Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 20.03.1982, Qupperneq 8

Lesbók Morgunblaðsins - 20.03.1982, Qupperneq 8
Ragnheiöur Jónsdóttir Ream viö vinnu Bragi Ásgeirsson RAGNHEIÐUR Yfirlitssýning á verkum þessarar merku listakonu verður Þegar þetta greinarkorn kemur fyrir sjónir lesenda, stendur yfir sýning á verk- um Ragnheiðar Jónsdóttur Ream aö Kjarvalsstööum. Þetta mun vera úttekt á ferli listakonunnar á myndlistarsviði, en hún lést á sextugsaldri áriö 1977 og einmitt er list hennar stóö í hvaö mestum blóma. Ekki telst þaö hár aldur á vorum dögum og sé tekið mið af ytra sem innra atgervi Ragnheiðar Ream, kom andlát hennar þeim mjög á óvart, er hana þekktu eða voru henni kunnugir. Lifsorkan geislaði frá þessari hæglátu, traustvekjandi og gjörvi- legu konu og hún virtist einnig eiga svo margt ógert á því sviði, sem hún hafði hasl- að sér völl með þeim glæsibrag að lengi verður minnst. Stundum verður manni á að hugleiða, hvað það sé, sem beini fólki út á listabraut- ina og þótt svörin kunni að reynast mörg, er eitt alveg víst og það er, að allur mark- veröur árangur er borinn upþi af áhuga á viðfangsefninu. Allur ferill Ragnheiðar er táknrænt dæmi um áhuga, er fyrir ákveðn- ar ytri aöstæður kviknar smám saman, bætir stöðugt við sig þar til viðfangsefniö heltekur gerandann, — og þegar svo er komið, liggur engin leið til baka . . . — Raunveruleikinn virtist öðru fremur vera svið þessarar listakonu sem tók hlut- unum eins og þeir komu og stóð meö báða fæturna á jörðinni í átakamikilli listsköpun sinni. Hún var greind, rökföst, skapmikil og nálgaðist viðfangsefni sín með opnum skynrænum huga, einarölega og umbúöa- laust, en svo komu vinnubrögð hennar mér fyrir sjónir. — Listferill Ragnheiðar er saga um konu er hóf að mála í tómstundum sínum í staö þess að hamra á píanó, því pentskúf- urinn er hljóölátari tjámiðill tónlistinni og stórum minna ónæöissamur í fjölbýlishúsi — þannig aö nágrannarnir hafa enga ástæöu til athugasemda. Dálítiö undarlegt upphaf, en upphaf þó og það skiptir öllu máli, því að þetta reyndist vísirinn aö því, að íslenzka þjóðin eignaöist einn sinn markverðasta málara á því tímaskeiði er gerandinn vann að list sinni. Þaö má nokkurn veginn slá því föstu, aö enginn fæðist með áhugann fyrir listum frekar en altalandi, þótt gáfurnar séu fyrir hendi, heldur þurfi ytri aðstæöur til að ýta þróunarferlinu af stað, sem svo fæöir af sér mikinn árangur og mikla list. Ragnheiöur unni alltaf tónlistinni af lífi og sál og hafði lært að spila á píanó heima á Tvö málverk eftir Ragnheiöi, sem sýna, aö hún var búin aö ganga í gegnum ýmis þróunarstig. Efri myndin er í eigu Lista- safns ríkisins. JÓNSD opnuð að Kjarvalsstöðum í < íslandi áður en hún hélt utan til Ameríku í byrjun seinni heimsstyrjaldarinnar, hafði jafnvel verið í söngtímum. Þetta var allt mjög eðlilegt, því mikið mun hafa verið um tónlist í umhverfi hennar, því hún var dóttir Jóns Halldórssonar söngstjóra, og konu hans, Sigríðar Bogadóttur, er voru þekktir Reykvíkingar og byggðu húsið að Hóla- vallagötu 9. Samskipa Ragnheiði vestur um haf var m.a. Louise Matthíasdóttir er var á leið til myndlistarnáms í New York, en sú átti sannarlega eftir að gera garðinn frægan með list sinni og er ennþá búsett á áfanga- staönum, gift Leland Bell listmálara og prófessor í myndlist. Merkileg tilviljun máski, en hvað Ragnheiði snerti, var fjarr.i því aö hún hugsaði um myndlist um þær mundir. 8

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.