Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.1980, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.1980, Page 2
Stresstöskur, pappírar og vandamál: í þingflokksherbergjum Sjálfstæðisflokksins (að ofan) og Framsóknarflokksins. Ekki er alveg laust við að sumum þyki gaman á Alþingi. Benedikt Gröndal alþingismaöur Alþingishúsið 100 ára Alþingishúsið nýbyggt árið 1881. Myndina tók Sigfús Eymundsson. Stendur væn og vegleg höll / út við grænan Austurvöll, segir í Alþingisrím- unum. Svo hefur íslendingum fundist um þinghús sitt í tæp hundraö ár, og finnst mörgum enn. Húsið var á sínum tíma fegursta og stærsta steinbygging landsins, og enn eru fáar fegurri, þótt margar séu stærri. Jón Sigurðsson setur svip sinn á Alþingishúsiö og umhverfi þess. Mál- verk af honum er eina myndin, sem nú hangir í fundasal Sameinaðs þings, brjóstmynd hans er þar í hliöarsal, og framan viö þinghúsið á miöjum Austur- velli er stytta hans. En hann sá þetta hús aldrei, kom aldrei í þaö og sat þar aldrei þing. Hann átti aö vísu sinn þátt í fyrirætlunum um byggingu þess, en hún var ekki hafin, er hann lést í desember 1879. Allt frá endurreisn Alþingis til 1881 hélt þaö fundi sína í Latínuskólanum, sem nú heitir Menntaskólinn í Reykja- vík. Þaö voru háöar harðar deilur um þingstaöinn, hvort hann skyldi vera Þingvellir eöa Reykjavík. Svo virðist sem fylgismenn Þingvalla hafi hugsað sér, aö þingheimur gæti gist í tjöldum um þingtímann, sem þá var aöeins nokkrar sumarvikur. Reykjavík varö þó fyrir valinu, en aöeins örfá ár eru liðin frá láti Gísla Guömundssonar alþing- ismanns, er barðist enn fyrir flutningi þingsins á hinn forna staö öld síðar, og vel kunna að koma fram fleiri fylgis- menn þeirrar lífseigu hugmyndar. Þegar þingiö kom í fyrsta sinn saman í Reykjavík, var hin myndarlega skólabygging að rísa, teiknuð af J.H. Koch, ríkishúsameistara Dana, en viö- urinn tilhöggvinn á Kristjánssandi í Noregi. Var keppst viö að hafa hátíðar- salinn tilbúinn fyrir þingiö og tókst þaö. Þegar skólinn var vígöur 1846, sagöi Sveinbjörn Egilsson rektor: „Staöur- inn, sem vor skóli er á, býöur og veitir ró; hann er settur afsíöis frá og svo sem upp yfir bæjarglauminn, svo ekkert þarf aö glepja fyrir.“ Þjóöhátíöaráriö 1874 hlaut Alþingi verulegt löggjafarvald samkvæmt nýju stjórnarskránni, sem var veigamikill áfangi í frelsisbaráttunni. Þá var þing- inu illu heilli skipt í deildir, og jukust viö þaö húsnæðisþarfir þess. Þótti þá rétt aö ráöast í byggingu þinghúss, og var samþykkt ályktun þess efnis 1879, kosin nefnd til aö fylgjast meö bygg- ingunni og ákveöin 100.000 króna fjárveiting fyrir árin 1880—81. Er fjárlögin höföu veriö staöfest af kon- ungi, fól ráöherra Hilmari Finsen lands- höföingja aö framkvæma verkið og hafa í ráöum þá fimm þingmenn, sem kosnir höföu veriö. Ýmsir þingmenn lögöu áherslu á, aö íslenskum smiöum yröi falið þetta vandasama verk, en svo fór, aö fremsti húsameistari Dana um þær mundir, F. Meldahl, var fenginn til aö teikna húsiö, en yfirsmiður var ráöinn F. Bald. Staöarval Alþingishússins varö sögulegt. Þegar þingið ákvaö bygging- una, munu langflestir þingmenn hafa taliö sjálfsagt, að hún risi á Arnarhóli. En þaö fór á annan veg. Landshöfðingi taldi samkomulag vera í nefndinni um

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.