Lesbók Morgunblaðsins - 22.10.1983, Side 14
Gtínter Grass:
The Meeting
at Telgte
Secker & Warburg
Þessi skáldsaga Grass er tileinkuð
Hans Werner Richter. Hann stofn-
aði til funda meö gagnrýnendum,
rithöfundum og útgefendum árið
1947. Sá hópur varð seinna þekktur
undir heitinu „Gruppe 47“. f þeirri
grúppu voru margir merkir þýskir
höfundar, þeir lásu úr verkum sínum
og dispúteruðu. Verðlaun veitti fé-
lagsskapurinn þei'm úr hópnum sem
fram kom með eftirtektarverðastan
litteratúr hvers árs. í tuttugu ár
hélst þessi bókamannafélagsskapur,
og æ með sama fyrirkomulagi. Grass
varð félagi í hópnum 1955 og hlaut
fyrsta skáldsaga hans, „Tintromm-
an“, verðlaun grúppunnar 1958. Sú
bók varð víðfræg. Gúnter Grass hef-
ur ritað fjöldan allan af bókum,
skáldsögur, leikrit og ljóð. Þá er
hann einnig vel liðtækur grafíker og
lýsir oft á tíðum bækur sínar.
The Meeting at Telgte segir af
ímynduðum fundi þýskra bóka-
manna í lok þrjátíu ára stríðsins,
1647. Það er ekki tilviljun að Grass
velur einmitt þetta ártal, því margt
var líkt með þýskum þá og í lok
seinni heimsstyrjaldar. Árið 1647
var landið bitbein Svía og Frakka,
sem borið höfðu sigurorð af þýskum
í löngum hildarleik. Þjóðin var illa
stödd eftir stríðið, trúardeilur og
niðurlæging settu mark sitt á þjóð-
lífið. Þýsk tunga var á undanhaldi.
Grass lætur þessa litlu sögu ger-
ast á fáeinum dægrum í smábænum
Telgte. Þeir sem fundinn sitja eru öll
helstu skáld Þjóðverja á 17. öld, og
sum þeirra jafnvel, 1647, söfnuð til
feðra sinna. Libuschka eða Cour-
asche, er persóna úr Simplicissimus
eftir J.J.C. von Grimmelshausen.
Brecht gerði um hana leikritið Mutt-
er Courasche og í þessari bók Grass
er hún fyrirferðarmikil.
Freistandi er að álíta The Meeting
at Telgte lykilróman, en svo er ekki,
heldur skemmtir Grass sér við að
bera saman fundi Gruppe 47 ann-
arsvegar og hinn ímyndaða fund
1647.
Eftirmáli Leonard Forsters er
upplýsandi fyrir þá sem ekki eru
fullkunnugir bókmenntum Þjóðverja
á 17. öld.
The Meeting at Telgte er tæpar
150 síður og er kápumynd eftir höf-
undinn.
The study of the most significant and
f undamental ideas of eminent
European political thinkers of
the last hundred years
Political Ideas
Edited by David
Thomson.
Penguin Books.
í þessa bók skrifa þrettán höf-
undar fimmtán kafla um stjórn-
mál og stjórnmálahugsuði.
Fyrsti kaflinn fjallar um Machi-
avelli, þann ítalska orðhák, þá
er sagt af Marteini Lúter, páfa-
hatara, og síðan koma þeir hver
af öðrum Hobbes, John Locke,
Rousseau, Burke, Hegel, Mill og
Marx.
Af þessum fimmtán köflum
eru níu útvarpserindi en hinir
sem eftir eru voru sérstaklega
samdir fyrir þetta safn. Höfund-
ar eru: David Thomson, Hale,
Cargill Thompson, Minogue,
Cranston, Morris, Hampden
Jackson, Parkin, Peters, Beales,
Watkins, Vigor og A.C. Macin-
tyre, þeir eru allir frægir á með-
al þeirra sem glöggt fylgjast
með stjórnmálaumræðu breskri.
