Lesbók Morgunblaðsins - 30.04.1983, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 30.04.1983, Blaðsíða 2
Dr. Meyer Friedman A i Dagfar i manngerðar og kransæðastífla Það var einhvern tíma um miðbik sjötta áratugarins að okkur dr. Rosenman fór að gruna að kransæðasjúkdómur- inn sem þjáði suma sjúklinga okkar gæti ekki eingöngu stafað af þeim áhættuþáttum sem al- mennt voru viðurkenndir af læknum. Þessir áhættuþættir eru m.a. ofneysla kolesterólríkar fæðu og dýrafitu, sígarettureykingar, hár blóðþrýstingur, offita og hóglífi. Hvers vegna fór okkur að gruna að áður óþekkt orsök ætti sinn þátt í þessum sjúkdómi sem enn leggur hundruð þús- unda manna að velli árlega í Bandaríkjunum einum? Ástæðurnar voru margar. í fyrsta lagi höfðu fæstir kransæðasjúklingar okkar alla hina viðteknu áhættuþætti. Stór hópur þeirra neytti ekki kólesterólríkrar fæðu eða dýra- fitu og þeir voru ekki heldur með hátt kólesterólgildi í blóð- inu. Umtalsverður hluti þeirra var aftur á móti með lágt kólest- erólgildi. Þá hafði a.m.k. þriðjungur og jafnvel helmingur sjúklinga okkar aldrei reykt sígarettur. Tveir þriðju sjúklinganna voru alls ekki með háan blóð- þrýsting. Og margir sjúklinganna höfðu reynt drjúgum á sig líkamlega og verið síður en svo værukærir áður en þeir fengu kransæða- stífluna. í sannleika sagt var talsvert stór hópur kransæðasjúklinga okkar sem aldrei hafði haft neinn þessara áhættuþátta eða þjáðst vegna þeirra. Ekki var okkur heldur kleift að rekja sjúkdóminn til ættgengis hjá meira en helmingi sjúklinganna. Samt var eitthvað iíkt með þeim Á sjötta áratugnum fengum við staðfestan grun um að ein- hver áður óþekktur ógnvaldur ætti sök á sjúkdómnum. Við fengum æ sterkara hug- boð um að ýmislegt væri svipað í fari hinna ungu og miðaldra sjúklinga, í svipbrigðum þeirra, fasi, talsmáta, hreyfingum, hugsunarhætti og skoðunum. I fyrstu urðum við að sjálf- sögðu undrandi og angursamir yfir því hvað hegðan og háttalag var einkennilega líkt með þess- um sjúklingum, sem voru af ólíkum stigum og stéttum og stunduðu margvísleg störf. Hvers vegna skyldu lögreglu- menn, húsverðir, bankamenn, garðyrkjumenn, blaðamenn, læknar og lögmenn, sem þjáðust af sama líkamlega sjúkdómnum, sýna sömu einkenni andlægrar vöðvastarfsemi, — lífeðlisfræði- legar og einkennandi sannanir um dulda sálarkreppu? Og hverjar eru þessar and- lægu vöðvahreyfingar? Eg birti hérna lista. Á listan- um eru ekki aðeins skráð þau einkenni sem við tókum fyrst eftir heldur einnig þau einkenni sem við höfum athugað á síð- ustu fimm til tíu árum (merkt stjörnu *). Líkamleg og andleg einkenni A-manngerðar A. Sálræn einkenni 1. Sérkennandi kvíðasvipur og viðmótskuldi. 2. Augum dcplað ótt og títt.* 3. Snöggir kippir í hnjám.* 4. Spilaö og slegið með fingr- um. 5. Slitrótt og ör framsögn og síðustu orðum setninga sleppt. .6. Varasmellir og skellt í góm meðan talað er.* 7. Kinkað kolli meðan talað er.* 8. Loft gleypt meðan talaö er.* 9. Ýtt á eftir öörum í viöræðum og gripið fram í.* 10. Spenntar líkamsstellingar. 11. Handapat, eftirhermur og áherslur í svari við spurningum. 12. Andvörp. 13. Munnvikin dregin aftur svo tennur berast. 14. Kaldranahlátur. 15. Hnefar krepptir. 16. Tíð blótsyrði, oft það sama. B. Líffræðileg einkenni 1. Tíður sviti á enni og efri vör. 2. Óeðlilega brún augnalok eins og sólbrennd. 2

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.