Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.1978, Side 5
Lincoln. Við látum flaggskip Ford-flotans fljóta með f þessari kynningu, þótt
varla séu margir á höttunum eftir bíl af því taginu. Hægt er að fá Lincoln
fyrir 6 milljónir, en Lincoln Continental Coupé, sem sést hér á myndinni,
kostar eitthvað meira. Varla þarf að taka fram, að þarna er allur lúxus í
hæsta gæðaflokki, og aksturinn þykir minna á Rolls og dýrari gerðirnar af
Mercedes Benz. Eins og sést, er hann með „augnalok", þ.e. hlífar yfir
framlugtum, en eitt af því sem telst til. þæginda er það, að hann lokar ekki
augunum og lýsir á fullu í 3 mínútur eftir að hann hefur verið yfirgefinn og
er það eins og annað gert uppá þægindin.
Ford Fairmont. Það er athyglisvert, að í hinum venjulega bæklingi verk-
smiðjunnar, er Ford Fairmont borinn saman við Volvo og Audi 100 en ekki
aðra ameríska bíla. Stærðir þessara bíla eru næstum nákvæmlega hinar
sömu og það er til marks um bætta hönnun, að innra rými er aðeins 10%
minna en í Chevrolet Impala, sem er miklu fyrirferðameiri bíll. Ekki getur
Fairmont talizt frumlegur í útliti og sæti og mælaborð jafnast ekki á við
keppinautana frá Evrópu. En Ford er alltaf Ford og ef að vanda lætur er
endingin betri og minna um bilanir. Að sögn sérfræðinga, hafa aksturseigin-
leikar verið stórbættir og máttu reyndar gera það frá því sem var í Comet til
dæmis. Nú er „standard" vélin aðeins fjögurra strokka, 2,3 Iftra, en völ um
bæði 6 og 8 strokka vélar. I amerískri prófun var þess getið, að minnsta vélin
með beinskiptingu hefði mun meira viðbragð og vinnslu en 3.3 Iftra og 6
strokka vélin með sjálfskiptingu. Tölur um viðbragð og hámarkshraða liggja
ekki fyrir. Verðið er 3 milljónir sléttar, sem verður að teljast mjög hagstætt,
, ekki sfzt þegar miðað er við áðurnefnda evrópska keppinauta.
Ford LTD II er en'nþá eins og menn hafa löngum átt að vejast að
amerfskir bílar litu út. Hann telst í Iúxusflokki og er „fullstór".
Innra rými er ekki í samræmi við fyrirferðina og útlitið er nokkuð
þyngslalegt, en traustvekjandi. Sex gerðir fást af þessum bíl,
tveggja og fjögurra dyra. Minni áherzla er lögð á aksturseiginleika
en lúxus og þægindi og sætin betri en aimennt gerist f amerískum
bflum. f kynningarbæklingi er lögð meiri áherzla á hljóðan gang,
stereótækið og jafnhitabúnaðinn en annað sem lýtur að akstri og
segir það sfna sögu. Þegar alls er gætt, er verðið á þessum
fburðarmikla bíl furðulega lágt, eða „aðeins“ 3.750 þúsund.- En
ugglaust væri hægt að koma því nokkuð hátt upp með öllu því, sem
hægt er að panta aukalega.
Sú var tiðin að menn fengu
Bronco-æði og vinsældir þessa
jeppa hafa haldizt sfðan. Með
tollabreytingunni á sfðasta ári
fór verðið upp úr öllu valdi, og
nú kostar Bronco 4.500.000 kr.
„Standard“ er 5,8 lítra 8
strokka vél og útlitið í ár er
eins og myndin sýnir. Hann er
stærri en áður, hefur nálgast
Blazer og í samræmi við það er
vélin Ifka stærri en áður. Bein-
skiptur er hann og fjögurra
gíra. Of langt mál yrði að telja
upp allt það, sem hægt er að fá
aukalega, allt frá gólfteppi til
ýmisskonar króka. Meðal þess
sem fáanlegt er aukalega er
upplýstur spegill handa frúnni
og einskonar felugler, sem
hægt er að bregða upp og sést
þá út, en takmarkað inn f bfl-
inn. Ætli það geti stundum
komið sér vel?
Ford Fairmont Futura er spariútgáfa með dálitlu sportbílsútliti,
svo sem teinafelgum og aðskildum stólum að framan. Eins og sést á
myndinni er einskonar gjörð yfrum þakið, sem er uppá stælinn og
greinir hann frá hinum. Þessi gjörð verður þó til trafala fyrir
útsýni og telst vafasöm lausn. En það er bæði gömul og ný saga, að
ýmsu sé fórnað fyrir stæla, sem selja bflinn. Fairmont Futura er
eins og hinir með 4, 6 og 8 strokka vél eftir vali. Verðið er 3.400.000.