Lesbók Morgunblaðsins - 30.08.1980, Blaðsíða 8
Morgunblaðiö tók þátt í ellefu
daga ferð um gönguleiðir
Hornstranda í lok júlímánaðar.
Feröin hófst að Hbfn í Hornvík og
var gengið að Hornbjargsvita í '
Látravík, og yfir í Aðalvík með
viðkomum að Horni og Höfn í
Hornvík, Búðum í Hlöðuvík,
Fijótavík og Aðalvík. Veður var
sérstaklega gott, sólskin og heið-
ríkja fram á síðasta dag.
Náttúrufegurð er óvíða meiri og
fjölbreyttari en á Hornströndum.
Þverhnípt björg eru meö yztu
ströndum, fjalllendi er hrjóstrugt,
en á milli gróðursælar víkur,
girtar fögrum fjallahring. Dýralíf -^
er fjölbreytt, en gróðurfar á í '.
höggi við náttúruöflin, sem oft
léku íbúa Hornstranda grátt.
Byggö lagðist endanlega niður
á Hornströndum í byrjun sjötta
áratugsins. Þær eru nú alfriðaðar
og markast friðlandið af hugsaðri
línu, dreginni úr botni Furufjarðar
yfir í botn Hrafnsfjarðar. Gera
menn sér vonir um, að svæðið
geti orðið griðastaður fyrir við-
kvæman gróður og dýralíf.
Ekki verður komist um
Hornstrandir nema sjóleiðina
með ströndum eða á tveimur
jafnfljótum og er þangað er komið
verður ferðalangur að treysta á
sjálfan sig. Margar skemmtilegar
gönguleiðir er þarna að finna, eru
margar þeirra varðaðar og að
sögn þeirra, sem hafa viðmiðun
við gönguleiðir víðar á öræfum
landsins, eru gönguleiöir Horn-
stranda ekki mjög erfiðar yfirferð-
ar.
Sagt hefur verið frá ferð þess-
ari í máli og myndum í fjórum
greinum í helgarblöðum Morgun-
blaðsins í byrjun ágústmánaðar,
en hér og á forsíðu Lesbókarinnar
í dag eru birtar nokkrar litmyndir,
sem teknar voru í ferðinni.
Myndafrásögn af gönguför um
Hornstrandir eftir Fríöu Proppe
T
I
I
i
huga minn seiða löngum
¦
Þessi jeppabifreið er af árgerð 1955 og hefur eflaust litiö betur út það
árið. Jeppinn er þó enn gangfær og gerir heilmikið gagn og vakti
stutt skemmtiferð á honum mikla kátínu þeirra yngstu í hópnum.
Uppi á þaki eru, talið frá vinstri: Jóhann Guðmundsson og Þórgunnur
Stefánsdóttir frá Akranesi, þá Sigríður Jósepsdóttir, Hnífsdal,
Ásbjörn Sigurðsson, Mosfellssveit er á leiðinni upp á þak og undir
stýri er fararstjórinn Jósep Vernharðsson Hnífsdal. Á bak við hann,
inni í jeppanum, er sonur hans Vernharður.
Hvílst í efstu hlíðum Miðdals á leið upp á Hornbjargsbrún. í baksýn
Jörundur t.v. og Kálfatindur.