Lesbók Morgunblaðsins - 09.06.1979, Side 3
Þannig leit hinn verðandi hugsuður út
8 ára. Þeim til hughreystingar, sem
eiga seinþroska börn, má benda á, að
drengurinn Albert þótti seinn til máls
og var ekki einu sinni læs á níunda ári.
Albert Einstein ungur maður og ekki
sérlega efnilegur. Hann þótti slá slöku
við nám og lærifeður höfðu ekki mikið
álit á honum. Að námi loknu fékk hann
vinnu sem „þriðja flokks sérfræðingur“
á einkaleyfaskrifstofu í Bern.
staöreynd, aö Einstein voru veitt Nób-
elsverðlaun fyrst áriö 1921 , sextán
árum eftir útgáfu afstæöiskenningarinn-
ar og án þess aö mikilvægi þeirrar
uppgötvunar væri sérstaklega umtalaö.
Verölaunin voru veitt aöallega fyrir
rannsóknir á fótónunum fyrrnefndu.
Margt hefur veriö ritaö um afstæöis-
kenninguna og veröa henni síst af öllu
gerö tilhlýöileg skil hér. En viö skulum
staldra viö hornsteina hennar og reyna
aö gera okkur grein fyrir hinni gífurlegu
byltingu sem hún olli.
Fyrst og fremst grundvallaöi Einstein
sköpun sína á þeirri tilgátu aö Ijóshraö-
inn væri fastur stuöull. Michelson og
Morley höföu mælt þennan hraöa, sem
svarar til aö Ijósið gæti fariö átta hringi
umhverfis jöröina á sekúndu hverri við
yfirborö. Tilgátan um fastan hraöa
Ijóssins ásamt tilgátunni um eöli viö-
miðunarkerfa leiddi til þess aö hiö
sígilda þrívíða rúm fékk nýja fræöilega
vídd, tímann. Og eftir því sem hraöi
hluta nálgast Ijóshraöann meir, þeim
mun meira áberandi veröur þessi fjóröa
vídd.
Þetta voru viðkvæmir strengir sem
Einstein snerti. Tíminn er svo sam-
gróinn lífi manna, aö erfitt var aö sætta
sig viö aö hann hlyti sérlegum lögmál-
um; væri dyntóttur og teygjanlegur.
Menn léku sér aö alls kyns mótsögnum
sem hægt var aö leiða af Lorentz-líking-
unum fyrir afstööu tíma, rúms og hraöa.
Eitt skemmtilegt dæmi er sagan af
tvíburabróðurnum sem geystist út í
geiminn og var fjarverandi í ár, en sneri
heim aftur og kom aö bróður sínum
öldungi á grafarbakkanuml (þessi mót-
sögn á sér reyndar rangar forsendur því
aö um hrööun er aö ræöa).
Afstæðiö sjálft var svo fjarri hinum
„hversdagslega veruleika" aö ekki bætti
úr skák fyrir vinsældir kenningarinnar.
Ein sérkennileg og sönn „mótsögn"
væri t.d. aö gera ráö fyrir aö geimfarinn
fyrrnefndi gæti frá glugga geimfars síns
séö Skaftárelda geisa um leiö og
skákeinvígiö fór fram í Reykjavík! Þetta
væri hægt aö setja upp með því að
aðlaga nokkrar breytistærðir í Lorentz-
líkingunum. Þó væri mismunurinn fólg-
inn í því aö geimfarinn yröi ekki
sammáia fastalandsbúum um fjarlægö-
ina á milli Skaftár og Elliöaánna!
Samkvæmt afstæöiskenningunni er
„fortíö" og „framtíð" háö athuganda,
hraöa hans og afstæöum fjarlægöum.
Ástæöan fyrir því hversu þessi síöasta
saga er „óhugsandi" er aö hraöi og
hraöamörk okkar hversdagslega veru-
leika eru aöeins örbrot af Ijóshraðan-
um. Hljóöfrá þota í samanburði viö
Ijóshraöann er eitthvaö ámóta hlutfall
og hægfara snigill í samanburöi viö
þotu. Þannig er skynjunarhæfni manna
takmörkuö- af þeim fjarlægöum og
þeim hraöa sem þeir búa viö.
En þar kom þó aö afstæðiskenning-
una var hægt aö sanna aö einhverju
leyti meö tilraunum. Einstein haföi meö
útreikningum sínum komist aö því, aö
Ijósgeisli bognar í nálægö massa. Þetta
voru meðal annarra niöurstaöa al-
mennu afstæöiskenningarinnar 1916.
Vegna þess hversu bognunin var iítil
þurfti himinhnetti til þess aö sanna
tilgátuna. Tilraunir leiddu í Ijós sanngildi
Ijósbognunarinnar. Annaö atriöi var sú
staðreynd aö braut Merkúrs um sólu
fylgdi ekki alveg þeim niöurstööum sem
newtonska aflfræöin geröi ráö fyrir.
