Lesbók Morgunblaðsins - 28.03.1981, Page 15
KROFLUFJALL
Landið okkar
Þessi loftmynd, sem tekin er 10. oktober 1976, synir fjallið Kröflu, en það er austur og upp
af Hlíðardal, dalnum þar sem Kröfluvirkjun var reist. Rendurnar í fjallinu eru snævi fylltir
farvegir leysinga- og regnvatns, sem grafist hafa í tímans rás.
Ljosmynd og texti: Björn Rúriksson
Finnbogi Guðmundsson landsbókavörður
UM BÓKASAFN FRAMFARA-
STIFTUNAR í FLATEY
Stutt athugasemd
Af ummælum í lok fróðlegrar
greinar Braga Kristjónssonar í Les-
bók Morgunblaösins 14. marz sl.
um Flateyjar Framfarastiftun í fortíð
og nútíð, mætti ætla, að við í
Landsbókasafni heföum að frum-
kvæði okkar tekið í okkar vörzlur
hluta bókasafns stiftunarinnar. En
sannleikurinn er sá, að stjórn fram-
farastiftunarinnar ákvað með bréfi-
dagsettu 13, ckíóber, 1969 að
raðstafa bókasafni hennar á þann
veg, að það yrði flutt á því hausti til
Reykjavíkur og faliö Landsbóka-
safni til vörzlu og geymslu. Aukist
hins vegar svo byggð í Eyjahreppi
(Flateyjarhreppi) í náinni framtíð, aö
safniö geti oröiö þar að þeim
notum, sem því var upphaflega
ætlað, verði það aftur flutt vestur,
en þó svo fremi, að viðunandi
húsnæði verði þar fyrir hendi til
þess að geyma það í.
Að öðrum kosti gangi safnið
síöar meir til Landsbókasafns, en
þó með því skilyröi, að sett veröi
sérstakt bókmerki í þær bækur
stiftunarinnar, sem Landsbókasafn-
ið telur æskilegt aö hafa til nota.
Stjórn Framfarastiftunarinnar
bað Lúövík Kristjánsson rithöfund í
Hafnarfiröi að annast þetta mál fyrir
sína hönd hér svðra, og í samráöi
vio ‘nann fól ég Haraldi Sigurðssyni
bókaveröi að fara út í Flatey, og var
hann í eynni vikuna 8. —15. nóvem-
ber og bjó um bækur og handrit og
nokkra muni stofnunarinnar, er
þeim skyldu fylgja, og kom þetta
allt hingað meö bátnum Baldri 17.
nóvember 1969.
Stjórn stiftunarinnar ákvaö jafn-
framt í fyrrnefndu bréfi, aö hand-
ritasafn hennar skyldi þegar á því
ári afhent Landsbókasafni íslands
til ævarandi eignar, en setti þaö
skilyrði, aö handritin yröu öll látin
bera þaö meö sér, aö þau væru
komin frá Framfarastiftuninni í Flat-
ey. Handrit þessi hafa nú öll verið
skráð.
Við þeim hluta bókasafns stiftun-
arinnar, er fluttur var, sem fyrr
segir, hingaö suður í nóvember
1969 samkvæmt ósk stjórnar henn-
ar, heíur ekki verið hreyft, þar eð
rétt þótti aö bíöa átekta og sjá,
hverju fram yndi í Flatey. Hér er
einkum um hinar eldri bækur aö
ræða, rit, sem komin voru út fyrir
síðustu aldamót.
Forráðamenn safnsins stefna nú
aö því, aö allur bókakostur þess
verði skráður, svo aö heildaryfirlit
fáist um bókaeignina, en síðan
verði ákveðið, hver hinna eldri rita
veröi flutt aftur út í Flatey tll
varöveizlu í gömlu bókhlööunni þar,
sem ungir áhugamenn í eynni eru
nú aö gera upp, m.a. með styrk úr
þjóðhátíöarsjóði.
Jóhann S. Hannesson
Á AFVIKNUM STAÐ
Áöan orti eg kvæði
sem ekkert er variö /'
en af því eg er að byggja
ætl' eg aö koma því
í Moggann strax á morgun.
Matthías tekur þaö
og setur það eins og þvísæmir
á svolítiö afvikinn staö.
Auövitaö missi eg álit.
Þaö er ekki tiltökumál,
því fyrir kvæðið fæ eg
fimmtung úr klósettskál.
Aths. ritstj.:
Sancho og Þórarinn sóttu aó mér um daginn,
þaö var svolítil glenna á annars rysjóttri tíö
og svo gengur Jóhann S. Hannesson hljóölega í bæinn
með huggulegt tilboö um klósettskálarstríö.
M.
15