Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1978, Side 18

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1978, Side 18
Til vinstrii Þórður Kristleifsson og Laugarvatnskórinn 1946. Myndin er tekin í leikfimisalnum á Laugarvatni. Að ncðan til vinstrii í marzmánuði 1955 kom Ásgeir Ásgeirsson, forseti íslands að Laugarvatni og hlýddi á Laugarvatnskórinn. Á myndinni flytur hann stjórnandanum, Þórði Kristlcifssyni, þakkir. Hér að neðani Kristleifur Þorsteinsson, bóndi og sagnaritari á Stóra Kroppi. Myndin er tekin af honum áttræðum. Rætt viö ÞÓRÐ KRISTLEIFS- SON En hann hugsaöi miklum mun meira um ættfræöi og fræöimennsku af ýmsu tagi heldur en steinatök og aflraunir. Og ég held mér sé óhætt aö fullyrða, aö hann hafi veriö í fremstu röö þeirra „íþrótta- manna“, sem lesa svo vel, að unun er á aö hlýöa. Þaö mæddi því aö miklu leyti á honum aö lesa upphátt allar kvöld- vökur heima, frá því aö byrjað var að tendra Ijós á haustnóttum og veturinn út. — Hann haföi líka eftirtökusama áheyrendur, þar sem hann flutti langa sagnaþætti sína á námskeiðum og samkomum í héraöinu. Stundum flutti hann og frumort kvæöi eftir sig viö slík tækifæri." „Hófst söngferill þinn í baöstofunni á Stóra-Kroppi?“ „Ég var tvo vetur í alþýöuskóla séra Ólafs Ólafssonar í Hjarðarholti í Dölum vestur, og Páll sonur séra Ólafs, síöar útgerðarmaöur í Reykjavík, tók mig eins og hverja aöra ótemju og lét mig kyrja ósköpin öll og eftir þaö voru ekki grið gefin, fyrr en ég ganaöi út á hina flughálu og viösjárveröu braut söngs- ins. Hvenær? Ég kvaddi æskuheimili mitt Stóra-Kropp haustiö 1919, og var þá þegar ráð fyrir því gert ég mundi hafa útivist langa. Trúaö gæti ég, aö þá hafi verið vandfundinn sá maöur í Borgarfirði, sem ekki leit á þetta sem hraklega slysni og ótrúlegt ógæfuspor. — Ég dvaldist í Reykjavík næsta vetur og læröi þá meöal annars undirstööu- atriöin í þýzku hjá fluggáfuöum ungum manni, sem þá sat í Menntaskólanum í Reykjavík og var aö nema þar þessa tungu hjá hinum rómaöa þýzkukennara Jóni Ófeigssyni. — Ég rifjaöi einnig upp dönskuna. — Þessi afbraöskennari sýndi alveg ótrúlega þolinmæöi og þrautseigju og lagöi sig allan fram til aö troöa því inn í hausinn á mér, hvernig ég ætti að lesa nótur og snerta á píanói. — Hjá þessum fingrafima og ósérhlífna kennara komst ég fyrst í náin kynni viö mörg af úrvalslögum Schuberts. — Frá þeim fyrstu kynnum hef ég unnað honum af öllu hjarta. Voriö 1920 leysti ég landfestar, sigldi til Kaupmannahafnar. Ekki hóf ég þó þá þegar söngnám, heldur dvaldist á búgaröi úti á Sjálandi um sumariö. — Að vissu leyti fannst Dönum þetta hálf kynlegur fugl; kominn frá íslandi og kunni aö plægja akra eins og hann heföi aldrei boriö annaö viö um dagana. — Sem sveitastrákur haföi ég bæöi gagn og gaman af því að kynnast búskapar- háttum Dana, en skrambans lítiö miöaöi nú áfram í söngnáminu, meöan ég hélt um plógsköftin og sáöi í akra Sjálands, enda kvaddi ég þennan sveitabæ um haustiö og lagöi leiö mína til Kaup- mannahafnar. Þar átti ég sannarlega hauka í horni, Harald Sigurðsson píanéleikara—frá- Kaldaðarnesi og konu hans frú Dóru Sigurðsson söngkennara. — Meiri góövild og hjálpfýsi en þau auðsýndu mér er vart hægt aö ímynda sér. — Þau leiöbeindu þessum „sveitamanni“ á allan hátt á „hálkunni" og studdu hann meö ráö og dáö. — Enda þótt ég nyti þegar tónlistar- og tungumálakennslu þar í borg, hvöttu þau mig til aö leita mér frekari menntunar í Þýzkalandi, þar sem var víökunn og þrautræktuö tónlistarmenning. Eftir nýjár 1921 hélt ég til Dresden og þar stundaði ég tónlistar- og tungumálanám til 1925 og síöar lá leiðin til Milano. Þýzkaland var í sárum eftir fyrri heimsstyrjöldina, er þangaö kom. Þar var matarskortur mikill og flestra gæöa á þeim vettvangi vant. Haraldur Sigurðsson taldi ekki eftir sér aö sénda mér margan matarpinkil- inn í pósti. — Ef þessar sendingar voru auðkenndar með oröinu Liebesgabe, þá voru póstþjónarnir ekkert aö rexa í þessu háttalagi. — Smjör og fleira, g.em mér barst stundum aö heiman kom sér einnig mætavel; annars heföi maður oröið rýr í roöinu. Á þessu tímaskeiöi töldu Þjóðverjar sjálfir matarskortinn sízt minni en á stríösárunum, og kom þó margur mjósleginn úr þeirri orrahríö. En þótt hrammur styrjaldarinnar hefði víða skilið eftir sig fingraför ófögur, þá var gróandi í tónlistarheimin- um í Dresden á þessum dögum__________ Músíkín var smyrsl á sárin; huggun í þrengingum og hörmum. Fritz Busch var þá aöalhljómsveitar- stjóri óperunnar, glæsilegur forystu- maöur og röggsamur og haföi um sig úrvalsliö listamanna í hljómsveit, kórum og af óperusöngvurum. En þaö voru fleiri ómetanlegar uppsprettur menntandi tónlistar þar í borg. Flesta sunnudaga hlýddi ég á fögur kirkjutónverk í kaþólsku kirkjunni; smærri eða stærri tónverk eftir höfuð- kempurnar, Bach og Handel og marga fleiri höfunda. Þetta voru aöallega „söngguösþjónustur“ og öllum opnar. Þá var ein heilsulindin af þessu tagi í Krosskirkjunni. Viö orgelið sat hinn blindi orgelsnillingur Bernhard Pfannstiehl, einn víðfrægasti konsert- organleikari sinnar samtíöar. Hann varö blindur nokkurra mánaöa gamall í skarlatssótt. Pfannstiehl TíáfÓÍ sér til aöstoöar og Krosskirkjan sér til álitsauka heimsfrægan drengjakór.“ „Einhverjir fleiri landar hafa veriö í Dresden um þetta leyti?“ „Jú, — Halldór Laxness var um skeiö í Dresden, skömmu eftir aö ég hóf nám mitt þar. Hann var þá liölega tvítugur, ákaflega hugþekkur og skemmtilegur ungur maöur. Hvort hann var þá ákveðinn í aö veröa rithöfundur? Já, svo sannarlega; þar var nú engin hálfvelgja. Hiklaust skyldi stefnt á brattann og allar brýr brotnar aö baki sér.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.