegt til lengdar.
Þessu stjórnarformi er áskapað að vera drepið
af vinum sínum, sem gera hóflausar kröfur til
þess, þar til það endar í stjórnleysi og ringulreið
og jafnvel heitir vinir lýðræðis verða að viður-
kenna að ekki sé annað til ráða, en kasta þvi
fyrir róða og kalla yfir sig „sterka" stjórn.
Þegar svo er komið kemur óvinurinn á vettvang
og veitir því náðar stuðið.
Lýðræðisformið byggir á frjálsum kosning-
um, sem eiga að sýna vilja fólksins. Ókosturinn
við þetta fyrirkomulag er sá, að fólkið er
misgott, misgefið og misvel upplýst og val þess
þar eftir. Útgáfurnar af „vilja fólksins" i kosn-
ingum geta vissulega orðið margar, og ekki
allar réttlátar. Eitt sinn fyrir mörgum áratugum.
var hart barist í kjördæmi hérlendis. Það var
komið fast að lokun kjörstaðar i kauptúni
nokkru i kjördæminu, þegar þar þeysir maður i
hlað og teymir reiðingshest með ábúðarmiklum
bagga bundnum ofaná milli klakkanna. Maður-
inn hefur snör handtök að losa um böggulinn,
tekur hann i fangið og hleypur með hann inn á
kjörstað rétt sem skellt er hurð i lokur. Inni
tekur hann utan af bögglinum teppi og flikur,
og innani þessum umbúðum reyndist vera
niðursetningur framan úr afdal. sem vissi ekki
hvað hann hét. þegar til átti að taka. En i
lýðræðisriki fær fólk að kjósa sér landstjórn,
þótt það viti ekki hvað það heitir. Og þessi
guðsvolaði veslingur, sem fyrir einhverja mis-
lukkan var ekki löngu kominn til himnarikis,
þar sem ekki er kosið um stjórn, fékk að kjósa;
vitaskuld með löglegri hjálp, þótt enn sé það
óráðingáta. hvernig hægt var að kenna honum
að teikna krossinn á þeim stað, sem til var
ætlazt. Nú æxlaðist svo til, að það munaði einu
atkvæði á frambjóðendum i þessu kjördæmi og
þegar inn á þing kom einum manni fyrir þá
flokka, sem börðust um völdin. Það má þvi
segja, að þessi fáráðlingur hafi „representer-
að" vilja fólksins næstu fjögur ár i stjórn
landsins.
Daglegt líf einstaklingsins i nútima þjóðfé-
lögum er orðið svo annasamt, að fæstir gefa sér
tíma til að afla sér þekkingar. oft sérfræðilegr-
ar, sem gerði þá dómbæra á flókin þjóðmál. Til
þess höfum við stjórnmálamenn. Flest látum
við nægja að mynda okkur skoðun og móta
vilja okkar í grundvallaratriðum stjórnmála.
Hitt er alger ofætlan — og frekja, að heimta
það af okkur almennum kjósendum. að við
öflum okkur þekkingar og gerum upp vilja
okkar i einu og öðru á stjórnmálasviðinu, sem
er alls ekki í okkar verkahring. Það er nú samt
svo, að sumir menn eru so útdrukknir af
lýðræðishugsjón, að þeir vilja láta kjósa um
hvaðeina. „Vilji fólksins" á að koma i Ijós. Nú
er það nýjast, að við eigum að velja flokki okkar
þingmannsefni i svonefndum prófkosningum.
Það er nú fyrst að nefna, að fæst okkar.
almennra kjósenda, höfum hugmynd um, hvað
þarf til að vera nýtur þingmaður og við þekkj-
um heldur ekki mennina sem kosið er um.
nema máski tvo eða þrjá af þeim aragrúa, sem
eru á prófkjörslistum. Þinglið eins flokks er
forystusveit hans. Er það ráðlegt að nota aðra
eins happa- og glappaaðferð og prófkjörið hefur
reynzt við val manna i þá sveit? Það er Jíklegt
að gildi hið sama um flokksskútur og aðrar
skútur, að rétt sé, að skipshöfnin kjósi sér
skipstjóra. en hitt rangt að hún velji honum
menn í brúna eða til verka. Venjuleg skipshöfn
er líka skynsamari og ríkari að reynslu en svo,
að hún vilji það. Hún veit að slíkt er ekki
vænlegt til árangurs við veiðarnar og einnig
það að skipstjórinn hefur kynnt sér hæfni
manna til hinna einstöku starfa um borð og á
mest undir því að val hans lukkist. Hann verður
nefnilega rekinn, ef hann fiskar ekki og ekki er
um að kenna óviðráðanlegum aðstæðum.
