Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 20.03.1982, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 20.03.1982, Qupperneq 10
v-----------\/- Útsýni úr stofu. Eitt af málverkum Ragnheiöar frá síöustu árum hennar. á mann eins og hreytingar í dansi fremur en meitlaður þungi“. Sýning Ragnheiðar kom líkast ferskum gusti í einhverju mesta sýningarflóöi sjöunda áratugarins en heilar ellefu einka- og samsýningar munu hafa opnaö um svip- aö leyti, — og alveg óvænt bar þessi óþekkta stærð úr vestrinu af þeim flestum og jók mönnum trú á málverkið. Ragnheiöur varð fljótlega meðlimur Fé- lags íslenskra myndlistarmanna eftir að hún fluttist heim og leiö ekki á löngu áöur en óskaö var eftir þessari traustvekjandi konu til ábyrgðarstarfa innan félagsins. Starfaöi hún í sýningarnefnd í nokkur ár og mun hafa verið formaður eitt áriö. Ég minn- ist þess vel, hve gott var að fá þennan nýja starfskraft í það vanþakkláta starf sem þaö jafnan er, að velja og hafna myndum starfsbræöra sinna á sýningar. Um heiðar- leika hennar og góöa dómgreind efaðist ábyggilega enginn, hún var róleg en ákveö- in í skoöunum ef því var að skipta, — sjálfstæö í mati sínu og lét engan segja sér fyrir verkum. Hún var þannig stór í sniðum og maöur vissi hvar maður hafði hana. Þaö var aöallega vegna starfa Ragnheið- ar í sýningarnefnd aö meö okkur tókust nokkur kynni, en einnig sá ég henni alloft bregöa fyrir í Sundlaug Vesturbæjar, þar sem hún mun hafa veriö tíöur gestur. Stundum tókum við tal þar og ræddum þá aðallega um félagsmál myndlistarmanna, en þar fóru skoðanir okkar um margt sam- an. Ragnheiði mun hafa runniö til rifja hve frumstæð félagsmál ísl. myndlistarmanna voru og hvernig jafnvel einföldustu hags- munaleg atriði vöfðust fyrir mönnum og hve samtakamáttur þeirra var lítill. Hún var aö ég held meö umboð fyrir ameríska olíu- liti, sem hún flutti inn og notaöi sjálf en fór svo smátt og smátt aö láta félaga sína njóta góös af og seldi þeim meö lágmarks- álagningu og ræktaði þar eiginlega sjálf- sagt hlutverk FÍM. Var þaö mikill fjárhags- legur ávinningur í formi sparnaöar fyrir listamenn að verzla við hana og voru marg- ir henni mjög þakklátir fyrir framtakiö, svo sem nærri má geta. Svo vel bar Ragnheiður sig er ég sá hana nokkrum mánuöum fyrir andlát henn- ar í Vesturbæjarlauginni, aö ég hefði naumast trúaö því ef einhver hefði sagt mér að þar færi kona um sextugt og heföi mér þótt öllu trúlegra að hún væri aö nálg- ast fimmtugsaldurinn. — Frá fyrstu sýningu. Ragnheiöar Jónsdóttur Ream hérlendis og til andláts hennar liðu einungis tíu ár, en þessi áratug- Ragnheiöur ásamt mynd, sem unnin er undir merki abstrakt expressjónisma. Ragnheíður hafði samt oftast fyrirmyndir úr landslagi, þegar hún vann myndir í þessum stíl. Teikning eftir höfund Ijóðsins Úlfur Ragnarsson læknir: Til ættjarðarinnar Sé ég grund safagræna. Samt ertu ættjörö í öngum þínum. Sé ég lauk mót Ijósi spretta. Samt ertu þreytt og þungbúin. Gauk heyri ég gala í suðri. Samt býr þér uggur í andlitsdráttum. Vor glitrar í vatnaspeglum. Seg mér: Hvaö syrgir þig? ur var virkasti áratugur hennar í list og starfi. Einkasýningar hennar urðu þrjár og þar af ein stór í Norræna húsinu, — þá var hún þátttakandi í sumarsýningu Norræna hússins 1976. Hún var og þátttakandi í fimm Haustsýningum FÍM og sumarsýningu Myndlistarhússins á Miklatúni 1973. Þá var henni boðið að vera með i sýningunni „8 islandske kunstnere", Bergen, Kiruna og Luleá árið 1975. Á þessum stutta starfsferli listakonunnar testu mörg söfn sér myndir hennar, svo sem Bergen Billedgalleri, Listasafn íslands, Listasafn alþýðu, Lista- safn Árnessýslu, American University Collection, Listasafn Reykjavíkurborgar og Listasafn Kópavogs. Upptalningin sýnir glögglega hvílikrar viröingar og viöurkenn- ingar hún uppskar meö verkum sínum og athafnasemi, sem var mjög aö makleikum. Ferill Ragnheiöar er jafnframt lýsandi dæmi þess hve langt má ná með ró og æöruleysi, stefnúfestan er þá meginatriöiö, starfið borið uppi af áhuga og kjörorðið: „Festina lente" — Flýttu þér hægt ... Ragnheiður fór ekki í launkofa meö þaö, að þeir amerískir myndlistarmenn er hún mat einna mest, voru þeir Mark Rothko og Richard Diebenkorn og varð hún einkum fyrir beinum áhrifum af þeim síöasttalda. Þessir tveir menn spönnuöu miklar and- stæöur í málverkum sínum, þótt aöalatriöiö hjá báðum væri sterk og rismikil burðar- grind. Svo var einnig með málverk Ragn- heiöar Ream þótt liturinn væri aðal þeirra ásamt ríkri kennd fyrir íslenskri náttúru. Dauðinn heimti drjúgan toll frá íslensku málverki, er Ragnheiöur Jónsdóttir Ream lést hinn 22. desember 1977. Bragi Ásgeirsson 10

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.