Lesbók Morgunblaðsins - 11.06.1978, Blaðsíða 10
Hóladómkirkja. Turninir
var reistur til minningar
um Jón biskup Arason.
Kirkjan er elzta guðs-
hús á landinu, vígð
1763.
Atriöi úr ieikritinu: Jón
Arason eftír séra
Matthías Jochumsson,
sem leikið var á Hólum
undir berum himni í
tilefni 11 alda íslands-
byggðar 1975. Jón Ara-
son (leikinn af Rúrik
Haraldssyni) stendur í
fullum skrúða fyrir
miöjum kirkjudyrum.
Þátttakendur á starfsmannanámskeiði kirkjunnar,
sem haldið var í húsakynnum bændaskólans á Hólum
í Hjaltadal dagana 8.—10 júlí 1977. Myndin er tekin við
anddyri Hóladómkirkju.
Ljósm. Jón Friðbjörnsson kennari
Stofnendur Prestafélags hins forna Hólastiftis
Fremsta röð: (talið frá vinstri) Séra Eyjólfur Kolbeins Eyjólfsson, prestur
Staðarbakka, séra -Zóphónías Halldórsson prófastur Viðvík, séra
Hjörleifur Einarsson prófastur Undirfelli, séra Stefán M. Jónsson prestur
Auðkúlu.
Miðröð: Séra Árni Björnsson prestur Sauðárkróki, séra Hálfdán
Guðjónsson prestur (síöar vígslubiskup) Breiöabólstaö Vesturhópi, séra
Björn L. Blöndal prestur Hofi Skagaströnd, séra Jón Pálsson prestur
Höskuldsstöðum, séra Vigfús Jónsson prestur Hvammi.
Efsta röð: Séra Pálmi Þóroddsson prestur Höfða, séra Björn Jónsson
prestur Miklabæ, séra Ásmundur Gíslason prestur Bergsstööum, séra
Vilhjálmur Briem prestur Goödölum, séra Jón Ó. Magnússon prestur
Mælifelli, séra Sveinn Guðmundsson prestur Ríp. (Myndin var { eigu
Gunnlaugs Björnssonar Harastööum Skagahr., sem fékk hana að gjöf
frá séra Stefáni M. Jónssyni. Á myndina vantar séra Hallgrím M.
Thorlacius prest Glaumbæ.)
Um Prestafélag hins forna
Hólastiftis. Eftir sr.
Pétur Sigurgeirsson
Félagshreyfing
norðan fjalla
Þórarinn Björnsson sagði um Davíð
Stefánsson frá Fagraskógi: „Meðan hans
naut við, var Norðurland veitandi í
andlegu búi þjóðarinnar." Þórarinn var
orðhagur og djúpskyggn, enda er hér
viturlega mælt.
Norðurland hefur fóstrað menn og
hugsjónir ekki aðeins fjórðunginum til
ávinnings heldur þjóðarheildinni. Þar er
fyrst til að taka, er Hólastóll var settur
1106. Með tilkomu hans örvast menning
íslendinga. Um síðustu aldamót urðu
félagshreyfingar norðan lands, sem fóru
vítt um byggðir landsins. Þar má nefna
ungmen nafélögin og góðtemplararegluna.
Gamall draumur
Með stofnun Prestafélags hins forna
Hólastiftis 1898 vaknaði hreyfing, sem
hafði víðtæk áhrif. Þá var að rætast
gamall draumur norðlenskra presta.
Þegar Ebenezer Henderson var á ferð
um landið gisti hann í Hvammi í
Laxárdal 1815 hjá séra Vigfúsi Reykdal.
Henderson segir frá kynnum sínum af
séra Vigfúsi:
„Það hefur lengi verið ósk hans og
margra stéttarbræðra hans, að haldinn
væri á -norðurlandi árlegur fundur, er
þeir prestar sæktu, er til þess fyndu sig
knúða, í því skyni, að þeir veittu hver
öðrum hvatningu til þess að vinna
Drottni. Eins og ástatt er fyrir prestum,
þar sem þeir eru útilokaðir frá samneyti
hver við annan, finna þeir lítið til þess,
að þeir séu sameiginlega að gegna einu
og sama hlutverkinu. Er hætta á því, að
hið mikla takmark hverfi í þoku, jafnvel
þó að það hafi eitt sinn verið í augsýn,
en þar af skapast sorglegt skeytingar-
leysi, ef ekki beinlínis guðleysi. En ef þeir
kæmu saman einu sinni eða tvisvar á ári
Framhald á bls. 15