Lesbók Morgunblaðsins - 11.01.1986, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 11.01.1986, Page 6
A tilraunaveiðum við Austur-Grænland 2. hluti EFTIR GUÐNA ÞORSTEIN SSON FISKIFRÆÐING Flökkufólk á leið sinni norður til Imaersivik. Þetta voru tvær fjölskyldur á dekkbáti og höfðu verið tvo mánuði í Timgmiarmiut. Þann stað kannast íslendingar við úr veðurlýsingum. OFMIKIDAI I.AXI (X; VFRIÐ NÓGAFKJÖIT hjá þeim feðgum sem veiddu 228 laxa og 44 seli á tæpum mánuði í Skjöldungsfirðinum Eftir tilþrifin á Laxnesi og „Dauðahafinu“ héldum við enn í norðvestur inn fjörðinn, sem orðinn er harla mjór á þessu svæði. Sund þetta skírðum við Gunnarssund eftir skipstjóranum og þótti mér ekki spilla, að til er samnefnd gata í Hafnarfiröi, gömul og virðuleg. Þar bjó reyndar amma mín sáluga og þar ólst móðir mín upp. Siglingin inn Gunnarssundið verður okkur ógleymanleg. Allt að 2000 metra há fjöll ganga þverhnípt í sjó fram og stóðu á haus í spegilsléttum sjónum. Sífellt molnaði úr skriðjökli, er þarna gekk í sjó fram og drunurnar bergmáluðu lengi á eftir. Af og til steyptust svo snjóhengjur niður fjallshlíðarnar og fjöllin voru vægast sagt tilkomumikil með sína hvítu kolla. Nokkurt jakahrafl var í sundinu, kynjaver- urúr jöklinum. Allir störðum við hugfangnir á þetta einstæða sjónarspil náttúrunnar, sem snart okkur djúpt. Sem dæmi um það má nefna, að Guðmundur bátsmaöur var svo heillaður, að hann hafði ekki rænu á að taka mynd, þótt myndavélin héngi um hálsinn. Þó að íslendingar hafi tilhneigingu til að telja Austur-Grænland yfirhöfuð óbyggilegt, þá varö þessi sýn þó vissulega til þess, að við skildum betur áráttu íbú- anna til að lifa frjálsu veiðimannalífi. í FÓTSPOR FINNS DEVOLDS Er Gunnarssundið þrýtur, er komið í norðvesturenda fjarðarins. Blasir þá Mar- íudalur eða Drottningar Maríu Dalur við á vinstri hönd. Mun þar vera gróðursælast á öllu Austur-Grænlandi og sögustaður allmerkur. Það var landkönnuðurinn Grah, sem skírði dalinn þann 31. ágúst 1829. Grah var á suðurleið í konubáti, er til dalsins var komið daginn áður. Grah var lasinn og reyndi að sofa um nóttina, en gekk ekki sem best, því að 200—250 Eski- móar dönsuðu og trölluðu þarna alla nótt- ina. Ekki var fólkið þó búsett þarna heldur var það siður að koma þarna saman á þessum árstima til að tína krækiber og safna ætihvönn og gera sér glaðan dag í leiðinni. Daginn eftir var Grah hressari, skírði dalinn og leist svo vel á sig, að hann sló því föstu, að hér væri Eystri-byggð, ef hún væri á annað borð á Austur-Græn- landi. Eftir að hafa leitað árangurslaust að minjum norrænnar búsetu, var hann sannfærður um það, að Eystri-byggð væri á Vestur-Grænlandi. Næst segir frá Norðmönnum, sem voru á þessum slóðum á árunum 1932 og 1933 við haf- og fiskirannsóknir. En þeim gekk reyndar fleira til. í leiðangursskýrslu er þess getið, að Norðmenn hafi lagt undir sig Suðausturgrænland á milli 60 30’ og 63 40’ og er Skjöldungsfjörðurinn á þessu svæði. Þessir landvinningar gengu annars þannig fyrir sig, að valinn var maður til að draga norska fánann að húni með vissu millibili í votta viðurvist. Votturinn var reyndar alltaf sá sami, nefnilega loft- skeytamaður, sem sendi þessi tíðindi síðan út í loftið. Frægasti fiskifræðingur Norð- m'anna, Finn Devold, tók þátt í þessum landvinningum, þá ungur maður. En Norð- mönnum varð ekki kápan úr því klæðinu, því að strax árið eftir ógilti Alþjóðadóm- stóllinn í Haag allar kröfur þeirra. Samt voru Norðmenn viðloðandi á Austur- Grænlandi lengi enn, en þá miklu norðar, þar sem þeir stunduðu veiðar ásamt Dön- um. Samkomulagið var brösótt og sökuðu Danir Norðmenn t.d. um að eitra fyrir veiðidýrin. Finn Devold og nokkrir félagar hans höfðu vetursetu í Maríudal veturinn 1932—1933. Bjuggu þeir dálítið fyrir utan dalinn og kölluðu kofa sinn Tröllabotn. Þar sjást enn tvö hús en