Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 22.01.1978, Qupperneq 16

Lesbók Morgunblaðsins - 22.01.1978, Qupperneq 16
«r migskoN %Voody dUUn éo 'ATTI BKKI MIKLA PBNINGA T/L A£> EW£>A í sraLPup, þaefiP ÉG VAR í Sk'ÚLA. Y» FAUM OKKUR BG HAFÐ! MBIKA AÐ SF&7A EKKI EFMI 'A A6> BJÓÐA , ,, HBNNI I B/O ÉG GAT AOBIMS , VBITT MER AÐ LESA R/TPÓMANA 6 B LÖÐUMUM. ALDRB! ^ HBFB& NÚ~ V/TAÐ /ínMAÐ þ£/R GÁFU OKKUR líka HELMIN6S, Afsl'att 'A EG> VAPD AÐ L'ATA HANA STANDA 'A þESSUM „FÓTAHRIST- AR.A » í HEILA KL UKKU- STUNP . ^ÚFF- é& FÉKK þ'A ^f.-.EF V/Ð LOFUÐUM ^ 774 A£> HLByPA OKK- AÐ HL/EGJA BKKI ur íhl'aturhúsid nema h'alft'a FiVR/R h'alft VERB-^ |//£> adRA V/D FEN6- UM SÖMU KJÖR A HR/NGEKJ- UNN/, NEMA OKKUR VAR Bannad AD /EPA, FiVRR BN FERÐ/N VAR BÚIN. EN ée VAR Alltaf. SVD FHRiR- HHéGDU- SAMUR,AD EIGA AUR EFT'R t/l AÐ FARA GBGNUM HATURS- GÖNGIKI. o þETTA VAR SéRSTÖK FBRD FyR/R PÖR SBM þOLPU EKKI HVORT ANNAD- Hundrað ár frá stofnun kvennaskóla á Norðurlandi Framhald af bls. 13. Syðra-Laugalandi flutti til Vesturheims vorið 1877. Sama vor tók Eggert Gunnarsson bæði Laugalöndin til ábúðar og flutti móðir hans frú Jóhanna Gunn- laugsdóttir Briem sýslumanns að Grund og systir Eggerts, frú Kristjana, ekkja Péturs Hafsteins amtmanns með börnum sínum að Laugalandi. Flutti frú Kristjana með sér lítið timburhús frá Skjaldarvík. Var það endurreist norð-vestan við bæjardyrnar á gamla bænum. Húsið var tvær hæðir og 12 álnir á Iengd. Sunnanvert við þetta hús lét Egg- ert byggja jafnstóra viðbyggingu sumarið 1877. Þar sem ýmsir meinbugir voru á hinum skóla- stöðunum tveim buðu þau systkinin fram húsið á Syðra- Laugalandi svo hægt yrði að hefja skólann um haustið eins og fyrir- hugað var. Um 20 umsóknir um skólavist höfðu borist um sumarið og búið að ráða forstöðukonu. Segja má að þau systkin hafi greitt fram úr öllum vanda eins og á stóð. Var nú skóli settur 12. okt. 1877. Forstöðukona hafði verið ráðin frú Valgerður Þorsteins- dóttir frá Hálsi í Fnjóskadal. Fað- ir hennar var sr. Þorsteinn Páls- son og fyrri kona hans Valgerður Jónsdóttir prests í Reykjahlíð Þorsteinssonar. Þegar hér var komið var frú Valgerður orðin ekkja. Hennar maður var Gunnar Gunnarsson frá Laufási síðast prestur að Lundarbrekku í Bárðardal. Dó hann langt fyrir aldur fram. Frú Valgerður var gáfuð kona og stjórnsöm. Börnin á Hálsi ólust upp við nám og starf jöfnum höndum. Hélt faðir henn- ar heimiliskennara á vetrum og kenndi sjálfur börnum sínum tungumál og önnur fræði er hann taldi að þeim mundi að gagni verða. Var Valgerður flugskörp til náms og hafði snemma yndi af lærdómi. Hún þótti því vel til starfsins fallin á Laugalandi. Frú Valgerði til aðstoðar var ráðin kennsiukona. ungfrú Anna Mel- sted, dóttir Páls Melsted sagn- fræðings gáfuð kona og fjölhæf. M.a. hafði hún farið utan og lært meðferð mjólkur og kom það sér vel. Hafði Anna notið styrks úr landssjóði og jafnaðarsjóði Norðuramtsins til að ferðast um Eyjafjörð og næsta nágrenni til þess að kenna húsfreyjum með- ferð mjólkur, smjörs og ostagerð. Þurfti ekki að kvíða því að vel var séð fyrir kennslunni á Lauga- landi. Fyrsta veturinn voru 12 náms- meyjar í skólanum auk þriggja sem tóku ekki þátt í öllum náms- greinum. Kennsla og húsnæði látið í té ókeypis Ekki verður annað séð en náms- meyjar hafi verið ánægðar með skólavistina þótt þröngt væri á þingi og ýmsu ábótavant. Vorið 1878 birtist í Norðlingi þakkar- ávarp frá þeim þar sem þær votta í fyrsta lagi forstöðukonunni og kennslukonunni þakkir sinar fyr- ir alúð þeirra og ástundun við kennsluna, auk þess sem þær bera fram heillaóskir skólanum til handa. Ennfremur segja þær: Það er okkur kær skylda að votta frú Kristjönu Hafstein vort innilegt þakklæti fyrir þá miklu eiskusemi sem við höfum notið hjá henni og móður hennar elsku- legu í svo rikum mæli á um- liðnum vetri. Við getum heldur ekki undan- fellt innilegt þakklæti okkar til alþingismanns Eggerts Gunnars- sonar því að þess ber að minnast að hann hefur reynst stoð og stytta hins norðlenska