Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1984, Blaðsíða 16
F ey kilegur forði af
ónýttu eldsneyti?
Stjörnufræðingurinn Thomas Gold er með kenningu um tilurð
olíu, sem stangast á við hina hefðbundnu skýringu og kemur illa
við gamalgróna olíusérfræðinga
Fyrir áratug varö al-
menningi skyndilega
ljós olíukreppan, þegar
hann stóð andspænis
stórhækkandi verði og biðröðum
á benzínstöðvum. Þetta var
ónotaleg sönnun þess, sem
jarðfræðingar höfðu löngu séð
fyrir: að eldsneyti úr jörðu —
plöntu- eða dýraleifar, sem hafa
kraumað í milljónir ára í hinum
náttúrulega þrýstikatli efri laga
jarðskorpunnar — væri að
ganga til þurrðar. Það hafði
bara verið svo mikið til af risa-
eðlum og regnskógum fyrst og
fremst.
En menn eru til, sem eru á
öndverðum meiði. Lítill en há-
vær minnihluti vísindamanna
heldur því fram, að olía og það
sem er enn mikilvægara, nátt-
úrulegt metangas, eigi uppruna
sinn að rekja til annarra og ríku-
legri linda. Þessi kolefnaríku
eldsneyti hafa að þeirra sögn
orðið til úr efnum, sem lentu
djúpt í iðrum jarðar, þegar hún
myndaðist. Metan hefur verið að
streyma upp á við æ síðan, en
hægt, og stundum lokazt inni
undir neðanjarðarhvelfingum
þéttra berglaga. Á leiðinni upp
hefur lítill hluti gassins breytzt í
olíu við þrýsting. Svo að með
með því að bora nokkrum kíló-
metrum lengra — niður fyrir hið
venjulega dýpi við olíuleit —
ættum við að finna gífurlegt
magn af ónýttu eldsneyti. Og þar
sem metan brennur á sérstak-
lega hreinan hatt, gætum við um
leið leyst mengunarvandamál
okkar að verulegu leyti.
„Þetta Er Bara
Alrangt
Hinn umdeildi sjáandi þessa
neðanjarðargass er Thomas
Gold, stjörnufræðingur við
Cornell, sem hefur beint athygli
sinni niður á við fremur en til
upphæða undanfrin ár. Útkoman
hefur svo orðið vísindaleg um-
ræða, sem hefur komið óþægi-
lega við gamalgróna olíusér-
fræðinga og jafnvei gert þá
vonda. „Þetta er bara alrangt
hjá manninum," segir Fred
Dicks hjá Félagi bandarískra
olíujarðfræðinga. En þó að deil-
ur manna um mál þetta séu all-
snarpar, þá byggjast þær meira
á útlistunum og túlkunum en á
beinum staðreyndum.
Menn eru til dæmis sammála
um, að olía og gas hafi að geyma
vott af efnum, sem augljóslega
megi rekja til rotnunar lifandi
vera. Flestir benda á það sem
sönnun um upprunann, en Gold
heldur því hins vegar fram, að
lífræn efni á niðurleið hafi
blandazt ólífrænu gasi, sem leit-
aði upp. „Olía og gas kemur að
nokkru leyti frá rotnuðum lífver-
um,“ fellst Gold á, „en að mestu
leyti er það ekki svo.“
Eins eru menn sammála um
það, að olía frá vissum, stórum
svæðum — mestum hluta Suð-
ur-Ameríu til dæmis — hafi að
geyma verulega meira magn af
sumum málmefnum en olía ann-
ars staðar, svo sem frá Afríku.
Sú hefur reyndin orðið, enda
þótt einstök oliusvæði á tiltekn-
um landshlutum séu bundin inn-
an setbergs, sem orðið hefur til á
mjög mismunandi tímum. Jarð-
fræðingar almennt segja, að
olían hafi flutzt niður, en Gold
segir, að olían hafi komið frá
sameiginlegri uppsprettu undir
Suður-Ameríku og að önnur sé
undir Afríku.