Political Ideas er aðgengilegt
lestrarefni og er með ólíkindum,
að leikmaður, sem undirritaður
er, skuli ekki hafa orðið ógn
þreyttur af lestri hennar. Bókin
er rúmar tvö hundruð síður og
er bókalisti á eftir hverjum
kafla, hugsaður fyrir þá sem
fræðast vilja frekar um stefn-
urnar. Þá er og nafnaskrá all-
löng.
authoroi-THE TERRIBLE SECRET
EUROFE SINCE
THE REBIRTH OF EUROPE
REVISED EDITION
Walter Laqueur:
Europe Since Hitler
The Rebirth of
Europe
Penguin Books
Síðustu þúsund árin eða svo hefur
Evrópa mátt þola margt. Og margir
hafa verið kallaðir til þess að kveða
upp úr með það að álfan eigi sér litla
framtíð. Þesskonar spámenni hafa
verið til á hverri öld.
Lítil ástæða var til bjartsýni eftir
þær hörmungar sem Hitler kallaði
yfir álfuna. Forystu hennar í stjórn-
málum og efnahagslífi var verulega
ógnað. Ríkin í Austur-Evrópu lentu
undir hæl Sovétveldisins og þau sem
vestast eru, voru í sárum og höfðu,
að því er virtist, ekki bolmagn í sér
til að standa aftur í fæturna. Það tók
ríkin tuttugu og fimm ár að komast
aftur til alþjóðlegrar virðingar og
standa þar óháð stórveldunum í
austri og vestri.
Margir af mestu hugsuðum og vís-
indamönnum þessara ára voru sestir
að í Bandaríkjunum og vó það þungt.
Eftir stríðið jókst menntun til muna
í Evrópu og menningin blómstraði,
og hvort sem maður hallast að því
eða ekki, að hún geti breytt heimin-
um, þá vega skapandi störf vissulega
þungt þegar eftirstríðsárin eru skoð-
uð.
Europe Since Hitler skiptist í
fjóra höfuðkafla: um fyrstu árin eft-
ir stríðið hvað stjórnmál og landa-
mæri varðar, þá er kafli um efna-
hags- og félagslegar framfarir.
Langur kafli um kúltúr og síðastur
er svo þáttur um evrópsk stjórnmál
frá 1955—1970. í bókarlok er siðan
viðbótin sem þessi útgáfa hefur fram
yfir þá fyrri, nefnilega um síðastlið-
inn áratug.
Bókinni fylgir ítarleg bókaskrá og
Henry Parland
Sorgin og Gleðin
Hönd í hönd
héldu þær á móti mér
Sorgin og Gleðin
ganga þær vildu
í gamlan trylltan dans.
Hví þá að dansa ?
ég horfði á Sorgina
— það væri annars
of erfitt að gráta.
Hví þá að dansa ?
ég horfði á Gleðina
— það væri annars
of erfitt að fagna.
Fyrst dansaði ég við Sorgina
og síðan við Gleðina.
Svo dönsuðum við öll þrjú
við glymjandi hlátur
gulnaðs blóms.
Sigurjón Guðjónsson þýddi.
-1
14
Magnús Jóhannsson frá Hafnarnesi
Augu þín
Augu þín eru blá
eins og himininn.
Þegar þú skokkar í skólann
hlær vindurinn í hörgulu hári þínu.
Þegar ungur ég var
Þegar ungur ég var
kallaði ég ekki allt ömmu mína.
Nú er liðin sú tíð að rauk af höndum mínum
við lóðardrátt. Nú kólnar mér á klónum
án þess að taka mér nokkurt verk í hönd.
Ellikerling er á næstu grösum.
L
nafna- þar sem Halldór Laxness er
að finna.
Höfundurinn, Walter Laqueur,
fæddist í Þýskalandi og flutti þaðan
1938. Hann er sagnfræðingur að
mennt og er í metum víðast hvar um
löndin. Hann hefur skrifað yfir tutt-
ugu sagnfræðirit og eina skáldsögu.
Europe Since Hitler kom fyrst út í
Bandaríkjunum árið 1970, er þetta
aukin útgáfa og er upp á rúmar
sexhundruð síður.
