Lesbók Morgunblaðsins - 13.10.1979, Síða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 13.10.1979, Síða 13
« höfunda laga og Ijóöa, aö ekkí sé nú talað um bílstjórar^sejn flytur hljómlistar- mennlna suður í Hafnarfjörö í upp- Í/0 ér platan leikin kvölds og í útvarpinu og sjórivarpiö tekur hljómsveitina upp á arma sína einhvern tíma. Ööruvísi tónlist hverf- ur dálítiö í skuggann af öllu þessu húllumhæi, selst þar af leiöandi minna og er þá vitaskuld ekki eins örugg til útgáfu. En það eru yfirleitt útgefendur, sem leggja í auglýsinga- herferöirnar. Þaö má kannski skjóta því aö, aö viö fengum ekki útgefanda að okkar plötu. Þaö er kannski út af því, sem viö höfum verið aö tala um hér. Viö erum trúlega ekki öruggir til útgáfu. Viö brugöum hins vegar á þaö ráö að gefa plötuna út sjálfir. Eins og þetta er nú öruggur bissniss, maöur lifandi". Melchior-félagarnir setja upp bissnissmannasvip, veröa áhyggjufullir í framan (eöa er þaö kannski sjóveikin?) og hrista höfuöin í takt. „Ástandiö er mjög, mjög baga- legt“, segja þeir viö mig, og ég spyr hvernig þeir fjármagni nú fyrirtækiö. „Þaö er nú saga að segja frá því. Viö beitum dálítiö frumstæöri upp- tökutækni. Viö tökum plötuna ekki upp í Hljóörita eins og flestir íslensk- ir tónlistarmenn gera í dag, heldur í stúdíói í Mosfellssveitinni. Síöan borgum viö okkur ekki kaup, og heldur ekki þeim aragrúa vina og félaga sem hafa hjálpað okkur á einn eöa annan hátt. Þeir fá í mesta lagi brauösneiö hjá okkur, ef hlé verður á upptökunum, og kannski vatn eöa ódýrt djús meö. Hvaö okkur varðar, þá hefur sumariö fariö í þetta hjá okkur, þannig aö við höfum lítið sem ekkert getað unnið heföbundna vinnu skólafólks, eins og þaö er víst orðað. Upptökumaðurinn okkar, Garðar Hansen, hefur eins og allir aörir gefið sína vinnu, og hefur veriö einstaklega lipur, þolinmóöur og Ijúfur á geöi gagnvart okkur. Bara aö alþingismennirnir væru eins og hann/Nú, óhjákvæmilegu útgjöldin, tollar, pressun og opinber gjöld er borgaö meö víxlum í bili. Viö verðum svo aö sjá til hvernig salan á plötunni mun ganga. Hún er gefin út af Gínu-forlaginu í samráöi við Dieter Roths Verlag. En þaö munar þó líklega langmest um það, aö vinir okkar hafa unnið kauplaust fyrir okkur. Án þeirra heföi þessi plata aldrei orðið að veruleika. Þeir hafa gert það, vegna þess aö þeim er, eins og okkur, umhugaö um aö þessi plata líti dagsins Ijós. Þeim finnst við eiga erindi á tónlistarmark- Melchior: Við erum stöðugt aö reyna aö marka okkur sjálfum tónlistarlegan bás að vera í, án þess þó að gerast einhverskonar einstefnu- menn. Þessi viöleitni heftir okkur nú samt stundum. Þessvegna erum við alltaf aö reyna að sprengja búriö utan af okkur. aöinn meö þá tónlist sem viö erum aö skapa.“ Taliö fer nú aö berast aö nýju plötunni, og því sem á henni er að finna. Áhyggjusvipnum léttir af þeim félögum og þeir eru ekki lengur bissnissmannalegir í framan, en veröa æ líkari venjulegu fólki. „Hljómsveitin Melchior var á sín- um tíma stofnuð til aö vera dálítið ööruvísi. Viö vildum reyna aö nota ööruvísi hljóöfæri til aö leika létta tónlist. Þess vegna gripum við til dæmis til óbósins og sellósins, eins og á plötunni Silfurgrænt ilmvatn. Þaö gerum viö líka núna, þó viö höfum ekki getað nýtt okkur öll aukahljóðfæri í öllum lögum eins og viö hefðum sjálfir helst kosið. Það geröi upptökutæknin aö verkum. Viö vildum gera plötuna lifandi, þaö er aö segja, þaö er allt tekiö upp um leið, söngur og allur hljóðfæra- sláttur. Viö gerum okkur vonir um að geta þannig haldið því sem vill aö öörum kosti tapast í allri tækninni í stúdíóinu: lifandi flutningi meö stemmningu og fjöri — og auðvitað einhverjum göllum — en kostum líka. Mörgum, mörgum kostum. Viö vildum prófa okkur áfram meö vinnubrögð af þessu tagi, og erum nokkuö ánægðir meö árangurinn, þó viö segjum sjálfir frá. Þetta er næsta góö hópvinna, sem kemur út úr þessu öllu saman. Framhald á bls. 14.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.