Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.1978, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.1978, Blaðsíða 2
Veturinn í fyrra varð sá kaldasti á öldinni í Bandaríkjunum og orsakir þess eru raktar til tveggja samverkandi þátta, sem áhrif höfðu á yfirborðshita í Kyrrahafinu. Hversvegna það gerðist, er hinsvegar ráðgáta. Markús A. Einarsson veðurfræðingur svarar einnig þeirri spurningu, hvort slíkar breytingar fyrir vestan hafi bein áhrif á veður hér á landi. Gísli Sigurðsson tók saman. VENJULEGUB JANÚAR Á annarri myndinni sjást venjulegir loftstraumar i janúar og hinsvegar það mikla frávik, sem varð síðastliðinn vetur. Venjulega stefnir loftstraumurinn af Kyrrahafinu þvert austur yfir Bandarikin og Atlantshafið. Frávikið ■ fyrra varð með þeim hætti. að feykilega viðáttumikil lægð settist að á norðurhluta Kyrrahafsins. Jafnframt stóð hæðarhryggur norður með Kyrrahafsströnd Bandarikjanna og beindi loftstraumnum af hafinu langar leiðir til norðurs. Eins og sést á veðurkortinu, sneri hann aftur til suðurs i Alaska og tók þá með sér þann kulda og snjókomu, sem Bandarikjamenn fengu að kenna á. allt suður i Suðurriki. Ótrúleg sjón og sjaldgæf: Grýlukerti á appelsinutrjám suður á Florida veturinn 1977. Aldrei hafði það átt sér stað áður i manna minnum. Geysistórt lægðasvæði byrjar að myndast yfir nyrzta hluta Kyrra- hafsins haustið 1976 og i janúar- mánuði náði það orðið yfir allt Norður-Kyrrahafið. JANÚAR 1977 Óflugt háþrýstisvæði á Norður- pólnum hafði þau áhrif. að lægðir. norðan við meginland Ameriku létu undan eins og örin sýnir og tóku sér stöðu miklu sunnar en venjulega. eða yfir Kanada. Óvenju heitur sjór undan strönd- um Kaliforniu er talinn hafa átt sinn þátt i að hæðarhryggur hélst langt framá vetur. Rakur Kyrra- hafsvindurinn barst allar götur norður til Alaska. en vesturhluti Bandaríkjanna fékk ekki deigan dropa. Perústraumurinn flytur kaldan sjó norður i miðbik Kyrrahafsins Oökkblái liturinn táknar kaldan sjó. sem kannski orsakaðist af skýjafari og köldum vindum og byrjaði að koma i Ijós sumarið 1976. Það kann að hafa styrkt lægðina miklu fyrir norðan. Veturinn 1976 — 77 Hversvegna bráveðrið útaf venju í Vesturheimi? ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.