Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1984, Síða 8
Finn Lynggard:
„ Technique is cheap", 1984.
Tchai Munch:
Skál, 1983.
FáguÖ glerlist
á Kjarvalsstöðum
Meðal þess sem fram fór á
Kjarvalsstöðum í blaðaverkfall-
inu, var óvenjulega fáguö gler-
listarsýning, sem bar heitið
Stefnumót glervina. Þessi list-
viðburöur hefur ugglaust farið
ómaklega fyrir ofan garð og
neöan eins og verða vill, þegar
blööin geta ekki gegnt hlutverki
sínu.
Að sýningunni stóðu fjórir
glerlistamenn: Sigrún Ó. Ein-
arsdóttir og Sören S. Larsen,
sem hafa gert garðinn frœgan í
Bergvík á Kjalamesi, þar sem
þau reka glerblástursverkstœði
og eru nú þekkt oröin fyrir
framúrskarandi listrœna hluti.
Meö þeim sýndu tveir danskir
glerlistamenn, Tchai Munch og
Finn Lynggaard, en hann varö
fyrstur manna til aö koma á fót litlu
glerverkstæði í Danmörku, enda
liðlega fimmtugur að aldri og rekur
nú verkstæöi í Ebeltoft á Jótlandi.
Hann hefur og skrifað kennslu-
bækur um keramik og gler.
Tchai Munch er fædd I Dan-
mörku 1954 og iér nú aðstoöar-
maöur Finn Lyngþaard. Hún hefur
tekiö þátt I fjölmörgum samsýning-
um, viöa um lönd. Lynggaard er
Sýning
Sigrúnar Ó.
Einarsdóttur,
Sören Larsens,
Tchai Munch
og Finn
Lynggaards
svo forframaður, aö verk hans eru
til á 13 söfnum víösvegár um heim-
inn, gullverðlaun hans og viöur-
kenningar eru fjölmargar og I sýn-
ingarskrá eru taldar upp 25 sam-
sýningar, sem hann hefur tekið
þátt I. Um árabil hefur hann veriö
leiðandi afl og einskonar merkis-
beri studio-glerlistar, ekki bara á
Noröurlöndum, heldur um allan
heim. Bæöi Tchai og Sigrún Ó.
Einarsdóttir hafa lært hjá honum.
Sören S. Larsen, sem hefur rek-
iö studio-glerverkstæðiö „Gler i
Bergvik" ásamt Sigrúnu. Einars-
dóttur síöan 1982, var þar áöur
umsjónarkennari keramikdeildar
Myndlista- og handlðaskóla is-
lands; einnig kenndi hann viö Skol-
en for Brugskunst.
í sýningarskrá segir Aöalsteinn
Ingólfsson listfræöingur m.a.:
„Höfuöeinkenni glersins, gegn-
sæiö, er líkast til sá eiginleiki þess
sem mest reynir á þann sem hefur
þaö undir höndum. Gleriö er eins
og vatnið, slbreytilegt eftir veöri og
vindum, staösetningu og sjónar-
horni. Þvi þarf sterk bein til aö láta
ekki þennan eftirgefanlega miöil
ráöa feröinni, gefa til kynna bæði
allt og ekkert, heldur sveigja hann
til hlföni viö sérstök listræn mark-
miö, ákveöna skírskotun ...
Og ennfremur: „Gler er stund-
um taliö óhlutlægast, mest af-
strakt, allra listmiöla. í gleri þeirra
Sigrúnar og Sörens gætir hins veg-
ar nálægðar náttúrunnar svo ekki
verður um villst: öldugangsins I
fjöruboröinu, þangsins, blævarins I
grasinu, litbrigöa Esjunnar og
laufsins í kjarrinu. Aö hafa gler-
muni þeirra um hönd er eins og aö
meöhöndla náttúruleg form, sem
sjálfar höfuöskepnunar hafa sllpaö
og skolaö á land í Bergvík."
Sigrún Ólöf Einarsdóttir:
„Dans" úr myndrööinni „Fóik",
1984.
Sören S. Larsen: „Gróska", 1984.
8