Lesbók Morgunblaðsins - 24.05.1980, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 24.05.1980, Side 5
„Hvernig má læra þá aöferö?“ „Svo aö vitnað sé til þess sem margir þekkja, þá vil ég nefna slökun- aræfingar sem Hulda Jensdóttir Ijós- móöir hefur kennt lengi á námskeiðum fyrir barnshafandi konur. Þaö sem þarf til að ná slíkri slökun, er kyrrð í umhverfinu, þægileg stelling, róleg öndun, það þarf að slaka á vöðvunum meö athygli, og það sem erfiðast er fyrir marga, — þaö þarf að tæma hugann. Þekktur bandarískur læknir, Her- bert Benson sem stundað hefur rann- sóknir og meöferð á hækkuðum blóð- þrýstingi, hefur hagnýtt aldagamla hugleiðslutækni Austurlandabúa til að kenna sjúklingum sínum og ööru fólki slökun með einföldum hætti. í bók sinni „The Relaxation Response" mæl- ir hann meö því aö fólk stundi hugleiðslu sína og slökun í 10 til 20 mínútur tvisvar á dag. Til þess að tæma hugann, mælir hann með því að hafa yfir í huganum eitt orð, orðið einn í hvert skipti sem maöur andar frá sér. Einnig má endurtaka stutta bæn jafnoft. í flestum trúarbrögðum heims eru kenndar aöferöir sem gera mann- inum kleift að komast í samband viö Guö sinn og öðlast ró. Innhverf íhugun er fyrst og fremst í þessu fólgin, markviss leit að friöi og slökun. Það er mikilsvert að menn nenni aö læra að beita slökunaraöferöum, en grípi ekki í óþolinmæöi sinni til þess auðvelda aö gleypa róandi pillu eöa fá sér einn tvöfaldan. Slökun kemur líka eölilega eftir líkamlega áreynslu, t.d. sund, böö, skíöagöngur og gönguferðir yfir- leitt. Þeim aðferðum hafa margir merkir menn beitt. Góður svefn er reyndar sú aðferðin sem flestir nota með ágætum árangri. Eigi fólk erfitt með svefn vegna streitu, er gott ráö að koma við í sundlaugunum eftir vinnu, fara í góðan göngutúr að kvöldi eða fara í þægilega heitt bað fyrir svefninn. Líkamleg slökun tryggir andlega slök- un. Það er mikill munur á þeim sem sofna meö höfuöverk og í hnipri og á hinum sem teygir úr sér og slakar á. Þar sem leikfimi er kennd, er sums staöar lögð áhersla á að kenna slökun. Þeir sem hafa lært vel aö slaka á, þurfa ekki aö keyra sig áfram þar tii þeir komast í vandræöi. Þeir geta gripið til slökunar mörgum sinnum á dag, t.d. í kaffihléum eöa á leiöinlegum fundum. En mönnum er mishætt við aö verða langvarandi streitu að bráð. Fyrir um 20 árum báru 2 hjartasérfræðingar í Kaliforníu, Freedman og Rosenman fram þá kenningu, að persónulegur lífsstíll manna gæti átt þátt í orsök hjarta- og æðasjúkdóma. Menn hafði lengi grunað, bæði lækna, sjúklinga og ekki síst eftirlifandi aöstandendur að streita gæti valdiö hjartaslagi. Eitt það fyrsta sem hægt var að staðfesta í þessu tilliti var þaö, aö viö aukna streitu, hækkar cholesterol í blóði. Tekinn var til rannsóknar hópur manna, sem allir voru endurskoöend- ur. Við rannsókn kom í Ijós aö cholesterolmagn hækkaði mjög í blóði þeirra fyrir og um 15. apríl á ári hverju, en sá dagur er skiladagur á skatt- framtölum fyrirtækja þar í landi. Chol- esterolið lækkaði síðan aftur í maí og júní. Menn þessir voru Undir miklu andlegu álagi fyrir skiladaginn, en lífsmynstur þeirra og mataræði var ekki öðruvísi en venjulega. Skv. kenningum þessara vísinda- manna, má skipta fólki í tvo flokka, A-menn og B-menn, eftir lífsstíl og persónugerð. í stuttu máli, sá er munurinn á þeim, aö A-menn eru í stanslausri keþpni viö tímann en B-menn eru rólegri í tíðinni. Til að kanna heilsufar manna í þessum hópum, völdu þeir 80 manns af hvorri gerö, sem voru í leiðandi stöðum í San Fransisco. Voru hóparnir bornir sam- an. Meöal annars sem fram kom, var þaö aö A-menn voru með hærra cholesterolmagn í blóöinu og meðal þeirra voru hjarta- og æðasjúkdómar 7 sinnum algengari en hjá B-mönn- um.“ „Getur þú gefið okkur nánari lýsingu á manngerðunum A og B?