Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.1978, Qupperneq 4
Bílar af örgerð 1978 II.
Fiesta er smábíllinn frá risa-
veldinu Ford Motor Company.
Þessi smábíil er samkvæmt
hinni vinsælu formúlu: Fram-
hjóladrif, og þrjár hurðir, þar
af ein á afturenda. Flutnings-
rými verður mikið ef á þarf að
halda, sparneytni situr í fyrir-
rúmi og aksturseiginleikar
"verða góðir, ekki sízt í snjó og
hálku. Þessi bíll er m.a. settur
til höfuðs Honda Civic frá Jap-
an, sem sclst eins og heitar
lummur í Ameríku. Verðið er
hliðstætt og á Hondunni, eða
1890 þúsund. Þetta er ágætur
„frúarbíll" með gæðastimpil
amerísku Ford verksmiðjanna.
Völ er um þrjár vélarstærðir;
sú skarpasta er 53 hestöfl. Við-
bragðið í 100 km hraða er 16,1
og hámarkshraði 145. Lengdin
er 3,56m og breiddin l,57m.
Mælaborðið í Fiesta Ghia, sem er einskonar lúxusútgáfa.
I siöasta blaði kynnti Lesbök bílana
frö General Motors. Nú segir af Ford,
einkum þeim amerísku, en tveir tekn-
ir meö, sem Ford framleiðir i
Evröpu. Umboö fyrir Ford hefur
Sveinn Egilsson h/f og greiðslukjör
eru þau, að umboöiö lönar meö
jöfnum afborgunum í 8 mönuöi sem
svarar 20% af heildarveröi.
Cortinan hefur í aðalatriðum gengið gegnum
þrjú þróunarstig. Fyrst var hún veigalítill smá-
bíll, sem þó hefur seiglast og reynst furðu vel.
Síðan kom boglfnuskeiðið; stærri og mciri bfll,
en rými fórnað fyrir iínurnar. Nýjasta Cortinan
er ennþá meiri bfll, nánast þýzkur í útliti með
beinum línum og háum rúðum. (Jdýrasta gerðin
er á 2.600 þúsund, sem verður að telja þokka-
lega góð bílakaup. Cortinan hefur verið að færa
sig uppá skaftið og má telja, að hún sc f milli-
flokknum miðjum. Dýrasta gerðin er þó íburð-
armikill bíll. Lengdin er 4.34 og breiddin 136
cm. Völ er um fjórar vélarstærðir, minnst 57
hestöfl og þá er viðbragðið í hundraðið 19,8 sek,
en stærst er 108 hestafla, 6 strokka vél og er þá
viðbragðið 11,1 sek og hámarkshraði 173 km á
klst. Samkvæmt upplýsingum verksmiðjunnar
eyðir minnsta vélin 9,3 á hundraðið, en sex
strokka vélin 10,1 lítra sem er næstum ótrúlega
lítið miðað við þá vinnslu, sem upp er gefin.
Ford Escort er næst minnsta gerðin, sem völ er á frá Ford. Hann hefur
þróast með árunum og er mjög þokkalegur bíli af smærri sortinni, —
margir mun dýrari bílar gætu til dæmis verið fullsæmdir af sætunum,
mælaborði og yfirhöfuð útlitinu að innan. Að utan er Escort nokkuð
fátæklegri, sem eðlilegt er, því hér er um ódýran bfl að ræða, — verðið
er 2.150 þúsund. Þar mun átt við ódýrustu gerðina. Að auki fæst Escort
GL, íburðarmeiri útgáfa og Escort Ghia með vinyl-þaki, sjálfskiptingu
og allskyns aukahlutum. Sá fer í hundraðið á 13,2 og hámarkshraði er
162. Þá er að telja afturbyggðan Escort og Escort Sport, þar sem bætt
er við fáeinum aukahlutum til skrauts og viðbragðið aukið í 13 sek
sléttar.