Lesbók Morgunblaðsins - 24.05.1980, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 24.05.1980, Side 10
ÞÆTTIR ÚR ÆVI GEIRS ZOÉGA Annar hluti Ásgeir Jakobsson skráði Geir Zoöga. Myndina tók Óiafur Magnússon nú í vor. Landakoti, þar var ég á dögunum á gjörgæzludeild og finnst ég nú vera eins og sextugur en ekki áttatíu og fjögra. Faöir minn fékk slæmsku í hálsinn, einhver þrengsli, þegar hann var oröinn aldraður og hann gat ekki boröað nema einstaka mat síðustu árin. Þaö kom í Ijós um síöir, aö það var sár í vélindanu neöarlega. Ég þjáöist um tíma af þrengslum í vélind- anu líkt og faöir minn, en þá haföi nú rannsóknartækninni fleygt svo fram aö meinið fannst fljótt. Ég var rannsakaö- ur ítarlega úti í Bretlandi og skorinn uþp. Þá reyndist nú um meira að ræða en sár í vélindanu. Það voru fjögur sár á þindinni. Þaö mátti heita ég fengi fulla bót. Þó er þaö nú svo, að ég má nú oröið dálítiö gæta mín í mataræði. Það er ekki alveg sama, hvaöa mat ég borða. Þaö var ekkert smáræöisfyrirtæki aö gera við þindina. Þeir fóru inní bakið á mér, klufu rifin frá hryggnum. Viðgeröin hefur haldiö ágætlega, en þaö er farin að setjast aö henni gigt. Svo var ég á Kommune- hospital í Kaupmannahöfn viö liöagigt- inni og þaöan fór ég til Mounte Bellow. Þar átti ég aö fitna og braggast, en þaö gekk hægt. Ég var lengi ræfill á og hann dó úr henni. Hann var alveg heill á sál og líkama fram til þessa, gamli maðurinn, var alltaf í búðinni, sat þar oft á stól og rabbaði viö menn. Ég var lítiö í búöinni, ég vildi veröa sjómaöur en ég var einkasonur og pabbi vildi ekki aö ég stundaöi sjóinn. Ég er búinn að fara 70 sinnum yfir hafiö og oft á togurum og lenda í mörgu misjöfnu í þeim feröum. Og nú ætlar þaö aö rætast, sem mig dreymdi sjálfan um fyrir 60 árum. Sonarsonur minn er að Ijúka prófi úr Stýrimanna- skólanum í maí og í þeim mánuði eru 150 ár frá fæöingu fööur míns. Mesti fiskveiði- leiðangurinn Hellyersbræöur geröu fyrst út leiö- angur til Grænlands áriö 1926. Þaö var einskonar rannscknaleiöangur og far- inn undir norsku flaggi. Brezka stjórnin vildi ekki aö hann væri undir brezkum fána þar eö meiri hluti áhafnarinnar væru Norömenn. Þetta breyttist svo strax áriö 1927 þegar Hellyersbræður gerðu út algerlega á eigin ábyrgö. Þeir gerðu út á lúöuveiðar allt fram á 1933. Lúöuveiðarnar (og þorskveiöar 1930) LEIÐANGURINN MIKLI TIL GRÆNLANDS 1930 Hafnarfjörður 1920. Bitabryggja viö Haddenstööina, sem einnig var nefnd Zoögastöð. Fjær sér á fiskmóttökuhúsið. Útgerðartilraunir og sjúkrasaga Þaö var ekki fyrr en 1918, sem ég fór aö fást viö útgerö. Þá keypti ég af Duus kútter Hafstein og geröi hann út. Mér leizt svo vel á hann Sigurö Sigurðsson frá Seli, síöar var hann kenndur við togarann Geir, og þess vegna keypti ég Hafstein. Siguröur haföi veriö stýrimaöur hjá Friðriki Ólafssyni á Ásu. Með okkur Sigurði í kaupunum á Hafsteini var Sigurjón móðurbróöir minn. Siguröur var meö Hafstein í tvö ár. Þá voru komnir svo margir togarar, að þaö fengust ekki menn á kútterana og viö seldum Færeyingum Hafstein. Hafsteinsút- gerðin gekk ágætlega. Ég byrjaöi í Hafnarfirði 1920, þá fékk ég Haddensstöðina, sem svo var kölluö. Ég fékk fisk af togaranum Geir og Vínalandinu (Geir Thorsteinsson). Þetta voru erfiö ár fram til 1924 og ég tapaöi miklum peningum. Svo missti ég eitt ár úr, lá í liöagigt, fyrst hér heima en síðan úti í Danmörku. Mér var helzt ráölagt aö rúlla, en ég geröi