Lesbók Morgunblaðsins - 24.05.1980, Qupperneq 9
FISKUR
UNDAN
STEINI
Suöurnesjamönnum og einkum
og sér í lagi Keflvíkingum hefur oftar
en einu sinni verið núiö um nasir, aö
þeir væru frekar blankir á menning-
arsviðinu og aö andleg áhugamál
þeirra snerusf framar ööru um kana-
sjónvarpið og aö leggja sjónvarpskapla
milli húsa til þess aö geta horft á
kábojmyndir á síðkvöldum. Aö sjálf-
sögðu er sú skoðun byggð á grófri
alhæfingu og á páskum vart gert átak í
þá veru aö reka menningarlegt slyöru-
orö af Suðurnesjamönnum.
Lesbókin var viöstödd opnun
þessarar menningarvöku, sem bar
heitiö Fiskur undan steini (meö sér-
stöku tilliti til kvikmyndarinnar al-
kunnu um Grindavík). Hátíöin hófst
meö einsöng og tvísöng þeirra Ragn-
heiðar Guömundsdóttur úr Keflavík og
Guömundar Sigurössonar úr Njarövík
viö undirleik Gróu Hreinsdóttur,
eiginkonu Guömundar. Þau sungu
lögin hans Sigvalda Kaldalóns, sem eru
hreinar perlur og hafa ugglaust mörg
þeirra verið samin í Grindavík,
meöan Sigvaldi var læknir þar.
Aö því búnu voru opnaðar mál-
verkasýningar Baðstofunnar, sem er
skóli áhugafólks á Suöurnesjum, Ijós-
myndasýning og sýning Eiríks Smith,
sem veriö hefur aöalkennari Baö-
stofufólks um 6 vetra skeið, — og
þessvegna boöiö að sýna meö nemend-
um sínum. Eiríkur sýndi þarna all-
margar myndir frá síðustu árum,
sem vöktu verðskuldaöa athygli.
Verulega athygli vakti einnig, aö nem-
endurnir í Baðstofunni hafa tekiö
næsta undraveröum framförum
undir handleiöslu Eiríks, enda ríkir
mikill áhugi og í vetur var þátttakan slík,
aö hópnum var skipt og Gunnlaugur
Stefán Gíslason listmálari frá Hafn-
arfiröi tók aö sér 10 byrjendur.
Bæjarfélögin í Keflavík, Njarövíkum og
Sandgerði styrkja þessa starfsemi,
sem er lofsvert og vonandi gefa
meðfylgjandi myndir þriggja nemenda
einhverja hugmynd um, hve biliö er
breitt á milli þeirra sem taka þessa
hluti markvissum tökum og njóta
góörar leiðsagnar, — og hinsvegar
ýmissa áhugamanna, sem eru aö efna
til sýninga á vankunnáttu sinni. Venju-
lega sinnir Lesbókin ekki byrjenda-
sýningum, en hór var svo vel að verki
staðið aö ástæöa þótti aö gera undan-
tekningu.
Á menningarvöku Suöurnesja var
margt fleira á dagskrá, sem Lesbókin
haföi ekki aöstööu til að fylgjast meö
svo sem leiklistarsýningar, popptón-
leikar og heimsókn Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands. Er sá siöur til fyrir-
myndar, sem nú tíðkast á nokkrum
stöðum, aö efna til listahátíða um
páska, — og verður væntanlega
fastur liöur á Suöurnesjum hér eftir.
GS.
Að neöan: Þrfr úr nemendahópnum, sem myndar Baóstofuna og áttu
verk á sýningunni. Efst: Soffía Þorkelsdóttir viö olíumólverk sitt, í miöju:
Ásta Pálsdóttir ásamt nokkrum vatnslitamyndum, sem hún er höfundur
aö og neöst: Óskar Pálsson viö olíumálverk sitt.