“ „Háttalag A-manna einkennist af tilhneigingu til að afkasta sífellt meiru á sama eöa styttri tíma. Þeir hafa mikla baráttuhneigö og keppnisvilja og eru alltaf aö koma sér áfram. Kapp- girni þeirra fylgir oft árásarhneigö, sem oft er vel falin, en notast sem orka í þeirra stanslausu baráttu. Þeir bregö- ast við verkefnum með áhlaupi, keyra hraðar en aörir, og boröa hraöar en aðrir. Þeir eru sívinnandi, og sjálfsmat þeirra og sjálfsöryggi er í hlutfalli viö afköstin. Séu þeir í fríi, fá þeir sektarkennd. Þessir menn eru kallaöir dugnaöarmenn á Vesturlöndum. B-maðurinn hagar sér yfirleitt þver- öfugt. Hann hefur betri stjórn á lífi sínu yfirleitt. Hann fer sér rólegar. Hann vasast ekki í mörgu í einu, hefur tíma til að tala viö aðra og hlustar með óskiptri athygli á hvað aörir segja. Mönnum finnst gott að tala viö hann og þeim líður vel í návist hans (stress hjá einum er alltaf öðrum til ama, óróleikinn smitast). En B-menn eru ekki síður farsælir í störfum og geta verið á sinn hátt framagjarnir, þótt baráttan um framann sé ekki eins hörð. Jafnmargir B-menn og A-menn eru sagöir vera í trúnaðarstörfum í Kaliforníu. B-mennirnir eru farsælli og verða langlífari. í bókinni „Type A Behaviour and your Heart'* eftir Freedman og Rosen- man er gerð ítarleg grein fyrir því, hvaö A-maöur getur gert, ef hann vill bæta líf sitt og lengja þaö og gerast B-maður. Hann þarf þá að breyta um lífsstíl en auðvitaö er það skilyrði að hann þekki og viðurkenni sinn stíl og vilji breyta honum. Slíkt er ekki hægt með piiluáti, aö vísu er hægt aö lækka blóðþrýsting með pillum og minnka stress með róandi lyfjum, og það er hægt að drekka sig ærlega fullan til aö slaka á og mörgum A-manninum finnst hann ef til vill eiga það skilið eftir erfiöi vikunnar sem hann er þó sjálfur höfundur aö, en þaö leysir engan vanda og mynstrið er sífellt endurtek- iö.“ „Hvað á hann þá að taka til bragðs?“ „Þaö fer ekki hjá því, að læknir á íslandi sem vinnur 10 til 12 tíma á sólarhring, skammist sín svolítið, þeg- ar hann reynir að svara þessu. En svariö myndi verða eitthvaö á þessa leið: Hann á í fyrsta lagi að fækka störfum — setja frítíma inn í daginn (þótt ekki sé nema nokkrar mínútur af og til). Ætla sér ekki meira en hann kemst yfir meö góöu móti, taka sér frí um helgar, taka ekki vinnuna með sér heim — menn hvílast ekki meö allt drasliö á bakinu eins og könguló. Ætla sér tíma fyrir leiki, sport og annað sem hægt er að njóta í frístundum. Það er hægt að temja sér svona lífsstíl en til þess að gera þaö, þarf að taka ábyrgö á tilverunni og stjórna henni talsvert fremur en aö láta umhverfiö endalaust stjórna sér. Menn hafa gert þetta meö góðum árangri. Það kostar einbeitingu og vilja og talsvert skipulag, skipulag sem eykur frelsi, en minnkar það ekki. Þess háttar leiðrétting á skaölegum lífsmáta tengist reyndar þeim greinum af læknisfræði og sálfræði, sem kölluö hefur veriö atferlisfræði. © Matthías Johannessen VEGLAUST HAF 1 VI Þú ert ögurstund Við lögöum af staö í ævi/ minni í langa óvissa ferö ég er flóö og fjara og hrynjandi hafsins með lítið nesti, í hreyfingu yndi sem festi þinni ég ungur Þú komst eins og sól viö grunleysi þitt um suöurhimin og vindurinn tínir fórst eldi um vötn af birkinu blaö og apalhraun og blaö og eins og þú sérö og brjóst mitt fylltist sóttu haust og vindar fegurö þinni á laun á hjarta mitt Og senn fellur einnig II Bros klettaaugu fyllast aö furðuljósum VII bros Þaö sverfur djúpir hyljir til stáls blána af þínu Ijósi undir- vængsúg arna sólir hverfa hrynjandi sindur III á bak viö skýin Ur nalægö þinni og augu þín var þögn mín sprottin og sól kveikti himin hnigin til viðar viö haf, augu þín glæöur auga mitt fylgdi auga þínu báls augu þín leiftur þá nótt þegar enginn svaf löngu dauöra stjarna IV VIII Þú ert bros Haf þú ert vor þú ert vormilt bros forvitið lognhvítt haf og svo eitt kvöld þú ert sól fer lúinn maöur þú ert sumar úr lífi þínu, þú ert sumarsól gengur í jöröina gamall maöur þú ert ár þú ert eilífö þú ert eilíft ár meö gullbúinn staf V Þú sem frönsk og dularfull dugga sigli sólþöndum voöum inní vitund mína 1977/1980 þei þei og haf ei hátt hér er margt aö ugga og blátt speglast hafiö svo blá spegla augu þín æsku sína

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.