þaö ekki. Mér tókst aö hætta án þess aö bankinn tæki stööina. Ég komst ekki úr þeirri kreppu fyrr en 1941. Þá afhenti bankinn mér öll veöskjöl. Þegar Loftur Bjarnason hætti far- mennsku og kom í land, geröum viö félag meö okkur um Haddensstööina, leigöum hana fyrir sanngjarnt verö. Viö fengum fisk af Júpiter, sem Þórarinn Olgeirsson haföi látiö smíða sér. Þór- arinn haföi landaö hjá mér áöur þegar hann átti Belgaum. Hann fiskaði mikiö, Þórarinn, og góöan fisk og Jes Zimsen borgaði alltaf. Svo keyptum viö Loftur meö Ólafi Gíslasyni, framkvæmda- stjóra hjá Kárafélaginu í Viöey, miklum ágætismanni, línuveiöarann Eljuna. Guömundur Júni var skipstjóri og fiskaöi geysimikið og viö græddum á Eljunni, en svo skemmdist hún í ofsaveöri. Þá leigöum viö þessir þrír, togarann Sindra, en hann var allt of erfiöur fyrir línu og þaö fiskaöist ekkert á hann. Þar töpuöum við því, sem við höföum grætt á Eljunni. Guömundur Júni var var fiskimaður, en mikiö var hann blautur, indæliskarl, eins og mannskepnan er reyndar öll ef hún er rétt tekin. Margan góöan manninn hef ég þekkt en engan eins og Loft Bjarnason, þaö var mikill öndvegis- drengur, óhemjuduglegur og vakandi í starti. Hann var framkvæmdastjóri stöövarinnar og færöi allt bókhaldiö. Ég var þá oröinn framkvæmdastjóri hjá Hellyersbræðrum. Liöagigtin lék mig illa. Ég var kominn niöur í 135 pund en haföi veriö 187 pund, þegar ég veiktist. Þeir eru sex spítalarnir, sem ég hef verið á. Hér heima á Landspi'talanum, Borgarspítalanum og eftir. Þaö átti að senda mig til ítalíu en ég sagöi nei. Næsta ár fór ég aö hjarna viö og byrjaöi aftur aö synda í sjónum hérna heima og svo kom þetta smátt og smátt. Þessi liöagigt kom frá hálsbólgu. Ég byrjaöi 5 eða 6 ára aö fá gigt og á unglingsárunum var ég oft aö fá hálsbólguköst og þá var mér ráðlagt aö láta taka úr mér hálskirtlana. En ég vildi þaö ekki, þetta var gert við börn og kvenfólk og mér fannst ég vera orðinn alltof stór til aö láta gera þetta. Þetta dróst svo, aö ég léti taka kirtlana, þar til ég lagöist fárveikur í liöagigtinni þá voru kirtlarnir rifnir úr mér, en upp úr því fór mér aö batna gigtin. Ég hef aldrei fundiö til gigtar síðan þetta ár, nema nú, sem áöur segir rifjagigtar. Ég var alltaf fljótur aö jafna mig eftir veikindi, enda er ég af heilsuhraustu fólki kominn. Pabbi lá aldrei veikur fyrr en hann var skorinn upp viö þvagsteinum 87 ára gamall. Hann fékk þá lungnabólgu og við henni var ekkert meöal í þennan tíma voru stundaöar á doríum frá stórum móöurskipum nema sumariö 1927, aö gerö var tilraun meö doríuúthald frá togara, Imperialist, en á því varö ekki framhald. Kolaverkfalliö í Englandi 1926 er lengsta kolaverkfall í sögu Englands. Þaö stóö í 6 mánuöi. Vegna verkfallsins græddu Hellyersbræður stórfé á Grænlandsleiöangrinum 1926. Þaö vantaöi fisk á brezka markaðinn, allur togaraflotinn lá mánuöum saman. Hellyersbræöur vissu hvaö var aö gerast og birgöu sig upp af kolum. Þeir geröu samning við Þjóöverja um kolakaup og fluttu 10 þúsund tonn hingað upp til Hafnarfjarðar. Þau kol voru notuö viö Grænland. Togararnir sem fluttu fiskinn af Grænlandsmiðum tóku kol í Þýzkalandi á bakaleiöinni eins og þeir gátu flutt. Ég held ég fari ekki rangt meö aö þeir Hellyersbræöur hafi fengiö móöurskipiö Arctic Prince borgaö þetta sumar. Fyrsta sumariö var móöurskipiö 5.500 tonna skip, sem hét Helder en

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.