Sænsk Olíusvæði?
Niðurstaða deilunnar fæst
ekki með orðum, og Thomas
Gold hefur komið kenningum
sínum niður á jörðina. Hann
boðar, að olía og gas muni finn-
ast í Svíþjóð, sem yfirleitt hefur
verið talin hafa litla möguleika í
þeim efnum, því að þar er lítið
um setberg. En þar er mjög hart
og þétt berg neðanjarðar, og á
vegum sænskra stjórnvalda er
verið að bora á svæði, þar sem
bergið hefur verið fleygað. Stór
loftsteinn féll á Siljanvatns-
svæðið fyrir 360 milljónum ára
og klauf bergið á miklu dýpi.
Thomas Gold segir, að metan
djúpt í jörðu hafi þokazt upp um
sprungurnar og sé nú innilokað
undir skildi endurharðnaðs
bergs. Reyndar hefur orðið vart
olíu, er á að hafa seytlað undan
brúnum skjaldarins, og metan-
gas hafa menn einnig fundið
stundum.
Ef Gold beinir borunum að
olíu, þar sem enginn taldi neina
vera áður, styrkist staða hans í
olíuheiminum svo um munar, en
þó mun ýmsir enn vera annarrar
skoðunar en hann. „Hin hefð-
bundna skoðun hefur orðið að
einhvers konar trú,“ segir hann,
„og jafnvel áþreifanlegar stað-
reyndir munu ekki hagga sann-
færingu sumra." En þeir jarð-
fræðingar eru einnig til, sem eru
fúsir að hlusta. Richard Boland-
er, formaður Olíuleitarfélagsins
í New York, segir: „Ég fæ ekki
skilið, af hverju hér hljóti að
vera um annaðhvort eða að tefla.
Bæði Gold og við hinir getum
haft rétt fyrir okkur að hluta."
Öryggislykill 1: Besta ávöxtun bankans.
Nú 26,75% ársávöxtun.
Kaskó-reikningurinn hefur þrjú vaxtatímabil á ári:
1. janúar til 30. apríl, 1. maí til 31. ágúst og
1. september til 31. desember.
Sé Kaskó-reikningurinn án úttektar heilt vaxtatímabil,
reiknast uppbót á vaxtainneign, sem samsvarar bestu ávöxtun
sparifjár hjá bankanum á því tímabili.
Ef lagt er inn á Kaskó-reikning eftir að vaxtatímabil er
hafið og reikningurinn er síðan án úttektar næsta tímabil á
eftir, reiknast vaxtauppbót allan spamaðartímann.
Öryggislykill 2: Vörn gegn verðbólgu.
Samanburður á kjörum verðtryggðra og
óverðtryggðra reikninga er framkvæmdur mánaðarlega.
Ef verðbólga eykst og verðtryggðir reikningar gefa bestu
ávöxtun, þá fær Kaskó-reikningurinn sjálfkrafa þá ávöxtun.
Engin fyrirhöfn eða flutningar á milli reikningsforma.
Öryggislykill 3: Engin binding.
Innstæða Kaskó-reiknings er alltaf laus til útborgunar
án uppsagnar á reikningi. Ef tekið er út á vaxtatímabili fellur
vaxtauppbót niður það tímabil en innstæðan heldur
sparisjóðsvöxmm eftir sem áður. Kaskó-reikning má stofna
og leggja inn á hvenær sem er.
V/íRZLUNflRBflNKINN
-vmhwi með þen,!
Bankastræti 5 Húsi verslunarinnar, nýja miðbænum Umferðarmiðstöðinni v/Hringbraut Laugavegi 172
Grensásvegi 13 Arnarbakka 2 Vatnsnesvegi 1-1, Keflavík Þverholti, Mosfellssvcit
16