Lesbók Morgunblaðsins - 13.10.1979, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 13.10.1979, Side 3
Jön úrvör UMTVÆRVÍSUR OG FLEIRA Þeir sem fást viö ritstörf af því tagi, sem ég er kunnastur fyrir, geta aldrei vitaö hvort eöa hvenær þau orö sem þeir tína fram á blað, koma á prent. Sumt bíöur síns náöartíma — kynna viö prentsvert- una og síðan kannski algjörrar gleymsku — í áratugi. Jafnvel pistilritari sá er hér hnoðar vinnur sér til hægöarauka langt fram í tímann. Ég er að fara til útfanda einn júlídaginn og geri hvoru- tveggja í senn glugga í Morgunblaö — 19.7. — og felli saman handrit í hæfilegri Rabblengd, handa Les- bók einhverntíma í framtíöinni. Pétur útvarpsþulur skrifar og minn- ist vísu eftir vin okkar Leif Haralds- son frá þeirri löngu liönu tíö, er ég og fleiri góöir menn voru borös- nautar hans í matsölu Alþýöuhúss- kjallarans. Síöan eru liöin tæp 40 ár og Leifur löngu horfinn til feöra sinna, alltof snemma, og getur ekki leiörétt neitt, sem eftir honum er haft. Hann orti svona: Ótal fávitar yrkja kvæði án þess að geta þaö. Á Ingólfskaffi ég er í fæöi án þess að éta þaö. Mér er nær aö halda, ao seinní- partur vísunnar hafi nú verið höf- undi hennar ríkari í huga, er hann orti, en sá fyrri, því Leifur vildi hafa mat sinn og engar refjar, engu síöur en Grettir foröum, og geröi sér ekki allt aö góðu sem fyrir hann var boriö. En fyrrihluta vísunnar hafa menn löngum barnaö fyrir höfundinn og gert úr honum hróp aö ungum skáldum, enda er þaö hægt rímsins vegna. Þetta hafa svo aðrir veriö aö reyna aö leiörétta og er enn ein tilraun til þess gerö í þessum línum. Ekki alls fyrir löngu lagöi ungur blaöamaður lykkju á leið sína og heimsótti hjónin á þeim fræga bæ Jörfa í Dölum. Bóndinn þar var gamall sveitungi og kunningi Steins Steinars. Hann minntist þar kreppuáranna, vegavinnutíma ásamt Steini og síöari fátæktarára Steins í Reykjavík, þegar skáldiö leitaöi til hans um fimmkrónu víxillán fyrir kaffi eins og þá var ekki ótítt og jafnvel nú þjóöfrægir menn yröu aö grípa til. En í því sambandi hefur blaðamaðurinn eftir bóndanum tvær vísur. Og er í annarri þeirra — vísu bónda — sneitt aö Steini fyrir atómkveö- skap. Ég leyfi mér aö gera hér athuga- semd viö tímasetningu þessa skáldskapar. Atómstöö Laxness kom ekki út fyrr en 1948. Þar kom fyrst fram þetta misskilda orö, sem síðan hefur veriö notaö sem köpur- yröi um heila skáldakynslóö og rúmlega þaö. Vísa bóndans hlýtur því aö hafa verið ort á öörum tíma en ritari hennar í dagblað vill vera lata. En þvi fjölyröi eg um þetta, aö bóndi er látinn telja fram í þessu sambandi eftirfarandi vísu, sem hann segir aö Steinn hafi ort: Rigningin í fossum fellur fyrir utan gluggann minn. Þaö er einsog milljón mellur migi í sama hlandkoppinn. Þessi vísa hefur oftar en einu sinni áöur komiö á prent. Ekki alveg rétt í áðurnefndu viötali. Hér besta gerö hennar. í íslenskri fyndni Gunnars á Selalæk mun hún vera og þar undir stafirnir E.B. Næst þegar hún var svo birt var hún eignuð Einari Benediktssyni. Þaö er áreiöanlega vitlaust, enda mun Gunnar hafa haft