Almenna afstæöiskenningin, sem var í
senn djúp og fagurfræöilega hönnuö,
geröi ráö fyrir breytingu frá fyrr útreikn-
aöri braut og leiörétti hana.
Þegar þetta er ritaö eru vísindamenn
viö Massachusetts háskóla, sem skoö-
aö hafa tvístirni í himingeimnum sann-
færðir um, aö þeir hafi fundiö dæmi um
þyngaraflsbylgjur, sem Einstein reyndi
aö gera grein fyrir meö almennu
afstæöiskenningunni. Þaö var síöasta
stórátakiö sem hann tók sér fyrir
hendur. Einstein var sannfæröur um aö
þyngdarsvið og rafsegulsviö væru sam-
ofin fyrirbrigöi. Sú kenning hefur verið
nefnd sameinaöa sviðskenningin.
Um óbeinu áhrif afstæöiskenningar-
innar er ekki hægt að fjalla eins
örugglega. Víst er að heimspeki, listir
og listsköpun fóru ekki varhlutann af
þessum hræringum í vísindunum. Af-
stæöiö endurspeglaðist víöa í bæði
tónlist og myndsköpun. Atómöldin á
rætur sínar í orku-massa-jöfnu Ein-
steins; viö komum aö þeim þætti síðar.
Á íslandi ortu menn „atómljóð“ — og
nafniö kannski helst gefiö til kynna að
fornu Ijóöformi var splundraö. Steinn
Steinarr, „atómskáldiö“ var heillaöur af
hinu nýja viöfangsefni vísindanna og gaf
því fagurfræðilegan blæ í Ijóöi sínu
TÍMINN OG VATNIÐ:
. . . Og tíminn er eins og mynd
sem er máluð af vatninu
og mér til hálfs ...
Og dularfullir eiginleikar rúmsins:
... A hornréttum fleti
milli hringsins og keiiunnar
vex hiö hvíta blóm dauöans ...
Tíminn er afstæöur, jafnvel kyrr eins
og hér:
... Og líf mitt stóö kyrrt
eins og kringlótt smámynt
sem reist er upp á rönd ...
Áöur en viö hverfum frá þættinum
um áhrif kenningarinnar er ekki hægt
að láta ógetiö, aö meö henni opnaöist
ný vísindagrein, alheimsfræöin, sem
beitir aöferöum almennu afstæöiskenn-
ingarinnar á alheiminn og ieitast viö aö
svara áleitnum spurningum um fyrir-
brigöi eins og endanleika, aldur og
útþenslu hans. Túikun á geislun frá
fjarlægum sólkerfum rúmsins væri
óhugsandi án þeirrar vitneskju sem í
kenningunni felst. Meö alheimsfræöinni
varö 20. öldin landafundatími og öld
kortlagninga á ný eins og þegar skip
Magellans kortlögðu jöröina, sem einu
sinni var „alheimur" mannkyns.
Sjálfur haföi Einstein mikil afskipti af
þjóöfélagsmálum seinni hluta ævinnar.
Hann trúöi því að aöeins yröi jafnvægi
þjóðfélagslega ef menn fylgdu rökfast
einföldum forsendum, og sannleikurinn
var honum mikilvægur í mannlegum
samskiptum. Einstein naut mikils álits
og orö hans voru nánast lög. Þetta olli
því aö félagasamtök og hagsmunahóp-
ar sóttust eftir honum sem eins konar
skrautfjööur til þess aö helga málefni
sín. Stundum gekk þetta of langt.
Einn lífsþáttur olli Einstein nokkrum
áhyggjum og hefur eflaust valdiö hon-
um vissri sjálfsásökun. Þetta var atóm-
sprengjan, sem á sínar dýpstu fræöi-
legu rætur í efnis-orku líkingum Ein-
steins. Afskipti hans af atómsprengj-
unni voru fólgin í bréfi sem hann sendi
Roosevelt Bandaríkjaforseta aö áeggj-
an Fermis og fleiri þekktra vísinda-
manna, þar sem hann varar viö þeirri
hættu aö Þjóöverjar gætu hagnýtt sér
þá þekkingu sem eölisfræöingar höföu
á hugsanlegri keðjuvirkni,— spreng-
ingu.
Bréfiö átti ríkastan þátt í aö hafist var
handa viö gerð sprengjunnar. Mikiö
hefur veriö deilt á þessa gjörö Einsteins
og þykir sumum bréfiö vera blettur á
ferli hans. Eitt er víst aö sprengjan haföi
sterk áhrif á hann þegar honum voru
flutt tíöindin 6. ágúst 1945.
Eftir aö hafa lifaö landflótta vegna
gyðinglegs uppruna síns varð Einstein
bandarískur ríkisborgari 1940. Hann
Framhald á bls. 14.
©