Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1978, Side 9

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1978, Side 9
Eins og menn hafa fylgst með af sjónvarpsþáttun- um um keisarana í Róm, hikuðu hinir valdasjúku ekki við að myrða nákomna ættingja og vénzla- menn með eitri. En fall Rómaveldis varð ekki aðeins innan frá. Kenningar Krists fóru að riðla þessu mikla veldi áður en Agústus var allur. Með nútíma deyfingartækni hefur mikið áunnizt í að lina þjáningar fólks. Sú var tíðin. að meiri háttar skurðaðgerðir kostuðu óiýsanlegar þjáningar. Á jafn leyndardómsfullan hátt virðist hugmyndin um krossferðirnar hafa orðið til í hugarfylgsnum Péturs einsetumanns, sem var uppi í Frakklandi á 11. öld. Hann var svo gagntekinn af áhyggjum út af örlögum Landsins Helga að jaðraði við geðveiki. En með því að dreifa þessari ástríðu sinni til allra, sem vildu hlusta á hann, tókst Pétri að hrinda af stað krossferðunum og með því að tileinka sér arabíska menningu í þessum ferðum urðu hinir grófu evrópsku barónar miklu mannúðlegri og auk þess stuðluðu þeir að byggingu ýmissa mannvirkja í nálægum Austurlöndum, sem dáðst er að enn þann dag í dag. Arfleifð Jesú, Múhameðs og Péturs einsetumanns leysti þannig úr læðingi geysiöflugt þjóðfélagsafl, sem hafði áhrif um allan heim í margar aldir og hefur enn þann dag í dag. Ákvaröanataka einstaklings hefur einn- ig oft verið forsenda þess, aö margar hinna miklu hreyfinga sögunnar hafa oröið að veruleika. Bandaríski lögmaðurinn Benjamin Barondess hefur bent á, að Ameríka hefði oröið mjög frábrugðin því, sem hún er í dag, ef Abraham Lincoln heföi ekki ákveöiö aö bjóöa sig fram til forsetastarfa skömmu fyrir þrælastríöið. Barondess segir ennfremur, aö þaö sé ekkert til, sem heiti saga, heldur einungis saga einstaklinga. Athöfn heldur ekki öllu mikilvægi sínu, nema viö þekkjum at- hafnamanninn. Við viljum meö öðrum orðum vita hvaö leikarinn, sem leikur hlutverkið heitir. En kjarni málsins er það, sem fyrst hefur haft áhrif til athafna eða kveikja sjálfrar athafnarinnar. Við vitum nokkuð um þau eölis- og efnafræöilegu lögmál, sem gera líf mögulegt og við getum sett saman skynsamlegar kenningar um uppruna þess og þróun. En þessi þekking skýrir ekki þá sérstöku atburði í hugum Jesú, Múhameðs, Péturs einsetumanns og Lincolns, sem urðu þess valdandi, aö þeir tóku ákvörðun á örlagaríkum' tímum og hleyptu af staö þjóðfélagshreyfingum, sem breyttu atburöarás mannkynssög- unnar. Hinn frjálsi vilji, sem er ávöxtur sannleikans og sannleiksástarinnar, er vissulega sterkasta og áhugaverðasta aflið í mannlegu lífi. Ef hægt væri að beina hinum frjálsa vilja mannanna í sömu braut, er ekkert sterkara afl til og ekkert svo sterkt, aö þaö geti staöist styrk þess, hvort sem þaö eru borgarmúrar, helsi eða atómsprengjur. Sumum kann að viröast full djúpt í árina tekið og aö fleira þurfi til að koma, en er það ekki einmitt þetta sem Einar Benediktsson á við í upphafi íslandsljóða sinna, er hann segir af sinni alkunnu snilld: Þú fólk meö eymd í arf Snautt og þyrst við gnóttir lífsins linda, litla þjóö, sem geldur stórra synda, reistu í verki viljans merki, — vilji er allt, sem þarf. Skáldið gerir sér Ijósa grein fyrir mætti hins frjálsa