í huga annan Einar, eitt af hinum þjóökunnu Draghálssystkinum. En líklega er það réttast, að hún sé eftir Stein. Það var eitt af hans stíleinkennum í munnlegri frásögn aö hann eignaði öörum vísur sínar á stundum. Þetta hafa svo síöaritíma blaöaritarar tekiö upp eftir honum, eins og fleira skemmtilegt. Þetta er, eins og menn sjá, enginn góöærisskáld- skapur. Sá sem yrkir eignar sér glugga, ekki er þaö nú meira, enginn stássíbúö eöa svíta, þaö orö ekki komið á blaö hér á yrkipgartíma vísunnar. En kannski ég víki til gamans aö öörum pistli eftir Pétur. Hann nefnir í fráhjáhlaupi spaug ÚlfarseÞóröar- sonar augnlæknis, vegna þess aö kunnur borgaci í tíö Þóröar á Kleppi fööur Úlfars geröi aö gamni sínu viö ættfööurinn í upphafi aldarinn- ar, tilefniö hér nokkuö langsótt. En þaö er eins meö brandara og vísur að margt vill þar skolast viö mikla brúkun. Ég er úr sjóbúö og kenndi mig viö vör. Þegar Hafliöi bróöir minn, garöyrkjustjóri, fór aö rita um annaö en garöyrkju, kallaði hann sig frá Eyrum, en svo var Patreks- fjaröarkauptún áöur fyrr kallað, systir mín ein þýddi bók og ritaöi í trúmálablöð, og fleiri okkar syst- kina heföu getað skrifaö. Viö Haf- liði sáum, aö þarna var efni í hótfyndni og fórum aö gamni okkar aö kenna eitt þeirra viö enni annað viö kinn og svo framvegis. Skömmu seinna sáum viö þetta á prenti og var fyndnin eignuð garö- yrkjumanni, sem þá ritaði töluvert í Vísi. Þetta var fyrir mörgum árum. Auðvitaö er þetta græskulaust gaman. Þessi athugasemd átti nú bara aö vera hluti úr öörum pistli, en þaö hefur teygst úr henni, svo þaö veröur víst ekki pláss fyrir meira aö þessu sinni. Gaman væri ef einhver, sem vel var kunnugur þeim Steini og Leifi Haraldssyni, tæki sig til og safnaði tilsvörum þeirra og vísum. Ég á dálítiö af því tagi í fórum mínum. Jón úr Vör. Órn Snorrason VAKA Örlögum ráöa enginn fær þótt ýmsum bregðist vaka. Best er nóttin sú er nær næstum því til baka, og stjörnu þá, er skein svo skær, má skugginn aldrei taka. En hvar er Ijós, sem hvergi skín, og hví eru dagar taldir? Var aldrei ratvís ástin mín, og allir stigir faldir? Seinna ber mig samt til þín. — Sól hefur risið um aldir. Einhvern veginn í mér var undarlegur varmi. En getur nokkur gefið svar við geig í sínum barmi? En fáist svar — og þú ert þar, mun þegar lokið harmi. Þaö viröist eldfimt efni í mér, sem ekki þoldi mátiö. Um miöjar nætur mætti ég þér, — og margt var ósagt látið. Ég trega nú þaö tár, sem er. Því tári var aldrei grátiö. íI maí 1978. Örn snorrason Stefön Ágúst ÞORBJÖRG HÓLMASÖL Hólmasól, ó Hólmasóll í draumi þú birtist mér, björt var nótt. í biómskrýddum hólma, fyrir ellefu öldum, vió árniö Ijúfan, vafin björtum kvöldum, vaknaði til lífs fyrsta mær fagnandi Eyjafjarðar, frumgetin dóttir landnámshjóna, prinsessa gróðurs jarðar. Við lóukvak var Ijúft að líða í svefninn rótt. Eg lít þig í mínum draumum í laufskrýddum hólma, laugaöan bláum straumum, loka björtum brúnaljósum þar Eyjafjarðará rann aö ósum. Og blómin kinkuðu kolli, þau kysstu þig, góða nótt.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.