kvenna- skóla. Umhyggju hans og óþreyt- andi áhuga er það að þakka að þetta lofsverða fyrirtæki er komið á fót og hefur náð þeim vexti og viðgangi að framtíð skólans má nú heita tryggð ef við stúlkurnar bregðumst eigi þessari okkar eig- in stofnun sem við vonum og biðj- um af hjarta að aldrei megi ásannast. Við getum heldur ekki undanfellt að þakka hr. Eggert Gunnarssyni fyrir það hvað hann hefur stórum ivilnað okkur i öllum tilkostnaði. Hér er átt við m.a. að kennsla og húsnæði var ókeypis í té látið. Þurftu námsmeyjar aðeins að greiða fæðiskostnað sem var kr. 0.60 — sextíu aurar á dag. Þá lagði skólinn til rúm og rúmfatn- að húsbúnað og öll áhöld. Fyrsta reglugerð skólans var undirrituð á Laugalandi 1. okt. 1877 af þeim Eggert Gunnarssyni og Einari Ás- mundarsyni í Nesi. En reglu- gerðin mun samin eftir tillögum frú Kristjönu Gunnarsdóttur. Er tekið fram í reglugerðinni að skól- inn eigi að starfa hvern virkan dag frá 1. okt. til 14. maí. Kennslan er bæði munnleg og verkleg. Iðjustundir dagsins eru frá kl. 7 að morgni til 10 að kvöldi, þar af voru 3 til borðhalds en 12 til náms og undirbúnings. Mikil reglusemi var viðhöfð á Lauga- landi og lögð áherzla á þrifnað i orði og verki. „Nú er hún Snorrabúð stekkur“ Ekki verður frekar rakin hér saga skólans, en þess má geta að árið 1896 er svo komið málum að Laugalandsskólinn er fluttur til Akureyrar og starfar þar í 11 ár. Féll þá skólahaldið niður. Eftir rúmlega 30 ár var á ný reistur skóli á sinum gamla stað á Syðra- Laugalandi en þá starfaði hann sem húsmæðraskóli. Sá skóli var mikið sóttur og var mjög vandað til hans frá upphafi. En örlög hans hafa orðið hin sömu og flestra húsmæðraskóla í landinu. Fyrir nokkrum árum fór að brydda á því að aðsókn fór skyndilega þverrandi að þessum skólum og má segja um þá eins og forðum var sagt: „Nú er hún Snorrabúð stekkur". En hvað veldur? Breyttir þjóðfélagshætt- ir, skólarnir falla ekki inn í kerf- ið, o.s.frv. eru svörin. Satt er það að margt hefur tekið breytingum með þjóð vorri, bæði til hins betra og verra, en að gott heimili eigi ekki rétt á sér og sé þjóöinni ekki nauðsyn sem fyrr, tel ég fráleitt. Yfir dyrum þekkts húsmæðra- skóla í Svíþjóð má lesa: Goda kvinnor — goda hem. Goda hem — landets Iycka. Sr. Matthías sendir Ytri-Eyjarskóla kveðju eftir 25 ára starf er byrjar þannig: Til lítils er að ljóða um lög og stjórnarbót ef frelsisdáðin finnst ei við fólksins hjartarót. Og til hvers er að tala um trú og dyggð og ljós ef þér er Ijósið lokað þú Ijúfa dalarós. 1 sálarþroska svanna býr sigur kynslóðanna Og hvað er menning manna ef menntun vantar snót. Sigrún P. Blöndal á Hallorms- stað, sú vitra kona kveður náms- meyjar sinar eitt vorið með þess- um orðum: „Það er sannfæring mín, að enginn maður finnur full- nægju sína sem ríkisborgari eða atvinnurekandi — en þó allra síst konan. Sína innstu helgustu köll- un sem kona uppfyllir hún ekki úti í þjóðfélaginu heldur á heimil- inu, sem móðir og eiginkona. Ég held að eitt mein vorra tíma liggi í því að konur vanrækja þessa köll- un sina og hafa hana ekki nóg- samlega í heiðri, líta ekki heldur á hana sem þjóðfélagslega skyldu, en kasta henni oft frá sér fyrir falskar frelsiskröfur og annað fá- nýti. Og margar konur hafa lært að líta á móðurstarfið sem skyldu, hjónabandið sem þrælkun og heimilið sem þröngan hring. En mig langar til að snúa þessu við og segja: Allt þetta eru einkarétt- indi ykkar, sem þið eigið að vaka yfir, vernda og verja til hinstu stundar. Og það er af því að þið eruð hvergi í fullu samræmi við það besta í sjálfumykkur nema þar“. Enda þótt litlu norðlensku skól- arnir væru ekki háreistir í byrj- un, engar milljónahallir með vísi að séríbúð fyrir sálfræðing, höfðu þeir forystuhlutverki að gegna. Þeir luku upp dyrum fyrir ungum stúlkum til mennta og fyrir það ber íslenzku þjóðinni, ekki síst kvenþjóðinni, að þakka og minn- ast þeirra með virðingu og þökk á 100 ára afmælinu. Skrifað 1. vetrardag 1977. Hulda Á. Stefánsdóttir

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.