Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.1978, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.1978, Blaðsíða 7
Baldur Pölmason Mikil- hœfur Mýrdœl ingur EINAR JÖNSSON FRÁFOSSI list-mðlara-meistari í fyrsta kafla Sögu Eldeyjar-Hjalta greinir frá uppruna söguhetjunnar, Hjalta Jónssonar skipstjóra og kon- súls frá Fossi í Mýrdal og nánu skylduliði. Þar stendur m.a.: „Þau Jón Einarsson og Guðný Jónsdóttir áttu átta börn, en aðeins fjögur komust til vits og ára‘rVoru það allt synir. Elztur var Jónatan, sem mjög lengi var vitavörður í Vest- mannaeyjum. Hann var ágætur smið- ur og smíðaði sveinsstykki, sem ekki var mjög algengt í þá daga. Hann fékkst mikið við smáskammtalækn- ingar og þótti allgóður læknir. Næstur Jónatan að aldri var Jón. Hann var þrek- og fjörmaður með afbrigðum. Hann flutti snemma að austan, var oft í kaupavinnu nyrðra á sumrin, við vefnað í Reykjavík fram- an af vetrum og reri suður með sjó á vertíðinni . . . Þá var Einar, þriðji bróðirinn, sem varð kunnur víða um land fyrir málverk sín. Hann var við teikni- nám í Kaupmannahöfn einn vetur (Innskot: Sjá leiðr. siðar). Hann var ágætur smiður og smiðaði sveins- stykki eins og Jónatan, bróðir hans. Hann var mjög hneigður fyrir skáldskap og dável hagmæltur. Mun vart hafa getið listelskari mann og um leið glaðlyndari en Einar. Hann ólst ekki upp í föður- húsum. heldur hjá Hjalta föður- bróður sinum að Suðurgötum. Ein- ar bjó um hrið á Sauðárkróki, siðan á Akureyri — og loks i Reykjavik, og þar dó hann. Fjórði bróðirinn var svo Hjalti, sem frá verður sagt í þessari sögu". Trésmiður, málari, listmálari Um þann merka mann Hjalta fjallar Guðmundur G. Hagalín rithöfundur í tveimur þykkum bindum. Aftur á móti verður lltillega fjallað um Einar Einar Jónsson frá Fossi ásamt konu sinni, Ingi- björgu Gunnarsdóttur frá Rofum í Mýrdal og Ragn- hildi dóttur þeirra hjóna. bróður hans í þessu greinarkorni, en hann var líka hinn mætasti maður. Einar Jónsson fæddist 19. apríl 1 863 á Fossi I Mýrdal. * Hugur hans beindist snemma að teikun og meðhöridlun lita, en þá var I fá hús að venda I leit að tilsögn á því sviði. Nokkra útrás fyrir litameðferð og litskreytingar fékk hann eftir að hann hafði lokið sveinsprófi I trésmíði og gat farið að mála hús, húsgögn og slika smíðisgripi nokkuð eftir eigin höfði, en þá var slikt einnig í verka- hring smiðsins. Var það áður en málaraiðnin náði fótfestu hérlendis. Þó fór svo eftir nokkur starfsár sem smiður, að Einar hugðist sérhæfa sig í málaravinnu og nema listræna málun hibýla og húsgagna, s.s. eftirlíkingu viðar og marmara. Einnig vildi hann bæta handbragð sitt sem teiknari. Réðst Einar þá til Danmerkurferðar um þrítugsaldur og dvaldi í Kaup- mannahöfn tvo eða jafnvel þrjá vetur og sumarið (sumrin) milli þeirra, sigldi utan 1893 eða 1894 og gekk m.a. í skóla tækgifélagsins danska, (Tekniske Selskabsskole), þann hinn sama sem alnafni hans, myndhöggv- arinn frá Galtafelli, gekk í um tíma áður en hann fór i Listaháskólann. Ekki mun nú vitað með vissu, hvenær Einar frá Fossi sneri heim. hvort það var vorið eða sumarið 1895 eða 1896, en siðarnefnda árið tók hann sér bólstað norður á Sauðár- króki, þar sem hann vann sem tré- smiður og málari. Meðal verkefna hans var málun og skreyting all- margra kirkna norður þar. Fyrsta kirkjan, sem hann gerði þannig til góða, er talin hafa verið i Bólstaðar- hlíð undirVatnsskarði. En nú tók Einar einnig að stunda listmálun, a.m.k. þegar hlé gáfust frá brauðstriti. Og þessi árátta magnaðist næstu árin. Er talið að Einar hafi málað margt mynda úr Skagafirði og Húnaþingi, svo og frá Akureyri og nágrenni eftir að hann fluttist þangað aldamótaárið. Þá var Einar kvæntur fyrir þremur árum, Ingibjörgu Gunnarsdóttur frá Rofum í Mýrdal. Hún var svo mikil hannyrðakona að orð fór af. Bjuggu þau á Akureyri til 1907. Árið áður höfðu þau orðið fyrir gífurlegu skakkafalli, er þau misstu megnið af eigum sínum í brunanum mikla á Oddeyri. Þ.á.m. brunnu flest málverk og vatnslitamyndir Einars frá Sauðár- króks- og Akureyrardvölinni, þ.e.a.s. obbinn af listsköpun hans til þess tíma. Þó ætla megi að þá hafi honum sviðið sáran, lét hann ekki hugfallast, en hélt ótrauður áfram að stunda sitt tviþætta málarastarf eftir að til Reykjavíkur kom, þ.e. handiðn og list, og segir nánara frá því nokkru síðar í þessari grein. Leiktjaldamálari Á Norðurlandsárunum var Einar Jónsson aðalleiktjaldamálari Skag- firðinga og Eyfirðinga. í Sögu Sauð- árkróks eftir Kristmund Bjarnason er frá þvi skýrt, að Einar hafi farið með hlutverk í sjónleiknum „Frænku Char- leys" eftir Brandon Thomas veturinn Sjá nœstu I síðu ,/jl ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.