Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1984, Qupperneq 4

Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1984, Qupperneq 4
Lesbók/Arni Sæberg. Tóta og Tommi ásamt börnum sínum, útlendri vinkonu og kisu við kvöldverð- arborðið. Stundum en þó helst á matmálstímum er jafn mannmargt hjá Tomma og Tótu í Miðstræt- inu og á Umferðarmiðstöðinni. Kunningjar og vinir líta þar við á kvöldin án þess að gera boð á undan sér, feta sig upp brakandi tröpp- Litið inn hjá hjón- um sem ástunda sérstakan lífsstíl og hafa mataræði sitt í samræmi við reglur Yin og Yang, sem eru tvö öfl úr kín- verskri heimspeki. Eftir GUÐBRAND GÍSLASON urnar þar sem kötturinn Soffía Lóren kúr- ir á skörinni mjúk viðkomu eins og brjóst og koma oftar en ekki að opnum dyrum á annarri hæðinni því Tommi og Tóta og börnin þeirra þrjú, Jonni, Rut og Ari virð- ast hafa litla þörf fyrir þann sið að kúldr- ast með líf sitt fyrir luktum dyrum á þann hátt sem sumstaðar er kallaður prívat eða einkalíf heldur flytja þau glaðlyndi sitt og elskulegt viðmót með sér út á gang eða stétt, út á götu eða í garðinn ef þannig viðrar og heilsa oft gestum með kossi. Þessi sífelldi gestagangur veldur því að stundum er eins og mörg mannamót eigi sér stað í einu í íbúð Tomma og Tótu: í einu horninu er skrafað á ensku um myndlist meðan nokkrir liggja á eldhús- gólfinu og ræða um Ítalíu og Rut spilar á píanóið og Jonni skrifar forrit. Samt er aldrei ös eða æsingur í þessu húsi. Eldhús- ið er stórt og í einu horni þess baðkarið. Ég hef tvisvar séð gesti þar í baði meðan verið var að elda kvöldmatinn og þótti engum mikið, því í þessu húsi þarf ekki að loka dyrum. Stress þekkist þar ekki nema í orðabók Menningarsjóðs uppá hillu. Þess vegna er kvöldmaturinn stundum ekki kominn á borðið fyrr en klukkan tíu. Oft er hann tilbúinn fyrr en stundum síðar. Og þá erum við komin að kjarna málsins. Vegna þess hver maturinn er, kippir sér enginn upp við jafn fáfengilega hluti og borgaralegt tímaskyn. Hér er tíminn orð- inn sú stund sem Soffía malar eða hitinn rýkur af grjónum eða blóm hneigist móti Kort yfír fæðutegundir, sem skiptast í tvo fíokka eftir lögmátí Yin og Yang. sólu úr bleikri gluggakistunni á annarri hæð í þessu gamla timburhúsi, tíminn er hér vellíðan eins og lífið, nautn sem ekki er til í öðrum mælieiningum en þeim sem umhverfið heftir hann í og sjálfsagt er að fylgja þegar krefur tillitssemi við aðra. I þjóðfélagi þar sem gjalddagar víxla hafa tekið yfir það hlutverk kirkjudaga að búta niður líf fólks á almanakinu hlýtur það að vera gott líf þar sem engri orku er eytt í áhyggjur útaf veraldlegum gæðum, þar sem jákvætt viðhorf nær að hefja mann yfir skarkala hversdagsins og æði og halda manni þar í einhverri taoískri heið- ríkju hugans frá morgni til kvölds og allar langar nætur. Ekki svo að skilja að Þórunn Elísabet Sveinsdóttir og Tómas Jónsson þekki ekki brauðstrit: Þau vinna bæði langan vinnudag og hafa verið skuldug upp í hársrætur eins og aðrir. En þegar þau voru við nám í Englandi fyrir áratug breyttu þau um mataræði og breyttu þar með lífi sínu. í eldhúsinu skammt frá bað- karinu hangir á vegg prentaður sá sann- leikur sem þau þekkja í líkömum sínum: You are what you eat, þú ert það sem þú etur. Tómas Jónsson er 34 ára, ættaður af Suðurnesjunum. Hann vinnur sem auglýs- ingateiknari. Þórunn Elísabet Sveinsdóttir er 32 ára, ættuð frá Siglufirði. Hún starfar sem ráðgjafi við matargerð, hannar leik- búninga og þar að auki (haldið ykkur fast) er hún móðir, húsmóðir, kona. Allt á sér aðdraganda, jafnvel þeir hlutir sem ómerkilegastir virðast. Tóta talar um líf sitt fram til þess tíma er þau breyttu um mataræði: Ég var þunglyndur krakki, vildi engan þekkja og fannst lífið ekki þess virði að

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.