Nancy Hathaway:
The Unicorn
Penguin Books
Undirritaður minnist þess ekki að
hafa séð á könnunarferðum um það
íslenska dýrasafn, nokkurn stoppað-
an einhyrning. Þó kann vel að vera,
að einhyrnd skepna hafi staðið þar í
glerskáp í félagsskap við þríhöfða
lamb eða fimmfættan kálf. Einnig
má vel vera, að einhyrnt dýr sé að
finna á einhverju náttúrugripasafni
og þá líkast til í formalíni.
Þegar Guð setti Adam það fyrir að
gefa skepnunum nöfn, varð mann-
skepnan jafnskjótt herra þeirra.
Fyrstan nefndi Adam einhyrning-
inn, og þegar Guð nam nafnið, snart
hann horn dýrsins og upp frá því
varð einhyrningurinn merkust
skepna. Guð gaf dýrinu kraft sem
fólst meðal annars í því, að ræki það
hornið í óhreint vatn, varð það á
augabragði hreint á ný.
Trú manna á einhyrninga, mátt
þeirra og tilvist var útbreidd í gegn-
um aldirnar. Ekki var það kristnin
sem innleiddi töframátt dýrsins, því
sögum fór af galdri þess austur á
Indlandi, í Kína og Japan í árdaga.
Alexander mikli reið um löndin á
furðuskepnunni Bukefalusi sem
reyndar var einhyrningur og var
ekki annar fær um að stjórna dýrinu
en landavinnarinn mikli, Alexander.
f Evrópu miðalda var trú á ein-
hyrninga mikil. Karl, sem seinna
varð kóngur Frakka, sá sjötti, sá
ungur villta menn, loðna, ríða ein-
hyrningum og vildi fanga þessar
furðuverur. Ekki var það á allra færi
að komast í tæri við einhyrning,
helsta vonin var sú að óspjallaðri
mey tækist það og þá með því að
sitja löngum stundum ein og kjurr
og óttalaus í lundi. Eru margar sög-
ur til af þesskonar tálum.
Höfundurinn hefur sent frá sér
smásögur, tímaritsgreinar og þrjár
barnabækur. Hún býr í Los Angeles.
Bflar
Frh. af bls. 13.
inganna frá Miinchen, var nýr
og helst til háfættur BMW-
„þristur" þyngdur um 200 kíló
fyrir auglýsingamyndatökuna.
Arangurinn má sjá af meðfylgj-
andi myndum. Þessar myndir
gefa þó tilvonandi kaupendum
BMW hér á landi ef til vill ekki
svo ranga mynd af bílnum, því
það nægir venjulega hvaða
fólksbíl sem er að fara eina ferð
eða svo á holóttum hringvegin-
um, til þess að líta ögn lægri og
„sportlegri" út.
Hins vegar gefur Chico-hálf-
jeppinn hugsanlegum íslenskum
aðdáendum ekki alveg nógu og
rétta mynd af klifurhæfileikum
sínum, þar sem hann svífur upp
snarbratta brekku, hér á ann-
arri mynd. Ef vel er að gáð, má
nefnilega sjá að skýið á mynd-
inni hallast talsvert, — næstum
eins mikið og hálfjeppinn sjálf-
ur. Eða kannski haga þýsk ský
sér svona allt öðruvísi en önnur,
sem láta sér bara nægja að
horfa á leiki mannanna? Hvað
sem því líður, þá virðist þetta
vera hið allra efnilegasta alt-
mulig-farartæki. Hann skortir
reyndar drif á framhjólin til að
geta talist til ættbálks alvöru-
jeppa, en bætir það að nokkru
leyti upp með veltilið fyrir aftan
ökumannshús. Þetta er talsvert
sniðug útfærsla, sem gerir hon-
um mögulegt að hafa stöðugt
fast land undir öllum fjórum.
Væri þetta farartæki búið drifi
á öllum hjólum, yrði það líkast
til nokkuð vel rólfært hér á
landi. Chico var annars hannað-
ur af MBB-flugvélaverksmiðj-
unum (Messerschmitt-Bölkow-
Blohm), en er samkvæmt nokk-
uð áreiðanlegum heimildum
framleiddur á Irlandi.
Jón R Þorbjörnsson stundar nám í
bOaverkfræði í Vestur-Þýzkalandi og
greinin er önnur í röðinni al þremur
um ýmislegt það er nú er á dagskrá
í bílaiðnaðinum.