annað er svo hrörlegt, að varla er hægt að tala um nema 1 Vi hús. Þess er getið, að Devold og félagar hafi veitt bærilega af sjóbleikju í ánni í Maríu- dal en hins vegar gekk þeim verr að safna skinnum. Töluvert íshrafl var utan við dalinn, er okkur bar að garði. Leist mér ekki meira en svo á að fara í land á Rauðku. Mikki var þó hvergi banginn og varð það úr, að ég fór í land ásamt Grænlendingunum og Sólmundi og höfðum með okkur bleikjunet og veiðistöng. Ferðin gegnum ísinn gekk að vonum. Ekki var hægt að komast hjá árekstrum við ísinn en ekki varð það Rauðku að meini. Er í land var komið gekk Sólmundur hærra til fjalls en við hinir og gerði engan guss á sér, eins og stendur í Sturlungu um Sturlu Sighvatsson. Við þremenningar gengum upp eftir ánni og kom skjótt í ljós, að James var léttastur til göngu, í sæmi- legri æfingu, því að skömmu fyrir brottför hafði ég elt yngri bróður minn og tvo hunda upp á Esju — á pari, 2 tímum. Mikki var sem sagt þyngstur, enda hárfínt aldurs- forseti. Er við vorum komnir um 3 kílómetra inn í dalinn komum við að sléttum bökkum þar sem áin var frekar lygn og útlit fyrir sléttan botn. James greiddi þar netið utan af hausnum á sér þar sem það hafði varið hann fyrir mýinu. Mikki óð svo yfir og tóku þeir kumpánar nú netið á milli sín og létu það reka með straumnum. í 5 atrennum fengust 2 bleikjur á þennan hátt og voru þær 2—3 pund hvor. Mikið bar á víðikjarri í dalnum, svo og krækiberjalyngi en ekki var mikið af berj- um. Mikið var hins vegar af ætihvönn og spændu Grænlendingarnir hana í sig og tóku með sér vænt knippi. Ég bragðaði líka á hvönninni en þótti ekki mikið til koma. Maríudalurinn er um 8 km langur og tveggja km breiður umluktur bröttum fjöllum, sem hafa svo hvassa tinda, að þeir eru ekki hvítir á kollinn. Ofarlega í dalnum er svo stöðuvatn, sem sagt var fullt af bleikju, sem heimamenn veiða seinna á haustin eftir að fjörðinn leggur og fara þeir á hundasleðum og veiða í gegnum vakir á vatninu. EnnUm Laxveiðar Á næstu þremur dögum þ. 24.-26. ágúst var laxveiðin enn í brennidepli. Við vorum jafnan með net í Vatnsvíkinni og þar í grennd en lögðum einnig utar í fjörðinn, við Carolínu-Amalíuhöfn og í Hálfdáns- fjörð. Þann 24. ágúst fengum við 28 laxa, þar af 17 í Vatnsvíkurnetunum og 9 komu úr 6 netum í Carolínu en þar af voru reynd- ar 3 Gvendar, sem aðeins skiluðu einum fiski. Þann 26. ágúst fengust 53 laxar, þar af voru hvorki meira né minna en 39 úr Vatnsvíkurnetunum. Sjö fengust hjá Car- olínu en enginn fékkst á Hálfdánsfirði, en þar voru aðeins 4 og 6 tommu net. Hálfdán var því aldán. Jafnhliða þessu héldum við áfram með línuna, mældum hita og áttum 3*/2 tommu silunganet yfir nótt í sjó á Guðnavíkinni og fengum í það þrjár bleikjur. Hringanóta fengum við eitt sinn í laxanet og gáfum Skjöldungunum hann. Á þessum tíma hitt- um við Kristján af og til en af hans högum segir síðar. Er við afhentum selinn gafst öllum leiðangursmönnum, sem ekki höfðu þegar komið í land í Sjöldungen, tækifæri til aö bæta úr því og nýttu allir sér tæki- færið. Norðfjörðurinn Laust eftir hádegi þann 26. ágúst höfðum við tekið öll okkar veiðarfæri upp úr suður- álmu Skjöldungsfjarðar og héldum í Norð- urfjörðinn. Christian Höy hafði nú slegist í okkar hóp. Á leiðinni beittum við 5 bala af haukalóð, enda hafði okkur verið tjáð, að lúðu gæti verið að finna í Norðurfirðin- um. Verður nú farið fljótt yfir sögu, enda gerðist nú fátt markvert. Þann 26. ágúst lögðum við haukalóðina, 4 laxanet í Indriðavík, 5 laxanet við Snorra- foss í Siggavík og lojcs eina krabbagildru í Indriðavík, þar sem við lágum um nóttina. Þann 27. ágúst drógum við öll þessi veiðar- færi og fengum aðeins 3 hlýra á haukalóð- ina. Við tókum öll laxanetin upp og lögðum þau í Mikkavík og út af Valborgartanga, 6

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.