Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1978, Page 20

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1978, Page 20
sonar Geir V. Vilhjálms- son Þriðji hluti Fæðing Psykes, 1915—1918. EM SISTREYMANDI LIND © Þegar gengið er inn um aöalfiyr safnhúss Einars Jónssonar á Skóla- vörðuhæð blasir við beint fyrir augum stór lágmynd, Fæðing Psyches, 1915—1918. Mynd þessi er í sýningar- skrá merkt tölunni 1. og gefur þessi niöurröðun til kynna aö listamaöurinn líti á viöfangsefni myndverksins, fæö- ingu sálarinnar í samspili frumkrafta náttúrunnar, sem grundvallandi afl í listsköpun sinni. Um þessa mynd segir prófessor Raymond F. Piper í bók sinni, The Hungry Eye: „Verurnar fjórar eru fulltrúar jaröar, vatns, lofts og elds og er þeim raðað upp sem samræmdir armar mikils eldkross, en hann er fornt tákn fyrir frjósemi og fæðingu. Frum- kraftarnir sem þær tákna leggja hver sitt fram til byggingar á táknmynd sálarinnar, sem hér fæðist sem fögur meyja í miöju myndarinnar. Hún teygir sig upp til eldsins, en hann er sá frumkraftur sem mest tengist anda mannsins, tákn sköpunarorku hans og afls. Sá listamaður er vissulega hugaöur, sem þorir aö tjá sig í gipsi og bronsi um fæöingu vitundarinnar, en hér tekst þetta meistaralega vel á skýran, ákveöinn og ótrúlega fullkominn hátt... Brúnir myndarinnar eru snerti- fietir viö hlið óendanlega og ósýnilega. Þetta skapandi listaverk skilur eftir hjá mér traustvekjandi tilfinningu gleði yfir því aö hafa skynjaö að sál mín er samofin kærleiksríkum örmum viti gæddrar tilveru/ Sú vísbending sem Fæöing Psyches gefur um Einar Jónsson sem myndlist- armann stenst nánari athugun. Vett- vangur listsköpunar hans er mannleg reynsla. Hin ýmsu vitundarstig manns- sálarinnar birtast áhorfendum í fjöl- breyttustu myndum allt frá örvæntingu Samvizkubits, 1911 — 1947, skoðun hans að kjarni mannsins sé síung uppspretta frjómagns og sköpunar- krafts, sem brotið geti af sér stöönun hins ytra forms, meistaralega sýnt í mynd hans Kjarninn, 1939 og í myndinni í Tröllahöndum 1916—1923, yfir í að sýna hljóðlátan styrk trúarinnar í myndinni Bæn, 1939 og hið mikla sameiningarafl kærleikans í myndinni Komiö til mín, 1917—1950. Þaö sem gefur myndmáli Einars Jónssonar sérstööu er annarsvegar hiö djúpsæja heimspekilega og trúarlega ívaf sem einkennir mörg verka hans og hinsvegar sú meistaralega mynd-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.