vilja. Raunvísindi eru alveg hlutlaus frá siöfræðilegu og trúarlegu sjónarmiði. Þessvegna er hægt að nota þau bæöi til góös og ills svo sem núlifandi kynslóð þekkir allt of vel. Það er komið undir hinum frjálsa vilja mannsins, hvor kosturinn verður fyrir valinu. Ég skal aöeins minnast á nokkur atriöi af mörgum, þar sem ég tel, aö vísindin hafi unniö umtalsveröan siöfræöllegan sigur, en ég skal jafnframt viöurkenna, að forsenda hans voru kenningar hinna miklu höfunda trúarbragða og siöfræði. Ef ekki á illa að fara vegna framþróunar vísinda og tækni tel ég, aö trú, vísindi og siöfræöi verði aö haldast í hendur ekki aðeins í hugum fagmanna í þessum greinum heldur alls almennings. En einmitt hlutleysi vísinda í þessum efnum varö til þess, aö þau gátu oröið forsenda mikilla siöfræöilegra framfara í mannlegu samfé- lagi bæöi meö því aö eyöa hjátrú og líkamlegum og andlegum sársauka. Maöurinn er frábrugðinn dýrum að því leyti, aö við teljum hann gæddan skynsamlegu viti í ríkari mæli en þau, en þessi skynsemi hans hefur oft veriö sampfin hroðalegum hleypidómum. Vegna þessa eiginleika síns þarf maöurinn aö finna skýringar á öllu og fyrir tilkomu raunvísinda voru skýringar hans og ráð á stundum sjúklega grimmúðlegar. Þaö hefur komið í Ijós, að hin forna aðferö Maya indíánanna í Mið-Ameríku til þess aö framkalla regn, var aö limlesta ungar meyjar meö steinöxi og fleygja þeim síðan í hina heilögu tjörn. Galdraofsóknir, sem voru fólgnar í grimmilegum ofsóknum gegn saklausu fólki, sem átti til að mynda aö hafa galdraö nytina úr mjólkurkú nágrannans, er einnig greinilegt dæmi um hugsunarhátt og framferöi fyrir daga raunvísinda. Annar mikilvægur siðfræöilegur sigur vísinda var aö gera sársauka hjákvæmi- legan. Fáir einstaklingar hafa þann „guö í sjálfum sér“, aö þeir geti sett sig fullkomlega í spor annarra manna. Þessvegna er ákaflega erfitt aö skilja til hlítar ástand, sem styöst ekki viö persónulega reynslu. En sú var tíöin, og hún ekki fjarlæg, aö ekki voru til nein lyf til þess aö lina líkamlegar þjáningar manna og allar meiriháttar skuröaögeröir kost- uöu ólýsanlegar þjáningar. Ef sjúklingur- inn liföi aögeröina af, var ein9» líklegt aö hann dæi vegna blóðeitrunar, sem vísindamenn höföu þá ekki lært aö varast. Aögerö, sem í dag þykir varla umtalsverö, mátti þá heita dauöadómur. Svæfingarlyf til notkunar viö skuröað- gerðir voru fyrst reynd af Morton í Bandaríkjunum áriö 1846 og fyrsta hreina verkjadeyfandi lyfiö, morfín, var einangrað af Þjóöverjanum Sertúrner áriö 1805. Þessir menn veröa því aö teljast meöal merkari vísindamanna og siöfræöinga, sem uppi hafa veriö. Þessum og öörum tilraunum til þess aö lina líkamlegan sársauka var tekiö fálega fyrir rúmlega eitthundraö árum af stórum hópi manna, sem báru fyrir sig guölega forsjón, en samkvæmt henni var mannkyninu ætlaö aö líða þjáningar. Þessum rökum var sérstaklegí beitt gegn gjöf svæfingarlyfja við fæöingar og var þá vitnað í 1. Mósebók þar sem segir: „meö þraut skal þú börn fæöa“. Þessi mótstaöa dvínaöi ekki aö marki fyrr en Viktoría drottning reiö á vaðið og lét gefa sér svæfingarlyf, þegar hún fæddi Leopold, prins, áriö 1853. Sá vísindamaður, sem átti mestan þátt í aö leggja grundvöll aö sótthreinsunar- fræöinni, var