Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.1978, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.1978, Blaðsíða 6
— Eg verð að flýta mér og vera búin að taka fram ryksuguna áður en hann kemur heim. — Æ, alveg straks, mig langar svo til að hvíla dálítið lengur við brjóst þín. En það er alltaf hann. Hvers- vegna losarðu þig ekki við hann? — Þú veizt að það er ekki hægt. Framtið barnanna, heimilið og svo höfum við nú verið gift í fimmtán ár. Það er svo erfitt að slíta böndin. — Þetta hef ég heyrt hundrað sinnum áður, en það er annað sem undir býr, — peningar, öryggi og velsæld. Þú villt engu fórna og ég efast stundum um, að þú elskir mig. En á engin veraldargæði nema karl- mannsþrótt og þokkalegt útlit. — Því læturðu svona? Þú veizt að ég elska þig og vil öllu fórna til að geta verið hjá þér. Það er bara fram- tið . . . — barnanna, heimilið og svo höf- um við nú verið gift í fimmtán ár, hermdi hann eftir henni. Didi sneri sér undan og klæddi sig án þess að svara. Þetta endaði svo oft þannig. Hermann lá í rúminu og horfði á hana klæða sig. Hún var ekki ung lengur þótt hún héldi sig vel miðað við aldur. Það voru engar hrukkur eða kvap á likama hennar, aðeins örlítill slappleiki. Hann teygði sig í sigarettur og fékk sér að reykja. — Vilt þú? spurði hann út í loftið. — Nei, þakka þér fyrir, ég ætla að 'flýta mér, svaraði hún. — Hvað ætlarðu að segja þegar ég er orðin frægur listmálari? spurði hann. — Þá óska ég þér til hamingju °g — Sérð eftir öllu saman Tiu ára Eflaust yrði hann fljótt leiðurá henni og hvað tæki þá við? Karl mundi halda heimili fyrir börnin, þau þurftu ekki svo mikla umönnun nú orðið. Hann léti þau hafa peninga fyrir föt- um og skotsilfur til að skemmta sér fyrir og yfirleitt það sem þau færu fram á. Þau voru vel efnuð en auðvit- að fengi hún ekki neitt ef hún hlypist á brott. Hún var hrifin upp úr þessum hug- leiðingum er strætisvagninn stöðvað- ist við biðstöðina. Það var fátt fólk i honum á þessum tima dags þvi að vinnu var óvíða lokið, það voru ein- ungis konur og krakkar að koma úr innkaupaleiðangri. Hún tók til óspiltra málanna er hún kom heim við tiltekt og þrifnað. Nú ætlaði hún að vera reglulega blið við Karl og jafnvel stinga upp á að þau færu eitthvað út saman, horfðu á kvikmynd eða brygðu sér inn á veit- ingastað. Hún hafði ekki sýnt Karli mikla ástúð undanfarið, eða siðan hún kynntist Hermanni. Karl stóð þungbúinn við hornið og gaf útidyrunum á nr. 4 nánar gætur. Hann frafði staðið þarna lengi og ’iiMl!'"' ÍQ'-}? aldursmunur hefur ekkert að segja þegar ástin er annars vegar. Ég þoli ekki að deila þér lengur með öðrum. Hann þagnaði og virti fyrir sér skell- óttann pappann á loftinu. Dídi var að setja á sig hattinn og hann nennti ekki að reykja meira. — Ætlarðu ekki að kveðja mig? spurði hún. Hann teygði fram armana og hún lét fallast niðurá rúmstokkinn. Hann kyssti hana einsog utan við og hugsanir hans voru óra fjarri. Hún fann það og fylltist örvæntingu. Kannski var hún að missa hann, hann hafði verið svo önugur undanfarið nema bara þegar þau voru í rúminu. Þá var hann ástheitur og ofsafenginn. Hún vissi ekki hvað hún átti að segja og hún gat ekki farið án þess að segja eitthvað. — Hermann, það er eitthvað að á milli okkar, það er ekki einsog það var. — Þú með þitt öryggi, en ég öf- unda þig ekkert, þú villt engu fórna . . . — Ekki segja þetta einusinni enn, bað hún og tár runnu niður keinnarn- ar. Ég þarf að hugsa mig betur um, ég vil allt til vinna aðeins ef ég fæ að vera hjá þér. Hann rétti henni munnþurrku, sem lá á náttborðinu, og hún þerraði sig i framan. — Þetta er nýtt hljóð i þér. Ég vildi gjarna fá frekari útskýringu á því. Ertu þá i alvöru farin að hugsa um að skilja við Karl? spurði hann. RONG HENDI — Ég er svo utan við mig i dag, ég veit ekkert hvað ég segi eða geri, kannski reyni ég að tala við WARL I KVÖLD. Eigum við að hittast eftir hádegið á föstudaginn og gera út um málin? — Þú ræður því, svaraði hann ólundarlega. Hún lokaði á eftir sér hurðinni. Dídi flýtti sér fyrir hornið að næstu biðstöð til að fara með strætisvagnin- um heim, það var minna áberandi en að taka leigubil. — Skyldi Karl vera farið að gruna eitthvað, hann hafði horft svo undarlega á hana upp á siðkastið. Nei, það gat ekki hugsazt, hún hafði alltaf farið svo varlega og verið komin heim á undan honum. Hún hélt húsinu hreinu og var nær- gætin við börnin. Þau voru orðin stálpuð og henni eftirlát. Hún talaði ekki mikið við þau nú orðið þvi að íima sínum eyddu þau mest í skólan- um eða með félögum sínum utan heimilisins. Hvað voru þau annars alltaf að gera langt fram á kvöld? Hún hafði ekki leitt hugann mikið að því, þvi að hennar eigin vandamál voru að vaxa henni yfir höfuð. Hermann var fallegur og ástheitar, en þekkti hún hann nokkuð að öðru leyti? Var það ekki glapræði af konu á hennar aldri að leggja ást á sér miklu yngri mann? Smásaga eftir Halldór Stefánsson bylgjur efasemda þutu um höfuð hans. Var þetta kannski tóm imyndun — hugarórar, sem hann hafði inn- byrlað sér? Hvað hafði Jói frændi hans átt við með dylgjum um ein- hvern auðnuleysingja og samband konu hans við hann? Hann fékk ekk- ert frekar út úr Jóa, enda vissi hann ekki neitt og var sennilega að fleipra. Jói var ekki svo áreiðanlegur. En samt gat hann ekki að sér gert að veita henni eftirför dag einn og það kom heim. Hún fór inn í númer fjögur. Hún var í flaksandi rauðri kápu með slegið hár og hljóp við fót. Það var einsog allar hreyfingar henn- ar brostu og tilhlökkun og óþreyja geisluðu af andlitinu. Hann beið lengi alveg eins og núna og einsog hann hafði gert svo oft áður. Kippirfóru um munn hans og herðar líkt og hann væri að gráti kominn. Hann ók löturhægt til skrif- stofu sinnar og skeytti því engu þótt flautað væri á hann. Hann var djúpt sokkinn niður í hugsanir sinar og heyrði það ekki. Um að gera að láta á engu bera. Hann varð að halda i hana hvað sem það kostaði, þvi að hann elskaði hana og heimilið þeirra og börnin þeirra og allt sem þau höfðu átt saman. Framtíð hans byggðist á traustu hjónabandi, sem enginn blett- ur mátti falla á. Hann treysti sér ekki til að leggja hugann að þvi hvað yrði ef allt færi út um þúfur. Stolt hans var Framhald á bls 14.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.