Sama á að vera hlutskipti stjórnmálaforingja,
og þá er komið að okkur að gera upp dæmið.
Það kemur margt undarlegt uppá í prófkosn-
ingum. sem sýnir hvað valið er handahófs-
kennt. Ég var sjálfur beðinn að kjósa konu. af
því hún væri kona. Auðvitað kemur mér ekki
við, hvað er milli fótanna á þingmanni. hins-
vegar vil ég gjarnan vita, hvað sé í kollinum á
honum.Það var ekki vitað í þessu tilviki. Annar
var ákafur í að prófa ungan mann. rétt eins og
Alþingi væri einhver tilraunastofnun. Einn átti
að kjósa, af því að hann „þyrði" að vera á móti
foringjum flokksins. Það er þá lofsvert eða hitt
þó heldur að snúast gegn foringjum flokksins
rétt í þann mund. að flokkurinn er að ganga til
forustu. Maður nokkur vann í prófkosningum
útá fésið á sér i sjónvarpi og röggsemi við að
spyrja aðra. Hvort hann geti sjálfur svarað
nokkurri spurningu, vissi enginn. Að mínu áliti
á almennur kjósandi ekki að velja flokki sínum
þingmannsefni og það kemur ekki fram „vilji
fólksins" í prófkjöri, eins og einn spekingurinn
prédikaði. Það verður ekki um neinn ráðinn
vilja að ræða í kjörinu. heldur happa- og glappa-
kosningu, ellegar allt aðrar ástæður heldur en
rétt er að ráði vali þingmannsefnis.
Ásgeir Jakobsson.
Krossgáta
Lesbókar
Morgunblaðsins
Lausn
á síðustu krossgátu
3 I ILL ! AP- p1 5VÓ1' |7 rr m’m' 2
H u w 1T u R iT ~n E í> M F jr
m Y) T 'A ±L A R nS' A R A R L b
1/ a tUK il£8ar L hA A ráL'HT /H e F K EISP / L jr A R
rnan 1 H 1 'A S tTÓi Kcíij L L Cl T l N L 57vw KIWT- Ult ö 5 A
8* Pm'i * C.SLT U X L E a fí d X ÆP iR N Á $•* K N X iouc- IV*
Ar R P ( Ruifl* R Ar T A- i MflUMi UhTH £ fí V A R
o^' F F) U T I RoMt SK-Ulfi R U N A N . 1? j'. M *f4l fco' F A R A
ÚT' A R M 1 N N xetf-p A B H A <A F A R U
|R FrTT TfllC- L fttioi- KtT*P ¥ 5 A R N l R P t 0 L
t<IOO A L l A N N éfflj A £> l ) £, A
\o n (—. r/tfl i L- \ !■
0.(1- lL ¥ A brT« ~R A u S A PAKI U £ m Híós T A L
N ( £ U 4? L A S. To'hp L T <: A
<x<L s L A A M A L U R # L 0 lc íc m
o?N íLi l li Ð 1 R. -TÍti’lL ft l A F 1 0
MIVCI Ll Ema X?c>N SK nokut- URI T rt-p' íMei H\JÍib KVLf- UR EMO-\ /N&l * R « V* AVÖXfyR
-T> 1 |ÁTf1 JflEdF * 1 itt
tóu- pýp. vehisfí Hma YlFFUfL HUCKöÐ UM
Ue- SX' Ufli) K A ímJ- 0 v-R 5 A? - Ht-7.
'OFHCF.. AR DbR
STA'V- AR- LURK -rörR A/?WIR IWDI- Aw/flR UMOÆm / £> |
'Oé fí MflWNí- amfn MCDO- UR
Kflpps- FUL.LT K£'i«Ð- U AO A Fuc.Lt Fuc. L- AMfl
'Y 'TiÐ' flST ■ KVflK'- U IR po P- udurz.
é Kl P • SKdZDM Á ?8t»uW' aiFr«A>A
5v)\K' I M M
Pe epið 5T«f- w<3. B£LT' fí xfí PU4L" /NN MflNNÍ- J/AFAl
|<rTA' l-TÉ *- IuHOIN FfíNC* tt. vc BoWft mun- INN
Ro SK HcaAJ- Ift «£>U HToM' 1 sr
WFW KvJfN- Nfí FsS
3ó kum V«£>Ufc- LXo'í' T~oNN
fofJ-Pd ’AHóld fND/Na N • ■ r
FVRiL aeFN- IUO- ÍLftTtf) + MIMNKI ■
©