Frakkinn Louis Pasteur. Pasteur var mikill mannvinur og trúmaður og fór ekki dult meö þaö. Hann sagöi, aö mesta ástríöa iífs síns heföi verið vísindastörfin, sem hann liföi fyrir og var hamingjusamur þegar hann sá, hvernig hægt var að nota þau til gagns fyrir meðbræður hans. Hann tókst á hendur öll sín störf meö þeirri alúö aö fágætt er og þaö kemur berlega fram í ritum hans, aö hann geröi sér þess Ijósa grein, aö þaö var guö, sem studdi hann, gaf honum guölega andagift og aö hamingja hans stafaöi af því. „Mikilleiki mannanna verka veröur kvaröaöur eftir því, hvaðan kveikja þeirra kemur. Hamingjusamur er sá, sem á guö í sjálfum sér“, sagöi hann. Meö svipaðri alúö og Pasteur beitti tónsnillingurinn Beethoven sinni guölegu sköpunargáfu. Þegar hann átti í mestu erfiðleikum lífs síns, var hann aöeins 32 ára gamall. Þessir erfiöleikar voru heyrnarleysi, sem haföi ágerst nokkur ár á undan og þá haföi hann aöeins samiö fyrstu simfóníu sína af níu. Hann fluttist þá til útborgar Vínarborgar, sem heitir Heiligenstadt og þar skrifaði hann m.a. eftirfarandi um sára lífsreynslu sína: „Ó hversu harkaleg vonbrigöi hlaut ég aö reyna, þegar ég missti heyrnina og mér var ómögulegt aö segja viö viömælendur mína talaöu hærra, hrópaöu vegna þess aö ég er heyrnarlaus. Hvernig var mögulegt fyrir mig aö viðurkenna veik- leika þess skilningarvits, sem ætti aö vera næmara í mér en öörum; skilningarvit, sem eitt sinn var fullkomnara í mér en í flestum ef ekki öllum í minni starfsstétt. Hvílík auömýking, þegar einhver stóö viö hlið mína og heyrði flautuhljóm í fjarska, en ég heyröi ekkert eöa einhver heyröi smalann syngja en ég heyröi heldur ekkert. Slík atvik geröu mig frávita af örvæntingu og ég var kominn aö því aö svipta sjálfan mig lífi. Aðeins listin aftraöi mér frá því, þar eö mér fannst ég ekki geta yfirgefið heiminn fyrr en ég haföi gert þaö, sem guðleg forsjón haföi ætlað mér aö gera.“ Og hvaö var þaö, sem forsjónin haföi ætlað Beethoven aö gera? Aö semja hvorki meira né minna en 8 simfóníur og ýmis önnur verk, sem hvert er ööru meira listaverk og andlegur fjársjóöur núlifandi og óbornum kynslóöum. Flestir dómbærir menn hafa lokiö upp einum munni um 9. simfóníu Beethovens, en trúlega hefur enginn gengiö lengra en spænsk-ameríski heimspekingurinn Santayana, er hann sagöi, að Guö heföi skapaö heiminn til þess aö níunda" simfónían yröi samin. En um hvaö fjallar þá þessi simfónía? Hún er í raun og veru einn samhljóma sálmur um sköpunarverk Guös og gleöi til lífsins. Leyndardómur og boöskapur þessa svanasöngs Beethovens er eining mannkyns í bræöralag ástarinn- ar. Aöeins alheimsástin getur breytt og endurleyst heiminn. Hún er kenning Jesú frá Nazaret, Búdda, Zoroaster, Plato og Spinosa. Hún er kening þessara hugsuöa túlkuö í tónum í staö orða. Verið umvafin ást. Hér er koss handa öllum heimi. Þrátt fyrir ósigra og efasemdir, er hjarta heimsins heilbrigt, áætlun Guös er góö og örlög mannsins eru gleöi vegna þess, aö grunntónn lífsins er ást. Þessvegna höfum við, þrátt fyrir allt, ástæöu til þess aö vera bjartsýn um framtíð mannkyns. Aöventuerindi flutt í Hafnarfjarðarkirkju fyrsta sunnudag í aöventu, 28. nóvember 1976.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.