Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1980, Side 8
' * ili
Hér er Nína ásamt móöur sinni, Elinu Guöjónsdóttir, sem stundum skrifar um
Parísartízkuna og fleira í Lesbók. Á bak viö þær er vefmynd eftir Nínu.
Hjúkrunarkonan Nína Gautadóttir. Myndin er
tekin meöan hún starfaöi við hjúkrun hér heima.
Hans og Grétu-húsiö, sem Nína og eiginmaöur hennar hafa nylega flutt í. Paö er
útjaöri Parísar, en Nína veröur áfram meö vinnustofu í Latínuhverfinu.
-
Utveggurinn var að
Nína: „Ég hef ver-
iö alveg ótrúlega
heppin og hef uppá
síökastið getaö
framfleytt mér af
Ii8tinni“.
Þegar Nína Gautadóttir hélt utan til
Parísar fyrir nærri tíu árum, þá var þaö aö
mestu ferö án fyrirheits. Hún haföi lært
hjúkrun og ævintýraþráin togaði hana út
fyrir pollinn. Þá var ekki beint í sigti aö
afla sér frekari menntunar — og engin
sérstök nauösyn rak hana heldur til
fararinnar. En hún var áræöin eins og hún
hefur alltaf veriö og rauöa háriö, sem er
og var sterkasta einkenni hennar, gaf
hugmynd um írskar formæður. Hvaðan
listrænir hæfileikar hennar eru upp
sprottnir, er ekki gott aö segja um. En
trúlega hefur hún haft með sér í farangr-
inum handlagni frá fööur sínum, Gauta
Hannessyni handavinnukennara, — og
ævintýraþrána mætti ef til vill rekja til
móöurinnar, Elínar Guöjónsdóttur, sem
annaö veifið hefur stungiö niöur penna í
Lesbókina; til dæmis um tízkuhúsin í
París og framleiöslu þeirra.
Fyrir ævintýrafólk er hjúkrun aö því
leyti heppileg starfsgrein, að hægt er að
fá vinnu hvar sem er á sjúkrahúsum. Þótt
Nína heföi aðeins lítilsháttar lært frönsku
áriö 1970, gekk henni vel aö fá vinnu t
sérgrein sinni, þegar út kom til Parísar.
Sá starfsferill hófst raunar meö dálitlu
ævintýri, sem veröur henni minnisstætt
— og var því líkast, þegar mennskir
menn gengu inn björgin í sögum og litu
þá dýrö, sem ekki blasti viö hvunndags.
Þótt ótrúlegt megi viröast, var hún
tiltölulega lítt reynd og illa talandi á
frönsku, send til aö vera innan handar á
því heimili í Frakklandi, sem trúlega getur
státaö af mestum auöi. Þar búa nefnilega
þeir barónar og greifar og stórfaktorar,
sem eiga heilan banka bara fyrir sig,
ásamt ýmsu ööru að sjálfsögöu — og
heita Rotschild. Þeir munu vera gyöingar
aur og bleyta á
gólfunum — en
NÍNA GAUTA-
DÓTTIR kippti því
í lag, settist að í
Latínuhverfinu og
hefur þegar skap-
að sér nafn sem
veflistakona í
Paris.
eítir Gísla Sigurðsson