Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1978, Síða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1978, Síða 8
„Við vitum nokkuð um Þau eðlis- og efnafræðilegu lögmál, sem gera líf mögulegt og við getum sett saman skynsamlegar kenningar um uppruna Þess og Þróun. En Þessi Þekking skýrir ekki Þá sérstöku atburði í hugum Jesú, Múhameðs, Péturs einsetumanns og Lincolns, sem urðu Þess valdandi, aö Þeir tóku ákvörðun á örlagaríkum tímum og hleyptu af staö Þjóðfélagshreyfingum, sem breyttu atburöarás mannkynssögunnar.“ M|r * % væí l5' VHn f's," henni sé aö leita í þeim frumeiginleikum mannlegs eölis, sem vísindaleg þekking hefur ekki ennþá afhjúþað. En til þess aö viö getum með rökstuddum hætti gert okkur grein fyrir, hvort viö höfum ástæöu til þess að vera svartsýn eða bjartsýn um framtíð mannkyns vil ég í stuttu máli leitast viö aö leiða rök aö því, að þrátt fyrir allt höfum viö ótvíræða ástæöu til þess að vera bjartsýn. Oft er sagt: Þar sem vísindin enda tekur trúin viö. Hygg ég, aö meö þessu sé verið aö gera trúna óræöari en hún er í raun. Ég býst viö, aö Steingrími Thorsteinssyni hafi ekki fundizt trúin óræö, er hann orti: „Trúöu á tvennt í heimi, tign, sem æösta ber: guö í alheims geimi, guö í sjálfum þér né heldur séra Matthíasi, þegar hann orti eftirfarandi í nýárshvöt 1893: „Trúðu frjáls á Guö hins góða, Guö er innst í þinni sál; Guö er Ijós og lyfting þjóöa; læröu Drottins Hávamál. Hugsa mest um hvaö þú ert, hræsnislaus og sannur vert; rístu svo og rektu’ á flótta rökkur-vofur þrældómsótta. Ekki eru þjóöskáldin okkar ein um þessa skoöun, því aö eitt fegursta orö í enskri tungu, aö margra dómi, er orðið enthusiasm. Þetta orð sem er komið úr grísku er notað til þess að lýsa mönnum, sem hafa einlægan áhuga á einhverju og merkir upphaflega miklar öfgar eða innblástur í þágu málstaðar, sem talinn var vera guðs vilji, en frummerking þess er en, sem merkir í og theos, sem merkir guð eða í guði. Merkingu þessa fagra orðs mætti því sem bezt þýða með orðunum „guð í sjálfum þér“. Af framansögðu og á grundvelli þess skal ég nú setja fram nokkur dæmi, sem sýna og sanna, hver áhrif trúin hefur haft á framþróun mannlífs í gegnum aldirnar og á hvern hátt hún hefur bæði beint og óbeint stuðlað að bættum samskiptum manna óg fegurra og betra mannlífi á þessari jörð. Á hvern hátt hún hefur breytt hjátrú í trú og myrkri í ljós. En í þessu skyni vil ég beina athyglinni að nokkrum einstaklingum, sem ég leyfi mér að kalla frumeind þjóðfélagsins á hliðstæðan hátt og efnisheimurinn er samsettur úr frumeindum og sameindum. Við athugun kemur í ljós, að uppruna margra hinna áhrifamestu hreyfinga sögunnar má rekja til einstaklings eða öllu heldur til heimsmyndar viðkomandi einstaklings, hvort sem við köllum hann spámann, skáld, listamann, stjórnmála- mann eða vísindamann. Og það kemur einnig greinilega í ljós, að viðkomandi einstaklingur hefur í sér fólgið það, sem kalla mætti „guð í sjálfum þér.“ Á dögum Ágústusar, keisara, var rómverska heimsveldið hið stærsta, auðugasta og voldugasta í öllum heimi. Á þeim tíma höfðu synagógurnar einnig mikil trúarleg og þjóðfélagsleg áhrif á Gyðinga í Palestínu. Þau þjóðfélagslegu verðmæti, sem varðveitt voru innan heimsveldisins og synagóganna hljóta að hafa virzt svo óforgengileg að búast hefði mátt við, að þau entust um tíma og eilífð. En á þessu tímabili fæddist Jesú fjórtán árum fyrir dauða Ágústusar og kenning- ar hans hófu þegar að riðla þessu mikla veldi. í fyrstu voru hinir auðmjúku kristnu menn mjög fáir og starfsemi þeirra illa skipulögð, en eigi að síður höfðu þeir um síðir meiri áhrif á mótun vestrænnar menningar en sjálft rómverska heims- veldið. Múhameðstrú á sér svipaða sögu þar eð talið er, að hún hafi orðið til í huga Múhameðs, sem var miðaldra kaupmaður í Mekka snemma á 7. öld. Sá hópur Araba, sem hann tilheyrði, var þá lítill þjóðflokkur, sem var ákaflega fátækur, að mestu leyti ólæs og að mestu einangraður frá umheiminum. Samt tókst Múhameð og fylgjendum hans furðu fljótt að breyta þessum blásnauðu Aröbum í harðsnúna baráttumenn, sem á rúmri öld komu á stofn voldugu heims- veldi, þar sem veraldlegur auður var mikill og listir og menning á háu stigi. Arabíska heimsveldið leystist að lokum upp, en andleg arfleifð þess, sem það fékk upphaflega frá Múhameð, er enn þann dag í dag eitt sterkasta aflið í heiminum. Það hlýtur að vera öllum mönnum umhugsunarefni, aö á tímum vísindalegra og tæknilegra framfara, sem eru meiri en heimurinn hefur áður þekkt og leitt hafa til vaxandi efnahagslegrar velmegunar um allan hinn vestræna heim, skuli íslenzkt þjóöfélag vera ósamstæöara og að margra dómi í meiri hættu en nokkru sinni fyrr. Þessar framfarir hafa leitt til þess, aö einstaklingar geta búizt viö aö lifa lengur og njóta betri heilsu og vellíöunar en nokkru sinni áður í sögu mannkyns. Menn viröast hafa talið sjálfum sér og öðrum trú um, aö efnahagslegar framfarir, sem eru ávöxtur vísinda og tækni, aukinn hagvöxt- ur eins og þaö er kallaö, mundu leiða til betra mannlífs og hamingjusamari ein- staklinga, en virðast ekki hafa gefið því nægilegan gaum, aö svo einfalt er þetta því miður ekki og nú viröist ekki seinna vænna, aö hin ýmsu öfl þjóöfélagsins snúi bökum saman um aö reyna aö ráða bót á þeim vandamálum, sem siglt hafa í kjölfar aukinnar velmegunar, eigi ekki þjóöfélag- iö í núverandi mynd að líöa undir lok. Hvaö er þaö í fari mannsins, sem gerir þaö aö verkum, aö hann viröist ekki þola svo örar breytingar, sem orðið hafa á þjóöfélaginu á síöustu áratugum? Svar viö þessari spurningu ætla ég ekki aö ræöa hér, en læt í Ijósi þá skoðun, aö svar við „Menn viröast hafa taliö sjálf- um sér og öðrum trú um að efnahagslegar framfarir og aukinn hagvöxtur mundu leiða til betra mannlífs og hamingju- samari einstaklinga“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.